Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 7

Bændablaðið - 07.07.2016, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2016 Þann 20. júní síðastliðinn var opnuð ljósmyndasýningin Bændur á Jökuldal á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. Ljósmyndarinn er Ragnhildur Aðal- steinsdóttir en hún er fædd og uppalin á Vaðbrekku, innst í dalnum. Sýningin hefur yfir sér látlaust yfirbragð en fangar á einstakan hátt daglegt líf bænda. Ragnhildur er búsett í Hafnarfirði en sumarið 2015 ferðaðist hún um sínar heimaslóðir og tók ljósmyndir af bændum. Hún segir þetta vera gamlan draum sem loksins rættist en ljósmyndaáhuginn kviknaði strax við 10 ára aldurinn þegar hún fékk sína fyrstu myndavél. Hún tók BA í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og skellti sér svo í ljósmyndanám til Kanada. Núna starfar hún sem blaðamaður á Vikunni. Ragnhildur segir að þetta verkefni hafi gefið sér tækifæri til að tengjast sveitinni sinni og uppruna að nýju eftir áralanga fjarveru sem sé afar dýrmæt reynsla. Áhersla var lögð á að fanga augnablik í daglegu lífi bændanna og segir hún að þeir hafi tekið sér afar vel, verkefnið hafi verið mjög skemmtilegt og gefandi. Að sjálfsögðu fjölmenntu bændur og búalið á sýninguna en hún verður opin alla daga í sumar frá kl. 8–22. Á Skjöldólfsstöðum er rekin ferðaþjónustan Á hreindýraslóðum en þar var áður heimavistarskóli sem Ragnhildur sótti fyrstu ár grunnskólagöngunnar. Ragnhildur segir að Jökuldælingar séu einstaklega skemmtilegir og virkilega gaman að njóta samverustunda með þeim enda glettnir og jákvæðir með eindæmum. Hún er stolt að tilheyra þessari sveit. Alveg óhætt er að mæla með þessari sýningu fyrir þá sem eiga leið um Jökuldalinn. /GBJ Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Í síðasta vísnaþætti birtust vísur Björns Ingólfssonar frá hagyrðingasamkomu Karlakórs Eyjafjarðar í mars sl. Þar spurði stjórnandinn Björn, hvern úr hag- yrðingahópnum hann kysi til að dæma kvenlega fegurð í kjöri fegurðardrottningar Íslands. Björn forsómaði hagyrðingana en valdi þess í stað Stefán Vilhjálmsson, einn rómaðasta kjötmatsmann íslenskra sauðfjárbænda: Mistakast okkur mun með sanni matið á hinu fagra kyni. Í þetta treysti ég engum manni öðrum en Stefáni Vilhjálmssyni. Hvað finnst Birni um þann geysilega ferðamannafjölda sem nú streymir til landsins? Fagnandi grípum við flækingana í forvitnisskyni sem koma hér, Kínverja, Íra og Ameríkana Ítali og Frakka að leika sér. Umfram allt skulum að engu flana, einkum í minni hafa ber vandlega að plokka af þeim peningana og passa að þeir skíti ekki hvar sem er. Birgir innti Björn álits á því hvernig sölu- mann hann teldi Árna Geirhjört vera? Signum fiski, hákarl‘ og hamsatólk harðfiski í alls kyns pökkum, stærri og minni treður hann upp á ótrúlegasta fólk með ísmeygilegri tungulipurð sinni. Og þegar spurt var um frækileg læknis- afrek þeirra Hjálmars Freysteinssonar og Péturs Péturssonar þá orti Björn: Það er að frétta af þessum tveim - og þar er ég ekki að plata - að hreyknastir séu þeir af þeim þremur sem fengu bata. Síðan var Björn spurður hvort þeirra hann kysi til forseta, Donald Trump eða Hillary Clinton? Hér er, Birgir, ekki um gott að gera, grundað hef ég málið alveg helling. Niðurstaðan: Hvorki vil ég vera vitleysingur eða snobbuð kelling. Lokavísa Björns þetta kvöld var þessi vísa: Hagyrðingar sem hent var á pall voru helvíti glaðir í framan og ánægðir með það sem út úr þeim vall en ekki var það nú gaman. En Björn fékk líka að flytja sitthvað æti- legt úr eldri kveðskap sínum. Sú fyrsta ort á sauðburði á Grund hjá Þórarni tengda- syni hans, en þar sinnir Björn „yfirsetu“ hvert vor: Til fjalla þær bráðum brokka og bjóða af sér góðan þokka þegar bithaginn grær goltóttar ær með augnskugga og eyrnalokka. Með hækkandi sól orti Björn þann 15. mars sl.: Sólin á himninum hækkaði um fet þá hitnaði af fögnuði jörðin, en skaflinn í brekkunni bölvaði og grét og bráðnaði og hvarf oní svörðinn. Á morgungöngu eftir þorrablót: Sennilega sofa flestir sofa jafnvel lengi enn og allir þeirra góðu gestir gamalkunnir timburmenn. Fyrir margt löngu sendi Björn tengdaföð- ur sínum, Friðbirni Guðnasyni, þessa afmælisvísu: Náttúran syngur sólskinsbrag síst gerist þörf að kvabba. Ætlar að gera sér dælt í dag Drottinn við tengdapabba. 157 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Jökuldælingar í daglegu lífi Ragnhildur Aðalsteinsdóttir við opnun sýning- arinnar. Myndir frá opnun sýningar / GBJ Guðrún á Skjöldólfsstöðum í Rangárlónsrétt á Jökuldalsheiði. Mynd / RA Ragnhildur ásamt Ingu Birnu Elísdóttur, Lilju Óladóttur og Ásdísi Jóhanns- dóttur. Feðgarnir Gunnar og Valgeir á Smáragrund. Mynd / RA hans, Aðalsteinn Aðalsteinsson, faðir Ragnhildar. Aðalsteinn Aðalsteinsson, bróðir Ragnhildar, Vilhjálmur Snædal og Sigfús Guttormsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.