Bændablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016
Íblöndunarefni við votheysverkun
Notkun íblöndunarefna (einnig
kölluð hjálparefni) við gróf-
fóðuröflun verður sífellt algengara.
Kemur þar til að bæði eru nú á
boðstólum betri búnaður til að
koma íblöndunarefni í fóðrið og
ekki síður aukið framboð af hjálp-
arefnum.
Það eru skiptar skoðanir meðal
bænda um gagnsemi af notkun
íblöndunarefna. Sumir bænd-
ur leggja mikla áherslu á notkun
íblöndunarefna – sjá sér hag í notk-
un þeirra. Á meðan aðrir bændur
telja sig ekki hafa haft hag af notk-
un þeirra. Ástæða þess að reynsla
manna er svo ólík er einkum sú
að það er samspil ólíkra þátta sem
hefur áhrif á það hvernig tekst til
við verkun gróffóðursins. Einhver
dæmi eru um að bændur séu að nota
íblöndunarefni í of þurru fóðri. Það
er þegar þurrefni er komið yfir 55%,
þá verður ekki eiginleg votheysverk-
un í fóðrinu og því hefur íblöndun-
arefni takmörkuð áhrif á verkun og
geymslu fóðursins.
Með notkun íblöndunarefna má
bæta verkun og minnka fóðurtap.
Íblöndunarefni stuðla að hraðari
gerjun og ef vel tekst til þá geta
íblöndunarefni aukið lystugleika
fóðursins. Góðum árangri má ná
án notkunar íblöndunarefna. En þá
þarf líka að vanda verulega til verka
og hafa þekkingu á því hvað þarf til
að tryggja góða verkun.
Til að votheysverkunin heppn-
ist þurfa tvö meginskilyrði að vera
uppfyllt. Hráefnið þarf að hafa
ákveðna gerjunarhæfni og aðstæður
þurfa að vera loftfirrðar. Síðslegið
blautt gras hefur ekki mikla gerjun-
arhæfni. Það er fyrir það fyrsta lítið
af auðmeltum kolvetnum til staðar,
en þau eru nauðsynleg næring fyrir
mjólkursýrubakteríurnar sem stuðla
að hraðri gerjun og nægilegu falli
í sýrustigi til að votheysverkunin
heppnist. Mikið vatn vinnur gegn
lækkun sýrustigs. Það þarf meiri
sýru eftir því sem fóðrið er blautara
til að verkunin heppnist. Líklega var
mikið af heyforðanum sumarið 2014
svona. Gróft, úr sér sprottið, hirt
blautt og verkunin því léleg.
Það má ná verulega góðum
árangri við votheysverkun án notk-
unar íblöndunarefna. Markviss
vinnubrögð og gott hráefni tryggja
góða verkun. Hins vegar má segja að
með notkun íblöndunarefna verður
verkunin öruggari, sérstaklega þegar
hráefnið er ekki af þeim gæðum sem
við helst vildum. Gera má gott fóður
betra með notkun íblöndunarefna –
einkum með því að bæta lystugleika
fóðursins.
Mikilvægt er að hafa stjórn á
þurrefni fóðurs til að votheysverk-
un heppnist sem skyldi. Með auk-
inni forþurrkun verður sýrumynd-
un minni og meira af sykrum eftir
í fóðrinu. Jafnframt verður minna
niðurbroð á próteinum. Báðir þessir
þættir gera fóðrið lystugara. Æskilegt
þurrefni við stæðuverkun er 30–35%
þurrefni og við rúlluverkun 35–45%
þurrefni. Þegar komið er upp fyrir
25% þurrefni verður afrennsli úr
fóðri lítið sem ekkert. Tap á velli er
lægst við þurrefni á bilinu 25–35%.
Það er því ekki bara með hliðsjón af
verkun fóðursins sem skiptir máli að
þurrefnið sé á réttu bili heldur líka
þegar horft er til þurrefnistaps við
verkunina.
Það er mikil flóra til af íblöndun-
arefnum. Það má skipta þeim í fjóra
megin flokka eftir eiginleikum og
virkni. Þurrefni fóðurs og gerjun-
arhæfni þess hefur afgerandi áhrif á
val íblöndunarefna.
• Sýrandi efni (t.d. Gras AAT, Ensil).
Hér er sýru blandað við fóðrið
þannig að sýrustigið fellur hratt
og lítil sem engin virkni örvera
verður. Til eru efni í þessum flokk
sem einnig hafa virkni gegn vexti
sveppa og myglu. Þessi efni eru oft
kölluð Sýra + til aðgreiningar frá
efnum sem hafa bara sýrandi áhrif.
Megingalli við notkun þessara efna
eru að þau eru ertandi og hafa tær-
andi áhrif á vélar.
• Efnablöndur (t.d. Kofasil LG,
Kofasil Ultra)
• Lífræn efni (t.d. Sil-All, Josilac).
Þetta eru efni sem hvetja gerjun-
arferlið og innihalda gjarnar mjólk-
ursýrubakteríur og ensím. Þessi
efni eru auðveld í notkun og hafa
ekki tærandi áhrif á vélar.
• Efni sem hamla myndun
myglu (innihalda t.d. propion-
sýru, benzosýru, sorbinsýru,
Heteraógerjandi bakteríur)
Mikilvægt er að fylgja leiðbein-
ingum við notkun íblöndunarefna og
nota hlífðarfatnað þar sem það á við.
Stæðuverkun
Almennt ætti alltaf að nota íblöndun-
arefni við stæðuverkun. Ef verkunin
tekst ekki þá spillir hún miklu fóður-
magni. Við stæðuverkun gildir það að
fá sýrustigið í fóðrinu til að falla hratt.
Hér skiptir máli:
• Forþurrkun að hámarki 30–35%
• Ef þurrefni fóðurs er undir 30% er
æskilegt að nota sýrandi íblöndun-
arefni. Gott að hafa með efni sem
hamla vexti myglu og sveppa. Ef
nota á lífræn íblöndunarefni er mik-
ilvægt að þurrefni sé komið yfir
30%.
• Fylgið leiðbeiningum um skammta-
stærðir
• Notið aukið sýrumagn einkum þegar
þurrefni er lágt, hirðing tekur langan
tíma/löng flutningsvegalengd, þegar
illa gengur að þjappa, fóður er lítið
eða illa saxað, próteinríkt fóður, lítið
af sykrum í fóðri, ekki mikið fóður
tekið úr stæðu á hverjum degi við
gjafir, til að auka gróffóðurát.
Rúlluverkun
Við verkun gróffóðurs í rúllur höfum
við aðeins fleiri möguleika við val á
hjálparefnum. Hér má nota hjálparefni
úr öllum flokkum.
Mælt er með að:
• Forþurrka að lágmarki 35% þurr-
efni. Þannig að tap á velli sé sem
minnst.
• Ef þurrefni við hirðingu er undir
25% er best að nota sýru.
• Þegar þurrefni er á bilinu 25–35% er
best að nota hjálparefni sem einnig
innihalda efni sem draga úr vexti
myglu og sveppa.
• Fylgja ráðlögðum skammtastærð-
um.
Við ákveðnar aðstæður er ekki þörf
á því að nota íblöndunarefni við
rúlluverkun.
• Þegar um er að ræða mikla forþurrk-
un. Helst að pakka með 8–10 lögum
af plasti í stað 6.
• Þegar fóðrið hefur góða eiginleika til
votheysverkunar og ekki er ætlunin
að nota fóðrið fyrir gripi í mikilli
framleiðslu.
• Þegar grasið er orðið úr sér sprottið,
næringarlítið og þurrlegt.
Heimild: Einkum var stuðst við efni
í bæklingnum Ensilering sem gefinn
var út árið 2013 af Tine Radgivning.
Unnsteinn Snorri Snorrason
bútækniráðgjafi
Myndir / USS