Bændablaðið - 17.11.2016, Side 7

Bændablaðið - 17.11.2016, Side 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Stuttir viðtalsþættir undir heitinu „Spjallað við bændur“ eru að hefja göngu sína á vefsíðu Bændablaðsins, bbl. is. Í þáttunum er tekið hús á bændum og rætt við þá um búskapinn, hvað er efst á baugi á búinu, tæknilausnir, bústofninn og ræktunina, húsakost, vinnuaðferðir og fleira. Heiti þáttanna er hið sama og margir þekkja frá fyrri tíð þegar ráðunautar héldu úti útvarpsþáttum í Ríkisútvarpinu undir heitinu „Spjallað við bændur“ á Rás 1 sem þá var eina útvarpsstöðin. Þekktustu skólabændur landsins Í fyrsta þættinum er farið í heimsókn í Miðdal í Kjós og spjallað við Guðmund H. Davíðsson bónda. Hann og Svanborg A. Magnúsdóttir reka blandað bú með kýr, sauðfé og hross. Á vorin bjóða þau leikskólabörnum og yngstu bekkjum grunnskólans að heimsækja búið en í gegnum tíðina hafa þau tekið á móti þúsundum barna og foreldra. Bændurnir í Miðdal eru meðal á fjórða tug bænda sem kynna starfsemi sína undir merkjum Opins landbúnaðar. Það er öruggt að margir áhorfendur af yngri kynslóðinni kannast við sig í Miðdal þegar þeir sjá þáttinn. Ungir kvikmyndagerðarmenn með rætur í sveitinni Þættirnir eru gerðir af Þorsteini Roy Jóhannssyni og Herði Þórhallssyni í samvinnu við Bændablaðið. Saman reka þeir framleiðslufyrirtækið Beit sem m.a. hefur framleitt vefefni fyrir fotbolti.net og fleiri vefmiðla. Þeir félagar eru ekki nýgræðingar þegar kemur að landbúnaði en Þorsteinn er alinn upp í Svínafelli í Öræfum og Hörður í Hornafirði. Báðir eru þeir útskrifaðir fjölmiðlafræðingar frá Háskólanum á Akureyri. Gamli polkinn í endurnýjun lífdaga Einkennislag þáttarins er gamall polki, sá sami og notaður var um árabil hjá Ríkisútvarpinu í þáttunum „Spjallað við bændur“ á Rás 1. Þeir sem komnir eru til vits og ára muna sjálfsagt laglínuna sem er býsna grípandi. Flutningur polkans er í höndum hljómsveitarinnar Rússíbana sem veitti góðfúslegt leyfi fyrir notkun lagsins. Sýndir á bbl.is, Facebook og YouTube Stefnt er að því að birta tvo þætti í mánuði á bbl.is en þeim verður að auki dreift á Facebook-síðu Bændablaðsins og á YouTube. /TB Nýir þættir um störfin sem unnin eru í sveitum landsins: Spjallað við bændur á bbl.is Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Margt hefur verið ort um embættisverk presta og safnaða gegnum árin. Þórarinn í Mörtungu í V- Skaftafellssýslu orti um sr. Stefán og söfnuð hans: Séra Stefán stólnum í stundar margt að bulla. Ýtar sitja undir því ánægju með fulla. Syngur hver með sínu nefi sálma langa og glæsta. Eru sumir einu stefi á eftir þeim næsta. Og nokkuð hastarlega kvað Stefán frá Móskógum til vinar síns, sr. Lárusar Arnórssonar prests á Miklabæ: Þér líkar víst ekki, Lárus minn ljóðið mitt núna í þetta sinn, í því bitur broddur. Margt hefur skeð á Miklabæ og mér er í huga sí og æ, þú ættir að hverfa eins og Oddur. Síðar fór sá kvittur um hérað, að bein Odds hefðu fundist í fjárhússvegg í nágrenninu og hafi þá Stefán frá Móskógum ort: Margt hefur skeð á Miklabæ forðum, mannlífið breytist og gengur úr skorðum. Oft er hinn smái til upphefðar krýndur, Oddur er fundinn, en Lárus er týndur. Sigurður í Jörva meitlaði í stöku þessa römmu og þekktu staðreynd: Daglegt brauðið dauflegt er með deilu og þungum orðum. Þykir hátíð, þegar er þögn og fýla á borðum. Þegar Bjarni frá Gröf varð sextugur reið hann vestur í heiðarlönd Húnvetninga sér til upplyftingar, en svo gerði hann jafnan á þeim tíma. Páll Helgason frá Þórustöðum orti þá þessa afmælisvísu: Hreysti þína hladdu sál, hæng og gálu veiddu. Heiðarinnar huldumál heim í stuðlum reiddu. Aðstæður hafa verið Tómasi Guðmundssyni afar mótdrægar þegar hann orti: Nú má ei framar sólu sjá, svartnættið byrgir mér veginn. Helvíti er undir og ofan á og andskotinn báðum megin. Jón í Garðsvík fór eitt sinn í bændaferð til Englands undir fararstjórn Agnars Guðnasonar. Agnar gekk í fararbroddi um götur, en leit af og til um öxl til að aðgæta hvort Matthías væri ekki með. Jón orti: Hreyfi Agnar höfuðið heyrist bjallan klingja. Eltir hann að sauðasið svarmur Íslendinga. Fararstjórinn gat um gluggið séð þann góða mann, og brúnin lyfti sér, því bara ef að Matthías er með mega hinir liggja hvar sem er. Egill Jónasson orti á efri árum: Mig að leiðarlokum ber, lánum þarf að skila. Innvortis og undir mér er nú flest að bila. Jónas Jóhannsson frá Öxney orti í algleymi stríðsáranna: Íslandsmeyjar eignast jóð undan svörtum Könum. Síðan við urðum sjálfstæð þjóð sinna þær ekki Dönum. Meðan „Skjónumálið“ var í algleymi, þá orti Jón Pálmason á Akri: Ekki kosta minna mátti málabrasið þar. Þjófurinn kærði þann sem átti það, sem stolið var. 166 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Guðmundur H. Davíðsson, bóndi í Miðdal í Kjós, ríður á vaðið í fyrsta þætti Spjallað við bændur sem sýndur er á bbl.is. Myndir / Beit Það er kvikmyndafyrirtækið Beit sem framleiðir þættina Spjallað við bændur fyrir Bændablaðið. völlum verða meðal viðmælenda í Spjallað við bændur.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.