Bændablaðið - 17.11.2016, Side 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Mikil aðsókn í að starfa við búskap
Fyrir nokkrum misserum
kom fram í Bændablaðinu
að ímynd landbúnaðar væri
breytt í augum yngra fólks í
heiminum og að kynslóðaskipti
í landbúnaði væru greininni
jafn mikilvæg eins og í öllum
öðrum greinum til að viðhalda
jafnvægi í matvælaframleiðslu
heimsins. Þannig gerist það
oftar að unga fólkið, sérstaklega
í þróunarlöndunum, er ekki
eins áhugasamt um að starfa við
landbúnað eins og foreldrar þeirra.
Hér á landi er líflegt starf hjá
Samtökum ungra bænda (SUB)
sem telja rúmlega 300 félagsmenn
og er formaður þess, Einar Freyr
Elínarson, bjartsýnn á framtíðina
fyrir unga bændur.
Úti í hinum stóra heimi er margt
ungt fólk sem lítur á landbúnað
sem líkamlega krefjandi vinnu og
gefur því lítið svigrúm til að þróa
frama sinn innan greinarinnar. Á
sama tíma lifum við hraða tíma um
allan heim þar sem þéttbýlismyndun
heldur áfram að aukast á hverju ári
og skilur eftir færri unga bændur
á landsbyggðinni. Alheimssamtök
bænda (WFO) hafa áhyggjur af
þróuninni og segja nauðsynlegt að
laða að fleira ungt fólk í greinina.
Þetta er orðin alþjóðleg áskorun.
Sem dæmi er aldur á bændum sunnan
Sahara-eyðimerkurinnar um 55 ár
en mjög fá ungmenni á þessum
slóðum taka þátt í bústörfunum með
foreldrum sínum, þau leita í borgirnar
til að fá annars konar vinnu.
„Félagsstarfið í Samtökum
ungra bænda er misvirkt en
ákveðin svæðisfélög hafa verið
dugleg að halda fræðslufundi eða
skemmtiferðir. Eins og í öðru
getur reynst erfitt að halda uppi
virku félagsstarfi í dreifbýlinu.
Landshlutafélög SUB hafa sótt nýja
meðlimi í félagið, oft í kringum
viðburði sem haldnir eru á vegum
félaganna og hver sem er getur
skráð sig á heimasíðu samtakanna,“
útskýrir Einar Freyr.
Gott samstarf við erlend samtök
Samtök ungra bænda eru aðili að
Alþjóðasamtökum bænda (WFO)
í gegnum Bændasamtök Íslands.
Einnig er gott samband og samstarf
við norræn systursamtök.
„Það stóð til að samtökin sendu
fulltrúa á fund ungra bænda á vegum
Alþjóðasamtakanna í október en sá
fundur frestaðist og við áttum ekki
kost á að senda fulltrúa á breyttri
dagsetningu.
SUB hafa átt í góðum samskiptum
við norræna kollega. Forystumenn
norrænna ungbænda eru með hóp
á samskiptamiðlinum Facebook
þar sem við spjöllum gjarnan
saman og deilum fréttum af starfi
samtaka hvers lands. Formanni og
varaformanni SUB, ásamt fulltrúum
frá Finnlandi, var boðið á aðalfund
kollega okkar í Noregi árið 2014 og
þeir sóttu Ísland heim árið 2015,“
segir Einar Freyr og bætir við:
„Erlenda samstarfið er okkur
mjög mikilvægt og finnum við að
það auðgar kunnáttu okkar og gefur
okkur oft á tíðum góðan samanburð
um hvað er að gerast annars staðar.“
Virðing fyrir starfinu
Það er mat Alheimssamtaka bænda
að bændur og stjórnmálamenn
verði að auglýsa landbúnað sem
vitsmunalega örvandi atvinnugrein
sem getur gefið efnahagslega
sjálfbæran frama með nægum
tækifærum innan greinarinnar.
Einnig þarf að drífa unga bændur
með inn í félagsstörf bænda til að
innleiða þá enn frekar í greinina.
Er það von samtakanna að með
fjarskipta- og tölvutækni nútímans sé
hægt að breyta þessari þróun hraðar
en verið hefur til að gefa ungu fólki
nýjan skilning á því hvað það þýðir
að framleiða matvæli.
„Þróun nýliðunar á Íslandi hefur
verið svipuð og í mörgum þeim
löndum sem við berum okkur saman
við, enda hefur þróun búskapar
almennt verið færri og stærri bú. Ef
miðað er við aðsókn í nám í búfræði
og búvísindum seinustu ár mætti
ætla að aðsókn í að starfa við búskap
sé nokkuð mikil. Það er hins vegar
sorglega lítið hlutfall þeirra sem
útskrifast úr námi sem gefst kostur
á að taka við búi eða að starfa við
búskap. Það sem veldur er það sama
og alls staðar annars staðar – það er
dýrt að fjárfesta í búi. Það hefur án
efa áhrif að afkoma bænda er víða
ekki nógu góð. Lánastofnanir eru
því sjálfsagt tregari til þess að lána
til starfsemi í landbúnaði og ekki
hjálpar sá hugsunarháttur sem allt of
margir hafa tileinkað sér og flaggað
af jafn miklu stolti og þjóðfána
Íslands, að það græði enginn á því
að verða bóndi og að það sé bara allt
í lagi. Ef við erum ekki hreykin af
okkur og berum ekki virðingu fyrir
starfinu sem við innum af hendi
hvernig er þá hægt að ætlast til þess
að aðrir geri það?“ spyr Einar Freyr
og segir jafnframt:
„Það verkefni sem nú liggur
fyrir félaginu er að tryggja að nýjar
úthlutunarreglur nýliðunarstuðnings
verði þannig mótaðar að þær nýtist
sem best og tryggi að ungt fólk sem
hefur áhuga á því að brydda upp á
nýjungum eigi líka kost á því að
sækja um stuðning, ekki bara þeir
sem starfa innan hefðbundinna
búgreina. Horfurnar fyrir unga
bændur á Íslandi eru betri en þær
hafa oft verið og munu skjótt batna,
eða svo vona ég. Líkur eru á því að
uppsveifla í ferðaþjónustu muni
halda áfram um nokkurt skeið og
vonandi nær fjöldi ferðamanna
síðan jafnvægi og við upplifum ekki
harkalega niðursveiflu. Ef svo fer
halda búsetuskilyrði áfram að batna
á landsbyggðinni, eins og þau hafa
svo sannarlega gert á þeim svæðum
þar sem ferðaþjónustan er hvað
öflugust. Þetta hefur í för með sér
stóraukin tækifæri fyrir ungt fólk
sem hefur hug á því að framleiða
matvæli. Það væri afskaplega illa
spilað ef okkur tekst ekki að hagnýta
fyrir landbúnaðinn þessa uppsveiflu
í ferðaþjónustu.“ /ehg
Reykjavík GG Sjósport / Örninn reiðhjólaverslun / Lífland / Icewear / Arctic Trucks Sauðárkrókur Kaupfélag Skagfirðinga Neskaupsstaður Multitask Vík í Mýrdal Icewear Selfoss Jötunn
Bláskógabyggð Gullfosskaffi Akureyri Lífland / Jötunn / Veiðiríkið / Icewear Egilsstaðir Jötunn Húsavík Skóbúð Húsavíkur Blönduós Lífland Siglufjörður SR Byggingavörur Ísafjörður Bílaverkstæði SB
VATNSHELT
ANDAR
VINDHELT
TEYGJANLEGT
SVEIGJANLEGT
SLITSTERKT
F Y R I R Í S L E N S K A R A Ð S T Æ Ð U R
Sealskinz er breskt fyrirtæki sem framleiðir einstaka línu af vatnsheldum vörum fyrir höfuð þitt, hendur og fætur.
Sealskinz notast við 3ja laga einkaleyfisskráða tækni í prjónuðum sokkum, hönskum og húfum
til að búa til óaðfinnanlegar vörur sem eru algerlega vatnsheldar en anda engu að síður.
Einar Freyr Elínarson, formaður Samtaka ungra bænda (SUB) segir að horfurnar fyrir unga bændur á Íslandi séu betri en þær hafa oft verið og muni skjótt
batna enn frekar að hans mati. Mynd / HKr.