Bændablaðið - 07.07.2016, Side 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Bretar samþykktu úrsögn úr
Evrópusambandinu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu sem haldin var
seint í júní. 52% þeirra kusu að
segja sig úr ESB en 48% vildu vera
áfram í sambandinu.
Árið 2015 fengu breskir bændur
rúmlega 3 milljarða punda í beina
styrki frá Evrópusambandinu. Auk
þess sem búið var að eyrnamerkja
rúmlega 5 milljarða punda sem átti
að nota til að styrkja afskekktar
byggðir á Bretlandseyjum til ársins
2020.
Óvissa hjá breskum bændum
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu
bresku bændasamtakanna, NFU,
fluttu Bretar inn tæplega 40 milljarða
tonn af landbúnaðarvörum árið 2014
frá löndum Evrópusambandsins sem
er tvöfalt meira en þeir fluttu út til
sömu landa.
Haft er eftir Meurig Raymond,
formanni National Farmer‘s Union
(NFU) og bónda í Pembrokeshire, á
heimasíðu samtakanna að úrsögninni
fylgi mikil óvissa fyrir breska bændur.
Hann segir að samtökin munu vinna
með breskum stjórnvöldum að því
að leysa úr þeirri óvissu og taka þátt
í vinnu við nýja samninga sem þarf
að gera vegna úrsagnarinnar.
„Bændur munu að sjálfsögðu vilja
vita hvaða áhrif úrsögnin mun hafa
á starfsemi þeirra og það er okkar
skylda að tryggja að réttur þeirra
verði ekki skertur þegar kemur að
nýjum samningum. Breskur land-
búnaður er hornsteinn matvælafram-
leiðslu í landinu og það verður að
standa vörð um hann.“
Markmiðið að tryggja bændum
aðgengi að markaði
Raymond segir að markmið NFU
verði meðal annars að tryggja sem
bestan aðgang fyrir bresk matvæli
að mörkuðum ESB. Jafnframt að
tryggja aðgang að mörkuðum annars
staðar í heiminum og tryggja að inn-
flutt matvæli séu í háum gæðaflokki.
Tryggja þarf að bændur hafi
nægan aðgang að vinnuafli árið um
kring en talið er að ríflega 40 þúsund
landbúnaðarverkamenn frá löndum
Evrópusambandsins séu starfandi í
Bretlandi.
Raymond segir að samtökin eigi
að vera stefnumarkandi þegar kemur
að aðlögun að nýjum aðstæðum og
tryggja breskum bændum jafnræði á
við bændur í Evrópusambandinu og
annars staðar í heiminum.
Bresku bændasamtökin hafa sett
á fót ráðgjafarmiðstöð sem ætlað er
að vera bændum innan handar, svara
spurningum um málefni sem snúa að
úrsögninni og afleiðingum hennar.
Pólitískar sviptingar
Miklar sviptingar hafa verið í bresk-
um stjórnmálum í kjölfar kosning-
anna. David Cameron, forsætis-
ráðherra Breta, hvatti landa sína
til að vera áfram innan ESB og er
niðurstaðan talin mikill ósigur fyrir
hann. Cameron sagði af sér embætti
í kjölfar kosninganna.
Nigel Farage, leiðtogi breska
sjálfstæðisflokksins UKIP, hefur
einnig sagt af sér embætti en hann var
einn helsti talsmaður þess að Bretar
segðu skilið við Evrópusambandið.
Boris Johnson, fyrrverandi
borgarstjóri London og einn
helsti talsmaður úrsagnar Breta úr
sambandinu, hefur lýst því yfir að
hann ætli ekki að bjóða sig fram til
formanns Íhaldsflokksins í Bretlandi
eins og búist var við.
Fyrsta landið til að segja sig úr
ESB
Bretland er fyrsta aðildarríki ESB,
í 60 ára sögu þess, til að yfirgefa
sambandið. Talið er að ferlið sem
kosningunum fylgir muni taka að
minnsta kosti tvö ár og hafa víðtæk
áhrif á samninga Breta við önnur
lönd og þar á meðal Ísland.
Haft er eftir Jean-Claude
Juncker, framkvæmdastjóra
Evrópusambandsins, á BBC að
aðildarlöndin 27 sem eftir eru
muni halda sínu striki. Leiðtogar
Þýskalands og Frakklands, Angela
Merkel og Francois Hollande, segja
úrsögn Breta mikið áfall fyrir ESB en
að ríkin muni halda áfram samstarfi
við Breta þrátt fyrir úrsögnina.
Samkvæmt því sem komið
hefur fram á BBC fer andstaða
gegn Evrópusambandinu vaxandi
í Frakklandi og talið að þjóðar-
atkvæðagreiðsla verði eitt af stóru
málunum í væntanlegum stjórnar-
kosningum þar í landi. Verði aðild
að ESB hafnað í Frakklandi er talið
að Holland muni fylgja í kjölfarið.
Þýskaland, Bretland og Frakkland
eru þau lönd sem fram til þessa hafa
greitt mest í sameiginlega sjóði
Evrópusambandsins.
Gengi breska pundsins og
hlutabréfa í Evrópu féll talsvert í
kjölfar úrsagnarinnar. Pundið hefur
haldið áfram að veikjast undanfarna
daga. /VH
ATHUGÐ: Takmarkaður fjöldi véla í boði á þessu verði
Heyvinnuvélar til afgreiðslu strax
Snúningsvélar
KW 5.52/4x7 Snúningsvél - Lyftutengd - 4 stjörnu - 7 arma - Vbr 5,50 m Kr. 1.195.000,-
KW 5.52/4x7T Snúningsvél - Dragtengd - 4 stjörnu - 7 arma - Vbr 5,50 m Kr. 1.150.000,-
KWT 8.82/8 Snúningsvél - Dragtengd m/vagni - 8 stjörnu - 6 arma - Vbr 8,80 m Kr. 2.440.000,-
Rakstrarvélar
Swadro 38 - 1 stjarna - Lyftutengd - Vbr. 3,80 m Kr. 880.000,-
Swadro 48T - 1 stjarna - Dragtengd - Vbr 4,80 m Kr. 1.435.000,-
Sláttuvélar
AM 323s - Diskasláttuvél - 8 diska - Vbr 3,20 m Kr. 1.320.000,-
EasyCut 360 - Diskasláttuvél 8 diska - Vbr 3,60 m Kr. 1.390.000,-
EasyCut 400 - Diskasláttuvél 9 diska - Vbr 4,00 m Kr. 1.620.000,-
Stakar
rúlluvélar
COMPRIMA F125
Lauskjarna rúlluvél - baggahólf 125 m x 1,20 m
EasyFlow breiðsópsvinda 2,15m
Drop-Floor stíflulosunarbúnaður
Byggir á þrautrendir hönnun KRONE rúlluvéla
Breiðsópur og netbindibúnaður
Einföld vél. Afþörf frá 35 hö. Vél sem endist
Kr. 4.000.0
00,-
án VSKKr. 3.500.0
00,-
án VSK
BELLIMA 130
Allt verð er tilgreint án virðisaukaskatts, 24,0%
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið:
Óvissa meðal breskra bænda í kjölfar úrsagnarinnar úr ESB
„Breskur landbúnaður er hornsteinn matvælaframleiðslu í landinu og það
verður að standa vörð um hann,“ segir Meurig Raymond, formaður NFU.
Myndir / NFU Online