Bændablaðið - 17.11.2016, Qupperneq 30

Bændablaðið - 17.11.2016, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016 Súðavíkurhreppur mun á nýju ári ýta úr vör nýju verkefni í samvinnu vð embætti landlæknis, en yfirskrift þess er „Heilsueflandi samfélag í Súðavík“. Verkefnið hefur verið í gangi hér á landi frá árinu 2013 og verður Súðavíkurhreppur áttunda sveitarfélagið sem tekur þátt í því, hið fyrsta á Vestfjörðum. Heilsueflandi samfélag miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu. Þrjár meginstoðir verkefnisins í Súðavíkurhreppi verða: efling líkamlegs atgervis, andlegs atgervis og síðan efling mataræðis. Undir formerkjum líkamlegs heilbrigðis ætlar sveitarfélagið að bjóða frítt í líkamsræktina í Súðavík fyrir íbúa hreppsins. Þá verður farið af stað með frístundakort fyrir börn og unglinga þar sem greitt verður 20 þúsund króna styrkur með tómstundum barna. Hvert skráð barn í Súðavíkurhreppi hefur rétt á styrknum. Einnig verður athugað með að efla skipulagða hreyfingu í starfi eldri borgara þrisvar í viku. Til að efla andlegt heilbrigði verður boðið upp á HAM námskeið fyrir íbúa Súðavíkurhrepps á nýju ári og til að bæta mataræði mun matseðill Jóns Indíafara taka mið af heilsueflandi átaki samfélagsins. Sveitarfélagið styrkir Geisla, ungmennafélagið á staðnum, til framkvæmda á nýju ári, en félagið mun búa til nýja aðstöðu fyrir börn og unglinga. /MÞÞ Smári Stefánsson, f.h. fyrir- tækisins Sólstaða ehf., hefur óskað eftir því við sveitarstjórn Bláskógabyggðar að fá að endurgera Laugarvatnshella skammt frá Laugarvatni í þeirri mynd sem hellarnir voru þegar búið var í þeim fyrir um einni öld. Ætlunin er að endurbyggja hellana og gera þá aðgengilega gestum í eins upprunalegri mynd og mögulegt er. Glæða hann lífi á ný og koma þar með sögu og menningararfleifð til bæði heimamanna og gesta. Í erindi Smára kemur fram að árið 1910 fluttu Indriði Guðmundsson og Guðrún Kolbeinsdóttir, þá nýgift, í hellana þar sem engin jörð var á lausu í Laugardal. Þessir fyrstu ábúendur bjuggu í hellunum í eitt ár, það leið þó ekki á löngu áður en önnur hjón fluttu inn. Jón Þorvarðarson og Vigdís Helgadóttir fluttu inn 1918 og bjuggu í hellunum til 1921 og eignuðust þau þrjú börn á þessu tímabili. Bæði hjónin sem bjuggu í hellinum voru með búskap en drýgðu tekjurnar með veitingasölu enda hellarnir í alfaraleið þeirra sem ferðuðust milli Laugardals og Reykjavíkur. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur tekið jákvætt í erindið en bendir á að nauðsynlegt er að hafa góð samskipti við landeiganda, minjavörð Suðurlands og skipulagsfulltrúa á öllum stigum verkefnisins. Hugmynd Sólstaða er að koma hellunum í það horf sem þeir voru þegar búið var í þeim, það er að moka út úr þeim, byggja útvegg og innrétta hellana eins og þeir voru. Einnig verður sett upp tjald fyrir utan hellana þar sem seldar verða léttar veitingar eins og ábúendurnir gerðu forðum daga, eins að bjóða upp á hellaferðir í hraunhella í nágrenninu, einnig leiðsögn um Laugarvatnshella þar sem venjulegar íslenskar fjölskyldur bjuggu allt til ársins 1921. /MHH Hjólabúnaður Þrýstibremsur Nefhjól Læsanlegir og einfaldir beislisendar Ljós og ljósabúnaður Bremsuborðar Hjólalegur Hjólnöf Bremsubarkar Samhliða innflutningi okkar á Indespension kerrum erum við með varahluti og hluti til kerrusmíða fyrir flestar kerrugerðir, t.d. Indespension, Ifor Williams o.fl. Eigum á lager mikið úrval varahluta í helstu gerðir bremsu og hjólabúnaðar fyrir Alko og Knott. Bjóðum einnig sérpantanir. Nálægð við birgja okkar í Bretlandi tryggir skamman afgreiðslufrest á sérpöntunum. Kerruvarahlutir á góðu verði Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Um er að ræða stöðu millistjórnanda sem starfar í umboði stjórnar Ferðaþjónustunnar á Hólum. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við formann stjórnar Ferðaþjónustunnar, sem hefur yfirumsjón með stefnu hennar og starfsemi. Ferðaþjónustan rekur veitinga og gistiaðstöðu, sem og þjónustu við Háskólann á Hólum, starfsfólk hans og nemendur, auk móttöku gesta sem sækja Hólastað heim. Stefna Ferðaþjónustunnar er að sækja fram á sviði funda- og ráðstefnuhalds, sem og sértækrar mennta- og menningartengdrar ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan á Hólum hefur aðgengi að húsnæði sem hentar vel til ráðstefnuhalds. Á Hólum er fjölskylduvænt umhverfi og samfélag og á staðnum er leik- og grunnskóli. Starfið gefur einstakt tækifæri til þátttöku í uppbyggingu og eflingu ferðaþjónustu í dreifbýli, í nánu samstarfi við fagfólk Ferðamáladeildar og háskólasamfélagið. Starfs og ábyrgðarsvið: • Ábyrgð á daglegum rekstri veitingasölu, móttöku og þjónustu við nemendur skólans, og daglegum störfum ferðaþjónustunnar. • Þátttaka í daglegri umsjón ferðaþjónustu á staðnum, í samráði við stjórn Ferðaþjónustunnar á Hólum • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri í samráði við stjórn Ferðaþjónustunnar á Hólum. • Uppbygging ferðaþjónustu á Hólum samkvæmt stefnu stjórnarinnar og í nánu samráði við hana. • Önnur tilfallandi verkefni. Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun, reynsla og færni í matreiðslu og móttöku gesta. • Háskólamenntun á sviði ferðamála æskileg. • Reynsla á sviði ferðamála, stjórnunar og rekstrar æskileg. • Góð tungumála- og tölvukunnátta. • Frumkvæði, skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi. • Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða 100% stöðu til framtíðar. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2016. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 2. janúar 2017. Nánari upplýsingar veitir formaður stjórnar Ferðaþjónustunnar á Hólum, Laufey Haraldsdóttir, í síma 455-6300. Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá og staðfestingu á menntun á netfangið umsoknir@holar.is, merkt ferðaþjónusta. Ferðaþjónustan á Hólum í Hjaltadal auglýsir lausa stöðu matreiðslumanns og móttökustjóra Vilja endurbyggja Laugarvatnshella fyrir ferðamenn Laugarvatnshellar milli Þingvalla og Laugarvatns. Mynd / HKr. Málverk af Laugarvatnshellum sem málað var af Erlu Sigurðardóttur eftir ljósmynd frá 1921. Súðavíkurhreppur verður „heilsueflandi samfélag“ Súðavík við Álftafjörð. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.