Bændablaðið - 17.11.2016, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Lesendabás
Vegagerð í Öræfum
Öræfingar og landsmenn fagna
því að búið er að smíða nýja
tvíbreiða brú yfir Morsá í stað
Skeiðarárbrúar sem hefur þjónað
okkur í meira en 40 ár. Eftir að
Skeiðará færði sig yfir í Gígjukvísl
árið 2009, þá hefur ekki verið þörf
fyrir 880 metra langa einbreiða
brú yfir gamla farveg Skeiðarár,
því Morsá er að venju vatnslítil.
Brúin yfir Morsá er tilbúin, en
þar sem ekki er til fjármagn hjá
Vegagerðinni til að klára tvær
stuttar vegtengingar að brúnni, þá
þarf að bíða til sumarsins 2017 að
taka hana í notkun. Það er slæmt
að þurfa að bíða til næsta sumars,
því Skeiðarárbrú er orðin hættuleg
vegfarendum. Í framhaldi af nýrri
brú yfir Morsá og miklar breytingar
á farvegum jökuláa í Öræfum þá er
skynsamlegt að hugleiða hvernig
framtíðar veglína í gegnum
vesturhluta Öræfa gæti orðið.
60 ára gömul veglína
Staðsetning núverandi vegar yfir
Skeiðarársand og að Skaftafelli var
ákveðin upp úr 1970 og í framhaldi
var hringvegurinn opnaður 1974.
Vegasamgöngur á milli Skaftafells
og Fagurhólsmýrar opnuðust 1954
með brú á Skaftafellsá og er því
veglínan yfir 60 ára gömul. Í dag
eru 22 einbreiðar brýr í Austur-
Skaftafellssýslu og þar af eru átta
í Öræfum.
500.000 ferðamenn
Mikil umferð er um Öræfin enda
er þar að finna tvo af vinsælustu
ferðamannastöðum á Íslandi,
Skaftafell og Jökulsárlón, meira
en 500.000 ferðamenn heimsækja
þessa staði. Ferðaþjónustan vex hratt
í Öræfum, á annan tug fyrirtækja
er með ferðaþjónusturekstur, fjöldi
hótelherbergja hefur margfaldast
og opið er í þjónustumiðstöðinni í
Skaftafelli allt árið.
Í Öræfum búa að staðaldri um
65 manns og hefur þeim farið
fjölgandi á undanförnum tveimur
árum. Á síðasta sumri voru yfir 200
sumarstarfsmenn í vinnu í Öræfum.
Umferðarmagn og umferðarhraði
hefur aukist mjög mikið síðan
Skaftafellsá, Svínafellsá, Virkisá
og Kotá voru brúaðar um miðja
síðustu öld.
Stóraukin bílaumferð
Á síðustu fimm árum hefur sumar-
umferð bifreiða aukist um 100%
og vetrarumferð um 150%, þessi
þróun mun halda áfram á næstu
árum. Ofsaveður geta orðið í
Öræfum og er Sandfell þekktur
staður í þeim efnum, með aukinni
umferð ferðamanna allt árið þá er
hætta á að slysum muni fjölga þar
sem veður eru válynd.
Nú er kominn tími til að ákveða
framtíðar veglínu í gegnum Öræfin,
með markmið að stytta hringveginn,
fækka einbreiðum brúm og bæta
búsetuskilyrði. Núverandi vegur
er 25 km langur og liggur hann
frá Morsá að Skaftafelli, framhjá
Hótel Skaftafelli og bensínstöðinni
í Freysnesi, vestan við byggðina
í Svínafelli og Hofi. Með færslu
hringvegarins vestur að flæðisléttu
Skeiðarársandar er hægt að stytta
lengd vegarins, fækka brúm,
bæta öryggi vegfarenda og
búsetuskilyrði bænda í Öræfum.
Sífellt erfiðara er að stunda
hefðbundinn búskap á stöðum þar
sem aðalbraut með mikilli umferð
sker í sundur heimalönd bænda.
Ný veglína og stytting vegar
Með því að færa veglínuna 2–2,5
km vestar en núverandi vegur þá
mun ný veglína stytta leiðina úr 25
km í 19 km. Stytting hringvegarins
um 6 km þýðir að arðsemi
framkvæmdanna verður mikill.
Margt bendir til að þegar vegstæði
er fært fjær fjalllendi Svínafells
og Sandfells þá eru minni hættur
á sterkum vindhviðum og má því
áætla að slysum muni fækka.
Lagt er til að brúarstæði
Skaftafells- og Svínafellsár verði
þar sem árnar mætast á flæðisléttu
Skeiðarársands. Brú á Virkisá verði
um 2 km fyrir vestan núverandi brú
og ný brú yrði á Kotá vestan við
Háöldu. Nýr vegur yrði vestan við
túnin á Hofi og tengdist núverandi
vegi skammt frá nýlegri brú yfir
Gljúfursá við Fagurhólsmýri. Með
því að færa veginn út á flæðisléttu
Skeiðarársands þá verður auðvelt
að setja upp fjárhelda girðingu
meðfram veginum.
Leggja þarf af einbreiðar býr
Frá Fagurhólsmýri að Jökulsárlóni
eru fjórar einbreiðar brýr, brýrnar
yfir Hólá og Stígá eru aðeins 16
metra á lengd og því hættulegar,
ekki er langt síðan að banaslys
var við Hólá og alvarlegt slys við
Stígá. Það er kominn tími til að
þessar tvær brýr heyri sögunni til.
Skorað á sveitarstjórn
Í aðalskipulagi Sveitarfélagsins
Hornafjarðar 2012–2030 er gert
ráð fyrir breytingum á veglínu í
landi Freysness og Svínafells.
Að mínu mati gengur sú tillaga
ekki nógu langt og skora ég því
á sveitarstjórn Hornafjarðar að
gera breytingar á aðalskipulaginu
og marka nýja stefnu í vegagerð í
Öræfum.
Fyrirhuguð vegaframkvæmd
á milli Morsár og Gljúfursár er
matskyld og er því mikilvægt
fyrir Vegagerðina að hefja
undirbúning við matið í framhaldi
af aðalskipulagsbreytingunni. Í
samræðum mínum við Öræfinga
og sveitarstjórnarfulltrúa á Höfn
þá eru þeir almennt fylgjandi
breytingu á veglínu á milli Morsár
og Fagurhólsmýrar.
Ragnar Frank Kristjánsson,
lektor við Landbúnaðarháskóla
Íslands.
Bjó í Skaftafelli á árunum
1998–2007 og er jökla-
mælingar maður í Öræfum.
Ný veglína samkvæmt hugmynd Ragnars en með henni væri hægt að stytta hringveginn og fækka brúm.
Myndir / RFK
Hér sést niður á þjóðveginn við Svínafell og í fjarska hægra megin á myndinni
glittir í Freysnes og Skeiðarársandur blasir við í vestri.