Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 1
Íslenskir bændur í sóknarhug – framleiðsluvirði landbúnaðarins jókst um 2,2% milli ára:
Nær 31 þúsund tonn af kjöti
voru framleidd á síðasta ári
– Framleiðslan jókst um 3,3% og kjötsala frá afurðastöðvum jókst um 6% milli ára
Samkvæmt tölum Búnaðarstofu
MAST jókst heildarframleiðsla
á kjöti á Íslandi um nær þúsund
tonn frá 2015 til 2016, eða úr tæp-
lega 29.870 tonnum í 30. 847 tonn.
Það er 3,3% framleiðsluaukning
frá árinu 2015.
Sala á kjöti frá afurðastöðvum
jókst hins vegar meira, eða um 1.500
tonn, sem gerir 6% aukningu milli
ára. Hún var rúmlega 25.170 tonn
árið 2015 en fór í 26.675 tonn á
síðasta ári.
Mest aukning í nautgripakjöti
Langmest aukning var í framleiðslu
á nautgripakjöti á síðasta ári eða um
21,7%. Var heildar nautakjötsfram-
leiðslan rétt tæplega 4.387 tonn á
móti tæplega 3.074 tonnum árið
áður. Salan frá afurðastöðvum var
nokkurn veginn í takt við fram-
leiðsluaukninguna.
Aukin framleiðsla og sala á
kindakjöti
Mest var framleitt af kindakjöti,
þ.e. lambakjöti og af fullorðnu fé,
eða samtals rúmlega 10.375 tonn.
Er það 1,9% aukning á milli ára.
Sala á kindakjöti frá afurðastöðv-
um á innanlandsmarkaði jókst um
4,3% frá árinu 2016 og var tæplega
6.742 tonn.
Aukning í alifuglakjöti
Í öðru sæti er alifuglakjöt, en af því
voru framleidd rúmlega 9.014 tonn
á síðasta ári sem er 8,2% aukning
frá árinu 2015. Sala á alifuglakjöti
frá afurðastöðvum jókst enn meira,
eða um 8,8%, þannig að gengið var
á birgðir.
Samdráttur í svínakjöti
Í þriðja sæti er svo svínakjötsfram-
leiðslan. Af því voru framleidd
tæplega 6.089 tonn. Vekur athygli
að töluverður samdráttur var í
svínakjötsframleiðslunni á milli ára
eða sem nam 717 tonnum. eða um
-10,5%. Þá varð um 3,6% samdráttur
í sölu á svínakjöti frá afurðastöðv-
um á milli ára. Skýrist samdrátturinn
trúlega af samkeppni við stóraukinn
innflutning á svínakjöti eins og sjá
má í umfjöllun á bls. 15.
Aukin hrossakjötsframleiðsla
Aukning var í framleiðslu á hrossa-
kjöti á síðasta ári eftir 20,9% samdrátt
á árinu 2015. Þannig jókst framleiðsla
á hrossakjöti úr tæplega 946 tonnum í
rúmlega 982 tonn, eða um 3,8%. Sala
á hrossakjöti frá afurðastöðvum jókst
enn meira, eða um 8,8%. Virðist því
vera að skapast aukin eftirspurn eftir
hrossakjöti á innanlandsmarkaði.
Framleiðsluvirði jókst um 2,2%
Áætlað heildarframleiðsluvirði land-
búnaðarins jókst um 2,2% á árinu
2016 samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Var framleiðsluvirðið 65,9
milljarðar á grunnverði, þ.e. að með-
töldum vörustyrkjum en frátöldum
vörusköttum.
Búfjárrækt skilar 44 milljörðum
og nytjaplönturæktun 18
Virði afurða búfjárræktar er talið vera
44,3 milljarðar króna og þar af vöru-
tengdir styrkir og skattar um 10,8
milljarðar króna. Virði afurða nytja-
plönturæktar eru tæpir 17,8 milljarðar
og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar
316 milljónir króna. Aðfanganotkun
landbúnaðarins í heild er áætluð 44,3
milljarðar árið 2016 og jókst um
6,9% frá fyrra ári.
Aukningu í framleiðsluvirði árið
2016 má rekja til magnbreytinga. En
breytingu á notkun aðfanga má rekja
til 5,9% magnaukningar og 1,0%
hækkunar á verði.
Framleiðsluverðmæti landbúnað-
arins árið 2015 er metið 64,6 millj-
arðar á grunnverði miðað við upp-
færðar tölur og er það heildarlækkun
um 2,4% frá fyrra árinu, 2014. Þessa
lækkun má rekja til 0,1% magnaukn-
ingar og 2,6% lækkunar á verði.
/HKr.
Þorvaldur Snorrason og eiginkona hans, Sigríður Sigurðardóttir, hafa, ásamt systur Sigríðar, Rögnu Sigurðardóttur, og hennar manni, Kristni Alexanderssyni, keypt Garðyrkjustöð Ingibjargar
í Hveragerði. Horfa þau fram á bjarta tíma, m.a. vegna þess að pottablóm eru aftur komin í tísku eftir um tveggja áratuga áhugaleysi. – Sjá nánar á bls. 2 Mynd / HKr.
14
Dýrahjálp
Íslands er
dýraverndari
ársins 2016
22
4. tölublað 2017 Fimmtudagur 23. febrúar Blað nr. 485 23. árg. Upplag 32.000
Matís fagnar 10 ára afmæli
28–29
Þar sem kyrrðin og
róin ræður ríkjum