Bændablaðið - 17.11.2016, Síða 56

Bændablaðið - 17.11.2016, Síða 56
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. febrúar 2014 Eflum íslenskan landbúnað! Íslenskir bændur framleiða fjölbreyttar búvörur sem eru þekktar fyrir gæði og ferskleika. Metnaður bænda stendur til þess að sjá þjóðinni fyrir sem mestu af þeim matvælum sem hún þarfnast og hægt er að framleiða innanlands. Landbúnaðurinn er hornsteinn byggðanna og hefur víðtæk margfeldisáhrif í atvinnusköpun um allt land. Á næstu árum er mikilvægt að b í haginn að íslenskur landbúnað vaxi og dafni. Mál sem brenna á bændum Fylgstu með bændum á Facebook, á bondi.is og bbl.is Bætum kjörin Kjör bænda eru þeirra stærsta hagsmunamál. Að fá sanngjarnt endurgjald fyrir sínar vörur er lífsspursmál fyrir alla sem koma að matvælaframleiðslu. Íslenskir bændur keppa ekki við þjóðir þar sem áherslan er lögð á stórrekstur í landbúnaði. Okkar styrkleikar felast í gæðunum og því að geta framleitt búvörur við góð skilyrði. Nýir búvörusamningar Markmið nýrra búvörusamninga eru að auka verðmætasköpun, treysta byggð og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins í þágu bænda, neytenda og samfélagsins alls. Í samningunum er kveðið á um stuðning við búvöruframleiðslu sem ætlaður er til að lækka vöruverð til neytenda og gera bændum kleift að framleiða úrvalsvörur. Hvað þarf að metta marga munna? Grunnspá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir nærri 440 þúsund íbúum á Íslandi árið 2065. Því er spáð að árið 2065 komi um 5 milljónir ferðamanna til landsins. Þessar tölur sýna svart á hvítu að hér þarf að framleiða eða flytja inn meiri mat. Sterkur innlendur landbúnaður gegnir lykilhlutverki við að mæta aukinni þörf fyrir matvæli. Fjárfestingar í landbúnaði Bætt aðgengi að lánsfjármagni á hagstæðum kjörum er eitt mikilvægasta atriðið við nýliðun og uppbyggingu í landbúnaði. Framundan er veruleg endurnýjunarþörf á framleiðsluaðstöðu margra búa, samhliða aukinni eftirspurn eftir ýmsum framleiðsluvörum landbúnaðarins Nýsköpun og þróun Þekking, reynsla, sérhæfing og fagmennska er lykillinn að blómlegum landbúnaði. Uppbygging landbúnaðar- háskóla er bændum mikilvæg og grunnur að því að byggja atvinnugreinina upp til framtíðar. Nýjar búgreinar og fjölbreyttar áskoranir krefjast aukinnar þekkingar, rannsókna og þróunar. Upprunamerkingar á matvörum Íslenskir neytendur eiga kröfu til þess að vita hvaðan matvörur koma og hvort þær eru framleid- dar á heilnæman hátt í sátt við náttúru og samfélag. Aðgengile- gar og réttar upplýsingar eru samofnir hagsmunir bænda og neytenda. Áskoranir í matvælaframleiðslu og umhverfismálum Það er hverri þjóð nauðsyn að reka öflugan landbúnað. Nýjar áskoranir blasa við matvælaframleiðendum um allan heim sem þurfa að bregðast við aukinni eftirspurn eftir mat og breyttum umhverfisþáttum. Íslenskir bændur vilja nýta auðlindir landsins með sjálfbærni að leiðarljósi. Umræðu um loftslagsmál þarf að efla á Íslandi og bregðast við þeim vandamálum sem steðja hratt að heimsbyggðinni í kjölfar hlýnunar jarðar. Hluti af búvöruframleiðslu íslen- skra bænda er fluttur á erlenda markaði. Árið 2015 voru tekjur af útflutningi búvara 57 milljarðar króna. 6,3 milljarðar króna. Töluverður innflutningur er á búvörum til Íslands og hann hefur aukist hratt á síðustu misserum. Alþjóðlegir samningar kveða á um ákveðið magn án tolla. Einn mælikvarði á lífskjör er hversu stórt hlutfall útgjalda neytenda af heildarútgjöldum fer til kaupa á matvælum. Kaup á matvörum vega um það bil 13,3% í útgjöldum íslenskra heimila. Meðaltalið í 28 ESB-lön- dum er 14%.* Íslendingar verja lægri hluta útgjalda sinna til matvælakaupa en Finnar, Svíar og Frakkar. Útgjöld neytenda til kaupa á íslenskum búvörum eru um 5,7% heildarútgjalda. Allt grænmeti, bæði innflutt og innlent er1% af heildarútgjöldum * Hlutfall af neyslu án húsnæðiskostnaðar. Heimild: Eurostat, 2016 Heimildir: Hagstofa Íslands Fjöldi lögbýla og bænda Verðmæti útfluttra búvara Verðmæti landbúnaðarframleiðslu Innflutningur á búvörum Útgjöld Íslendinga til matvælakaupa Aðbúnaður og velferð dýra Á Íslandi er í gildi mjög framsækin löggjöf um aðbúnað og velferð dýra sem í sumum tilfellum gengur lengra en í samkeppnislöndunum. Bændur vilja standa undir því trausti sem neytendur hafa sýnt þeim og það þýðir að dýravelferð verður að vera í fyrsta sæti. 2.800 tonn af kartöflum 2.550 tonn af erlendu kjöti 266 tonn af ostum 55 tonn af jógúrti 13.000 tonn af grænmeti Heildarverðmæti búvöruframleiðslunnar árið 2015 var tæpir Ríkisútgjöld til landbúnaðar Útgjöld vegna stuðnings við landbúnað á Íslandi fara lækkandi. Fyrir 30 árum voru þau 5% af landsframleiðslu en núna 1,1%. Heildarútgjöld hins opinbera til landbúnaðar voru 16,9 milljarðar króna árið 2015. Það eru 1,78% af útgjöldum ríkisins. 6.700 lögbýli eru skráð á Íslandi 3.150 bú framleiða vörur af ýmsu tagi 3.900 manns starfa í landbúnaði eða 2,1% fólks á vinnumarkaði. 10.000 störf tengjast landbúnaði úa svo ur

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.