Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
C-SHIFT útgáfan er búin rafskiptingu á öllum gírum. Engin eiginleg
gírstöng og aldrei þarf að kúpla til þess að skipta um gír.
Við bjóðum nú takmarkaðan fjölda DEUTZ-FAHR Agrotron 6150.4 á sérstöku kynningarverði.
Kr. 13.500.000,-
án VSK
Allt þetta og meira til á sérstöku kynningarverði:
4 strokka, 4 lítra DEUTZ mótor 120 L/mín Load Sensing vökvadæla
153 hö, 605 Nm Power Beyond vökvatengi
C-SHIFT rafskipting, 6 gírar, 4 milligírar Rúmgott og glæsilegt hús með loftkælingu
Sjálfskiptimöguleikar Farþegasæti og drykkjakælir
Skriðgír 4 hraða aflúrtak (540/540e/1000/1000e)
Aðgerðaminni Lyftigeta á afturbeisli: 9.200 kg.
Fjaðrandi framhásing og fjaðrandi hús Dekkjastærð: 540/65R24 að framan, 600/65R38 að aftan.
50 km/klst aksturshraði
Stoll FZ45 ámoksturstæki með dempara, vökvaskóflulás, 3 sviði og 2,40 m Heavy Duty Skóflu.
Helsti búnaður:
Aukabúnaðu
r á mynd: Fra
mlyfta og fra
maflúrtak
DEUTZ-FAHR Agrotron 6150.4 C-Shift
- sívinsæl og klassísk dráttarvél
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Laxveiði fer
vel af stað
Laxveiði hefur farið vel af stað í
sumar og segir Jón Helgi Björnsson,
formaður Landssambands veiðifé-
laga, að það lofi góðu.
„Það er nokkuð áberandi að
margar ár eru að skila stórum löxum
núna í upphafi veiðitímabilsins og
það gildir líka um Vesturlandið sem
ekki er hefðbundið stórlaxasvæði.
Almennt má segja að byrjunin lofi
góðu en það gildir um laxveiði eins
og margt annað að það skiptast á
skin og skúrir, stundum veiðist vel
og stundum ekki,“ segir Jón Helgi.
Hlífa stórlaxi
Hann segir að gaman sé að sjá þá hóf-
sér hin síðari ár í veiðiskapnum.
„Menn sleppa gjarnan stórlaxi, hlífa
-
menn sýna hófsemi, það er þróun
sem smám saman hefur verið að festa
sig í sessi undanfarin ár og er vel,“
segir hann.
Vel hefur veiðst t.d. í Ytri-Rangá
en þar voru komnir á land um miðja
síðustu viku 477 laxar sem er 370
löxum meiri veiði en var 1. júlí árið
2015. Um mánaðamótin júní og júlí
í fyrrasumar höfðu veiðst 107 laxar í
Ytri-Rangá, þannig að þetta er besta
byrjun í ánni frá því Landssamband
veiðifélaga hóf að safna veiðitölum
fyrir áratug, árið 2006.
Þá fór veiði í Víðidalsá vel af stað,
hafði skilað 128 löxum samanborið
við 40 laxa um mánaðamótin júní-júlí
í fyrra. Selá og Hofsá í Vopnafirði
voru opnaðar nýverið og fór veiði
vel af stað.
Þrefalt meiri veiði í Blöndu
Veiði í Blöndu er þrefalt meiri en
var á sama tíma í fyrra, en einnig
hafa Þverá, Kjarará og Norðurá
skilað betri veiði en í fyrrasumar. Á
vefnum angling, sem Landssamband
veiðifélaga heldur úti, kemur fram að
tveggja ára lax skili sér vel haldinn
/MÞÞ
Jón Helgi Björnsson, formaður
Landssambands veiðifélaga.
„Draumur alda-
mótabarnsins“
á Eyrarbakka
Sýningin „Draumur alda-móta-
barnsins“ var opnuð í Kirkjubæ á
Eyrarbakka á þjóðhátíðardaginn
á vegum Byggðasafns Árnesinga.
Kirkjubær er hús sem stendur rétt við
Húsið á Eyrarbakka. „Byggðasafn
Árnesinga keypti Kirkjubæ árið
2011 og hefur undanfarin ár unnið
að endurbótum á húsinu og sýningar-
gerð. Safnið hefur nýtt arf Helga
Ívarssonar frá Hólum til þessa verk-
efnis. Kirkjubær er lítið bárujárns-
klætt timburhús frá 1920 byggt af
alþýðufólki og var búið í því til 1983
er það varð að sumarhúsi. Umhverfis
húsið er gróðurmikill garður,“ segir
Lýður Pálsson, forstöðumaður safns-
ins.
Það verður opið í Kirkjubæ á sama
tíma og Húsið og Sjóminjasafnið á
Eyrarbakka og er kærkomin viðbót
við sýningarhaldið. „Sýningin varp-
ar ljósi á líf almennings á tímabil-
inu 1920–40 og er bæði uppfull af
safnmunum í réttu samhengi og
skemmtilegum fróðleik um tímabil-
ið. Húsakynnin sjálf tala sínu máli,“
bætir Lýður við. /MHH