Feykir - 19.12.2018, Blaðsíða 24
24 48/2018
www.skagafjordur.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
/
1
22
01
8
TILLAGA að breytingum á
Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021
Breytingar A-G
Blöndulína 3, Sauðárkrókslína, virkjanakostir, urðunarsvæði,
tengivirki, efnistökusvæði og iðnaðarsvæði
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 12. desember 2018 að
auglýsa tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-
2021, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat
áætlana.
Í tillögu felst (A) lega Blöndulínu 3 (raflína), (B) færsla á legu Sauðárkrókslínu, (C)
áframhaldandi frestun á skipulagi fyrir virkjanakosti í Skagafirði, (D) urðunarsvæði við
Brimnes er fellt út, (E) nýtt tengivirki og lega jarðstrengs á Sauðárkróki, (F) ný efnistöku-
svæði vegna framkvæmda og (G) stækkun iðnaðarsvæðis við Varmahlíð.
Í tillögu er gerð grein fyrir forsendum breytinga, útfærslu og umhverfisáhrifum skv.
lögum nr. 105/2006. Skipulagsgögnin verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins
skagafjordur.is, í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-19, 550 Sauðárkróki, og hjá Skipu-
lagsstofnun í Borgartúni 7b.
Ábendingum og athugasemdum við tillögu að aðalskipulagsbreytingum skal senda til
skipulags- og byggingarfulltrúa á netfangið jobygg@skagafjordur.is. Einnig er hægt að
senda athugasemdir merktar Aðalskipulag Skagafjarðar á póstfangið, Sveitarfélagið
Skagafjörður, Skagfirðingabraut 17-19, 550 Sauðárkróki.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að
gera athugasemdir til mánudagsins 4. febrúar 2019.
Haldinn verður opinn kynningarfundur um breytingartillöguna
og verður hann auglýstur síðar.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Skagafjarðar
Gersemi og Erna. Guðmundur
er ljúfmenni og á gott með
samskipti við fólk. Stundum
þyrfti hann að skoða betur
innihald en umbúðir, glans-
húðin slitnar oft fljótt og ýmis-
legt lakara getur komið í ljós.
Láttu ekki blekkja þig Guð-
mundur.
Lögðum við nú spil fyrir
stjórnarandstöðuna. Frygg,
Gói, Sýn, Eir og Máni
Af þessum spilum má ráða að
þar þurfa menn að girða sig í
brók og fara að vinna betur
saman, það er fátt sem sameinar
menn þar nema að vera á móti
sitjandi ríkissjórn.
Sjónarmiðin eru alltof mörg og
stefnan í sitthvora áttina svo
þeim reynist erfitt að veita
stjórninni nauðsynlegt aðhald.
Landshlutaspár
Lagðar voru nú rúnir, spil og
rýnt í kristalskúlu fyrir hvern
landshluta.
Það er mikill kraftur yfir
Suðurlandi bæði í fólki,
fyrirtækjum og náttúrunni,
ætlum samt ekki að fara að spá
einhverjum eldgosum. Sú mikla
uppbygging sem þar á sér stað
heldur áfram og ekki síst er
mikill uppgangur í því sem er
heilsutengt, hvort sem það er nú
nýbygging sjúkrahúss eða bara
almenn heilsuefling þarna á
Stór - Reykjarvíkursvæðinu,
skal ósagt látið.
Vesturlandið er ekki alveg á
sömu bylgjulengd, þar er
eitthvað sem fer ekki eins og
áætlað var, einhverri fram-
kvæmd sem miklar væntingar
voru bundnar við mun verða
frestað eða hætt við. Það er lítið
annað að gera en að taka því
eins og hverju öðru hundsbiti
en vonbrigðin eru mikil.
Á Norður og Austurlandi er
eins og menn hafi ekki verið að
hugsa til framtíðar, hafi ekki
sett sér nógu löng markmið,
það dugar ekki að hugsa bara
um morgundaginn. Ekki vantar
tækifærin, en þau þarf að nota.
Þarna fara menn að nota
skynsemina og samningar
verða gerðir og meiri samstaða
verður meðal þessara landshluta
heldur en oft áður. Ný fyrirtæki
og heldur fjölgar fólki.
Veðurspá
Að lokum er það veðurspáin
fyrir okkar svæði.
Upp úr áramótum kemur
leiðindakafli en hann stendur
stutt og síðari hluti janúar og
fyrsta vika þorra verða flestum
hagfelld. Kyndilmessuhvellur á
sínum stað, sem veit á gott enda
blíða það sem eftir lifir af
febrúar. Útmánuðir verða
nokkuð umhleypingasamir, þó
engin stórviðri. Sumarkoman
færir okkur hlýindakafla, en
eins og oft áður er skitið í nytina
undir mánaðamótin apríl-maí,
trúlega páskahret. Sauðburðar-
tíð allgóð utan kalsarigning eða
slydda um miðjan maí. Sumar-
mánuðirnir júní og júlí líta
allvel út þó eitthvað kólni um
fardaga. Síðari hluti júlí hlýr og
heyskapartíð góð. Úrkomu-
samara í ágúst en flæsur inn á
milli. Fremur votvirðasamt til
gangna. Október lakari en
undanfarin ár og endar með
kuldakasti sem stendur fram
um miðjan nóvember. Desem-
ber blíður allt til áramóta og
von á rauðum jólum sem sumir
fagna en aðrir kvarta sáran yfir
snjóleysi.
Við fengum þá ósk að spá fyrir
um hvort Tindastóll myndi ná
að landa bikar í körfubolta
karla. Við urðum við þeirri
beiðni og satt að segja sáum við
strax eftir því að hafa eitthvað
verið að rýna í þessi mál, enda
höfum við ekkert vit á körfu-
bolta nema það að við vitum að
Stólarnir hafa verið að standa
sig frábærlega. Niðurstaðan var
nefnilega ekki í samræmi við
væntingar þess aðila sem ósk-
aði eftir svari.
Munið að lífið er núna og njótið
þess að vera til og hafið hugfast
að gott er að gleðjast góðum
með.
Óskum ykkur gæfu og gleði
á nýju ári og fullt af
ævintýrum.
Völvurnar sjá ekki að Stólarnir landi bikar í körfunni þetta tímabil.
MYND: ?!?!
Munið að lífið er núna og njótið þess að vera til.
MYND: ÓAB
Sumarmánuðurnir júní og júlí líta vel út og heyskapartíð góð.
MYND: ÓAB
Mörg eru tækifærin á Norðurlandi, ekki síst í ferðaþjónustunni.
MYND: ÓAB