Bændablaðið - 17.11.2016, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
salmonellu, camphylobakter og
fleirum. Þessi þjónusta nýtist til
dæmis opinberum aðilum eins og
MAST og heilbrigðiseftirlitunum
við opinbert matvælaeftirlit, en
einnig einkaaðilum við innra
eftirlit, rannsóknarverkefni og
svo framvegis. Matís getur mælt
mismunandi efnategundir og örverur,
svo sem histamín, þungmálma,
næringarefni og fleira. Þessar
mælingar má gera á matvælum og
á ýmiss konar umhverfissýnum,“
segir Sveinn.
Ekki er hægt að mæla sýklalyf
í matvælum á rannsóknarstofu
á Íslandi, að sögn Sveins, en á
rannsóknarstöðinni á Keldum er þó
hægt að greina næmi örvera fyrir
sýklalyfjum.
Allar mælingar sem Matís gerir
eru eign verkkaupa; ýmist vegna
opinbers eftirlits – fyrir tilstuðlan
MAST eða heilbrigðiseftirlita og
eigendur ákveða hvort niðurstöðurnar
eru birtar eða ekki. „Niðurstöður
mælinga fyrir einkaaðila eru líka
eign verkkaupans og hefur Matís
enga heimild að opinbera þær
niðurstöður. Það er mikilvægt að
heilindi Matís séu ótvíræð í því
samhengi og reglurnar skýrar,“ segir
Sveinn.
Betri árangur í mælingum á
varnarefnum
Örugg matvæli var samstarfverkefni
Matís og MAST, en að auki tóku
íslensk og þýsk stjórnvöld þátt í því
og tvær þýskar rannsóknarstofnanir.
Ingibjörg Jónsdóttir, fagsviðs-
stjóri hjá MAST, segir að mikill
árangur hafi náðst með nýjum
mælitækjum. „Fjöldi varnarefna
sem hægt er að greina hefur aukist
úr 61 upp í 185 núna á þessu ári –
og enn er verið að bæta við efnum.
Árangurinn kemur einnig fram í
því að nú finnast oftar efni, gjarnan
efni sem ekki var hægt að greina
áður. Langoftast er það þó í magni
innan við hámarksgildi og stafar
ekki hætta af, en við vitum betur
hvernig staðan er í raun hérlendis
og getum brugðist við þegar efni
reynast vera yfir hámarksgildum.“
Örveruástand innflutts kjöts
kannað en ekki lyfjaleifar
Að sögn Ingibjargar hefur ekki
verið hægt að sinna mælingum á
sýklalyfjaleifum í íslensku kjöti hér
á Íslandi. „Vegna þess hve verkefnið
Örugg matvæli var mikið skorið
niður, miðað við fyrstu áætlanir, er
ekki hægt að sinna þeim mælingum
hér. Í stað þess var ákveðið að fræða
starfsmenn Matvælastofnunar með
það í huga að tryggja að rétt sýni séu
tekin miðað við áhættumat.
Þessar sýnatökur og eftirlit er í
fullum gangi, eins og undanfarin
ár, en rúmlega 1.000 sýni eru tekin
árlega í sláturhúsum og á bæjum
til greininga á lyfjaleifum og
aðskotaefnum. Þessi sýni eru enn
þá nær öll send utan til greiningar
og það breytist því miður ekki í
fyrirsjáanlegri framtíð. Sýnin eru
send á þrjár rannsóknastofur, tvær í
Svíþjóð og eina í Danmörku.
Varðandi innfluttar kjötvörur þá
var sett af stað rannsóknaverkefni
árið 2015, í samvinnu MAST og
Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna,
til að kanna örveruástand á innfluttu
alifuglakjöti. Niðurstöður er hægt
að nálgast á vef MAST (mast.is).
Innflutt kjöt hefur ekki verið tekið
með í eftirliti með lyfjaleifum,
þar sem það eftirlit er samkvæmt
löggjöfinni framkvæmt á býlum og
í sláturhúsum í upprunalandinu. Það
hefur reglulega komið til umræðu
að taka stikkprufur af innflutningi,
þó það hafi ekki verið gert enn,“
segir Ingibjörg. /smh
Aukabúnaður:
Gengi EUR 125-
Framlyfta, aflúttak og 2 vökvalagnir fram á kr. 760,000- án vsk
New Holland T7 dráttarvélar
Desember tilboð
Verð frá
11.420.000 + vsk
New Holland T7 eru 6 strokka frá 175 – 270 hestafla
New Holland T7 er með „AutoCommand“ stiglausri skiptingu
New Holland T7 er með 50km ökuhraða og fjaðrandi framhásingu
New Holland T7 er með frábæran aðbúnað ökumanns,
stórum snertiskjá og LED vinnulýsingu
New Holland T7 er með 4-5 rafstýrða vökvaventla og miðjuventil
New Holland T7 er með 160-210 ltr vökvadælu, „load sensing“
New Holland T7 er á flotmiklum hjólbörðum
HUGSAR ÞÚ STÓRT ?
Vélbúnaður til sölu
Við hjá Esju Gæðafæði erum með til sölu notaðan vélbúnað fyrir matvælavinnslu t.d.
kjötsagir, ofnar og Altoshaam ofna, vacum vél, kæli búnt, vegg kælar, kæliturnar,
áleggshnífar, fars hrærivélar, fjölsprautur, bakkaþvottavélar, fataskápar, loftpressur.
Ásamt mörgu öðru í vélbúnaði og tækjum.
Opið hús verður laugardaginn 19. nóv. kl. 10–15 að Tunguhálsi 15,
keyrt inn port fyrir neðan slökkvistöðina Tunguhálsi.
Upplýsingar í síma Leifur s: 8243666 eða leifur@esja.is