Bændablaðið - 17.11.2016, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2016
Út er komin bókin „ Þar sem Björkin
dafnar“, saga kvenfélagsins
Bjarkar í Hjaltastaðaþinghá á
Fljótsdalshéraði í 85 ár.
Kvenfélagið Björk var stofnað
árið 1930 og voru stofnfélagar 14.
Hjaltastaðaþinghá var á þessum
tíma vegalaus og ár enn óbrúaðar.
Þegar í upphafi höfðu félagskonur
háleit markmið um tilgang félagsins
sem var einkum að efla samhug og
samvinnu kvenna í sveitinni og
stuðla að framförum í garðrækt
og heimilisiðnaði. Má segja að
vel hafi til tekist, þegar á fyrstu
árum félagsins keypti það spunavél
sem mikið var notuð og stóð fyrir
fræðslu um matjurtarækt og nýtingu
grænmetis.
Fljótlega hófu konurnar að safna
fé til byggingar félagsheimilis í
sveitinni. Árið 1934 stofnuðu þær
fjárbú sem sennileg á fáa sína líka.
Hver félagskona fóðraði eina á og
gaf allar afurðir hennar til félagsins,
hver ær um sig var formlega eign
kvenfélagsins og átti félagið sitt
eigið fjármark. Þetta var um árabil
helsta tekjulind félagsins. Auk
þessa söfnuðu konurnar fé með
öðrum hætti, s.s. kaffisölu og
skemmtanahaldi.
Bygging félagsheimilisins
Hjaltalundar hófst árið 1944 og
lagði kvenfélagið til fjórðung þess
fjár sem húsið kostaði. Félagið
hefur stutt Hjaltalund æ síðan og
gefið þangað ýmsan búnað. Gaman
er að segja frá því að þegar kom
að því að setja upp gluggatjöld
og sviðstjöld í Hjaltalundi safnaði
kvenfélagið ull af fjárstofni sínum,
sendi til ullarverksmiðjunnar
Gefjunar og fékk til baka ullarvoð
sem félagskonur saumuðu tjöldin
úr. Kvenfélagið rak fjárbú sitt
allt til ársins 1988 þegar sauðfé í
hreppnum var skorið niður vegna
riðuveiki. Kvenfélagið Björk hefur
einnig stutt Hjaltastaðarkirkju með
góðum gjöfum og gefið fé til líknar-
og menningarmála bæði innan
sveitar og utan. Það hefur alla tíð
haft í heiðri hugsjónir kvenfélaganna
að stuðla að bættu mannlífi og láta
gott af sér leiða hvar sem þörf hefur
verið. Árið 1930 voru 207 íbúar í
Hjaltastaðaþinghá en þeir eru nú
einungis 57. Tíu konur eru nú í
kvenfélaginu Björk en formaður þess
er Sólveig Björnsdóttir í Laufási.
Það má kalla talsvert þrekvirki
fyrir lítið kvenfélag að ráðast í
bókaútgáfu en með því viljum
við félagskonur leggja okkar af
mörkum til að varðveita sögu
forvera okkar. Í bókinni eru myndir
og æviágrip allra kvenna sem verið
hafa í félaginu frá upphafi, auk
margvíslegs annars efnis, ljóða og
frásagna eftir félagskonur, ágrip af
sögu félagsins, gamanmál og fleira.
Margar ljósmyndir prýða bókina.
Félagskonur söfnuðu sjálfar öllu efni
í bókina og bjuggu hana til prentunar,
við það nutu þær ómetanlegrar
aðstoðar Arndísar Þorvaldsdóttur
fyrrverandi starfsmanns hjá
Héraðsskjalasafninu á Egilsstöðum.
Bókin, sem er 144 blaðsíður,
var prentuð hjá Héraðsprenti á
Egilsstöðum.
Þeir sem vilja eignast bókina geta
sent póst á netfangið siggalaufey@
simnet.is eða haft samband við
Sigríði í síma 892-9434.
Vorið 1991 snýr Ágúst Bergsson
heim á Skagann eftir misheppnaða
dvöl í New York. Hann flosnaði
upp úr kvikmyndanámi og stóð
í erfiðum sambúðarslitum við
sænska kærustu sem reyndist ekki
öll þar sem hún var séð.
Í gamla heimabænum virðist
fátt annað bíða en foreldrahús,
fiskvinnsla og alltumlykjandi grámi.
Ástin er þó aldrei langt undan. En á
hún aðeins erindi við aðra?
Í þessari leiftrandi skemmtilegu
skáldsögu Orra Harðarsonar er
brugðið húmorísku ljósi á líf ungs
manns sem þarf að læra að fóta
sig upp á nýtt
og finnur
þá gamlar
tilfinningar
vakna í
b r j ó s t i .
Um leið
einkennist
sagan af
djúpri hlýju
og hispur-
s leysi, þar
sem lipur-
legur stíll
og ósvikin
frásagnargleði
skila persónum
og sögusviði ljóslifandi til lesenda.
Fyrsta skáldsaga Orra,
Stundarfró, kom út 2014
og hlaut verðskuldað lof
gagnrýnenda og lesenda. Hún
var meðal annars tilnefnd til
Menningarverðlauna DV sem
skáldverk ársins.
Sögur útgáfa gefur bókina
út.
Endurfundir
– önnur skáldsaga Orra Harðarsonar
Þar sem Björkin dafnar
Ævintýraóperan Baldursbrá
Út er komin hjá Veröld bókin
Baldursbrá, saga byggð á
ævintýraóperunni eftir Gunnstein
Ólafsson. Mynddiskur með
óperunni fylgir.
Baldursbrá vex
og dafnar í gróinni
lautu en fyllist
mikilli löngun til
að sjá sólarlagið
sem blasir við ofan
af ásnum. Með
hjálp Spóa og
Rebba kemst hún
þangað – en lendir
í miklum háska
á þessum nýju
slóðum. Fjörugir
yrðlingar koma
við sögu og
H r ú t u r i n n
hræðilegi sem
má ekkert aumt
sjá án þess
að vilja éta það. Sagan byggist
á ævintýraóperunni vinsælu
Baldursbrá og er skreytt myndum
eftir Freydísi Kristjánsdóttur.
Bókinni fylgir mynddiskur
með upptöku
frá sýningunni
í Hörpu
með texta
á íslensku,
ensku, þýsku,
dönsku, frönsku
og ungversku.
Baldursbrá
er 31 blaðsíða
að lengd.
Anna Cynthia
Leplar sá um
kápuhönnun og
hönnun innsíðna.
Bókin er prentuð
í Slóveníu. ISBN
978-9935-475-
28-2.
Út er komin hjá
Veröld bókin
H r a k n i n g a r
á heiðavegum
eftir þá Pálma
Hannesson og Jón
Eyþórsson.
Hið rómaða
stórvirki Hrakn-
ingar og heiðavegir
eftir þá Pálma
Hannesson og Jón
Eyþórsson er fyrir
löngu orðið sígilt
verk um öræfi
Íslands og ótrúlega
baráttu landsmanna
við óblíða náttúru.
Bækurnar hafa
verið ófáanlegar
um langt árabil
en nú hefur
verið safnað
saman úrvali af
hrakningasögum
úr verkinu.
Hér er að
finna magnaðar
frásagnir af
h r a k n i n g u m
manna víðs
vegar á landinu
og frá ýmsum
t ímum. Í
sumum tilfellum eru þetta sögur
af hreystimennum, oftar þó af
venjulegu fólki – körlum og
konum – sem þurfti að takast á
við vægðarlaus náttúruöflin fjarri
mannabyggð.
Grípandi og átakanlegar
frásagnir sem kalla fram ískaldan
spennuhroll, undrun og aðdáun.
Hrakningar á heiðavegum er
282 blaðsíður að lengd. Eyjólfur
Jónsson sá um umbrot og hönnun
innsíðna, Jón Ásgeir hannaði
kápuna.
Bókin er prentuð hjá
ScandBook, Svíþjóð. ISBN 978-
9935-475-33-6.
Barátta við óblíða náttúru
Það er að
koma út
ný bók frá
Vasaútgáfu
Flóka forlags.
flokiforlag@
i nt erne t . i s .
Hún ber nafnið
Vasagrín fyrir
golfara og
guðhrætt fólk.
Til að létta
ú g á f u n n i
róðurinn fyrstu
mánuðina hefur
verið efnt til
söfnunar, sem er
í raun bókaútsala
á vefnum: www.
karo l ina fund .
com.
Þar má kaupa Vasagrínið og
Vasapésa partýljónsins sem kom út
í fyrra. Bækurnar eru þarna á góðu
verði, um 60–70% af útsöluverði
eftir magni.
Nú bið ég um stuðning við þetta
verkefni, sem undirritaður ber alla
ábyrgð á. Í fyrsta lagi fara inn á:
https://www.karolinafund.com/
project/view/1566 og athuga hvort
einhver af kostunar leiðunum þar
hentar þér og styrkja þannig.
Í þriðja lagi með því að liggja
ekki á þessum fréttum hvar sem
þið komið.
Söfnun af þessu tagi er undir
for merkjunum: Allt eða ekkert. Því
skiptir miklu að fá góðar
undirtektir svo tilskilin
upphæð náist, því annars
fellur söfnunin niður.
Hér er komin kær-
komin viðbót í jólapakka
golfarans.
Með bestu kveðjum,
Pétur Bjarnason
Vasagrín fyrir golfara og guðhrætt fólk
− Óskað eftir stuðningi við verkefnið í gegnum Karolina fund
MENNING&LISTIR
Almanak
Háskóla Íslands 2017
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Almanak
Þjóðvinafélagsins 2017
ALMANAKHins íslenskaþjóðvinafélags
2017
Árbók Íslands
2015
143. árgangur
ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 2017 - ÁRBÓK 2015
Fást í helstu bókaverslunum um land allt
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook