Bændablaðið - 23.02.2017, Side 2

Bændablaðið - 23.02.2017, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Blómabærinn stendur áfram fyrir sínu: Nýir eigendur komnir að Garðyrkjustöð Ingibjargar í Hveragerði – Tvær fjölskyldur með öflugan bakgrunn í garðyrkju hafa tekið við rekstrinum Garðyrkjustöð Ingibjargar í Hveragerði, sem var í eigu hjón- anna Ingibjargar Sigmundsdóttur og Hreins Kristóferssonar, hefur nú skipt um eigendur. Fóru eigendaskiptin formlega fram 1. febrúar, en stöðin verður rekin áfram að mestu með óbreyttu sniði. Það eru tvenn hjón sem keypt hafa stöðina og hafa þau mikla reynslu af garðyrkjustörfum. Það eru þau Þorvaldur Snorrason og eigin- kona hans, Sigríður Sigurðardóttir, ásamt systur Sigríðar, Rögnu Sigurðardóttur, og hennar manni, Kristni Alexanderssyni. Þorvaldur þekkir vel til rekstursins á stöðinni, enda hefur hann starfað þar í sex ár. Þær Sigríður og Ragna eru uppaldar við garðyrkjustörf, en þær eru frá Fagrahvammi í Hveragerði. Þorvaldur segir að stöðin hafi verið til sölu um hríð og þegar þeim hjónum hafi gefist tækifæri til að koma þar inn hafi þau slegið til. Enda telja þau mjög bjart fram undan í þessum geira. Þá kunna fastir starfsmenn stöðvarinnar einnig vel til verka og m.a. með menntun bæði frá Garðyrkjuskólanum í Hveragerði og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Góð tíðindi „Það eru vissulega góð tíðindi þegar það næst að selja svona stöðvar og halda þeim í rekstri. Nú er búið að skrifa undir og formlega fóru skipt- in fram 1. febrúar. Við höfum síðan verið að ganga endanlega frá ýmsum lausum endum,“ segir Þorvaldur. Hann segist hafa verið viðloðandi garðyrkjuna allt frá því hann útskrif- aðist úr Garðyrkjuskólanum rúm- lega tvítugur. „Þá var konan líka alin upp við þetta í Fagrahvammi og eins systir hennar.“ Annatími blómabænda Nú er háannatími íslenskra blóma- bænda sem versla með afskorin blóm. Verið var að ganga frá síð- ustu sendingunum af túlípönum í verslanir fyrir konudaginn þegar tíð- indamaður Bændablaðsins rak inn fréttamannsnefið í Garðyrkjustöð Ingibjargar á fimmtudag í síðustu viku. Þorvaldur sagði að sem stæði væri allt á rúi og stúi, en nú yrði farið að undirbúa pottablómin og vorkomuna. Þorvaldur segir að gróðrarstöðin sé með rekstur á þremur stöðum í Hveragerði auk þess sem þau leigi stöðina í Fagrahvammi. „Undir plasti og gleri eru líklega um 10 þúsund fermetrar og síðan eru útisvæði.“ Hann segist bjartsýnn á framhaldið, enda séu þau með góða samninga við Garðheima, Ikea, ýmsar blómabúðir og nokkur sveitarfélög. Við erum þannig bæði með heildsölu og síðan mikla heimasölu hér á staðnum. Það sem hefur verið að gerast nú síðustu tvö árin er stóraukin sala á pottaplöntum. Pottablómin eru að verða vinsæl á nýjan leik á Íslandi eftir ríflega 20 ára doða. Unga fólkið sem nú er að flytja í sínar íbúðir er að gera eins og amma þeirra gerði sem var með allt fullt af blómum. Svo óx hér upp kynslóð fólks sem vildi engin potta- blóm og þá átti allt að vera líflaust og „sterilt“ með marmara í hólf og gólf. Nú er áhuginn fyrir blómun- um að kvikna aftur og við finnum mjög mikla aukningu. Við erum t.d. að senda svolítið af pottaplöntum í verslanir núna sem er óvenjulegt, því á þessum árstíma hefur nánast ekkert verið um slíkt. Aukningin í pottaplöntusölunni eykur því bjart- sýnina hjá okkur. Þá hefur sumarblómasalan alltaf verið að aukast. Hún fór ekki niður í efnahagshruninu og salan á afskorn- um blómum hélst að mestu leyti. Hins vegar minnkaði trjáplöntusalan þá reyndar aðeins.“ Erum á mörkum hins mögulega í ræktun ávaxtatrjáa – Hefur fólk ekki verið að prófa sig eitthvað áfram í ræktun ávaxtatrjáa? „Slíkt var feikivinsælt á tímabili. Sumrin 2014 og 2015 voru mjög köld og þá datt salan á ávaxtatrjám niður. Fólk lenti í vandræðum með þessi tré og víða drápust þau. Við búum hér á mörkum þess að það sé mögulegt að rækta slík tré. Þó gæti dugað að vera með kalt (ókynt) plasthús til að rækta í. Eða að vera með mjög skjólgóðan garð þannig að trén séu vel varin fyrir öllum veðr- um. Vindkæling og umhleypingar fara illa með slík tré og við búum bara á mörkum þess mögulega hvað það varðar. Þó er einn og einn sem náð hefur góðum árangri og það er bara vegna þess að þeim hefur tek- ist að búa til gott skjól. Það er svo erfitt að treysta á veðurfarið hér. Við fengum mjög gott sumar í fyrra en tvö sumur þar á undan voru bæði köld og rigningarsöm. Þá vitum við aldrei hvernig vorið er. Það getur hæglega gert slæm hret í vor þótt fátt bendi til þess í þeirri sérstöku blíðu sem verið hefur síðustu vikur. Vegna þessa góða veðurs hefur fólk verið að velta fyrir sér vorverkum í görðum, en það er engan veginn tímabært,“ segir Þorvaldur. Grunnurinn lagður 1953 Garðyrkjustöð Ingibjargar er ein af stærstu stöðvunum í blóma ræktinni á landinu. Grunninn að garðyrkju- stöðinni lögðu foreldrar Ingibjargar, þau Sigmundur K. Guðmundsson og Kristín Jónsdóttir, en þau reistu 100 fermetra gróðurhús í bakgarðin- um hjá sér árið 1953. Fljótlega var ráðist í upp- byggingu og endurbætur á stöð- inni og árið 1984 keyptu hjónin garðyrkjustöð að Heiðmörk 38. Þar var byggður 150 fermetra sölu- skáli og sett upp rúmgott sölusvæði fyrir garðplöntusölu. Við kaupin jukust möguleikar á fjölbreytni í framleiðslu. Úrval garðplantna var stóraukið og pottablómaræktun tekin upp. Garðplöntuframleiðslan samanstendur nú af ræktun sumar- blóma, trjáa, runna, rósa, fjölærra blóma og matjurta og úrvalið er alltaf að aukast. Árið 1991 bættist við reksturinn ein elsta garðyrkjustöð landsins, Grímsstaðir. Þar var um að ræða 1.100 fermetra undir gleri auk stórs útisvæðis undir trjá- og sum- arblómaræktun. Síðan bættist við Snæfell, þá Rósakot, Lindarbrekka og Akur. Garðyrkjustöð Ingibjargar byggði lengi vel á grunni 8 eldri garðyrkjustöðva og er nú sam- tals 6.000 fermetrar undir gleri, auk 4.000 fermetra í plasthús- um, ræktunarsvæðis með vermi- reitum og sölusvæði. Breytingar hafa þó orðið hin síðari ár þar sem búið er að selja tvær stöðv- ar og Lindarbrekka brann árið 2010. Í staðinn voru gróðurhús í Fagrahvammi tekin á leigu. Til að byrja með voru stöðu- gildin í Garðyrkjustöðinni um 1 1/2 ársverk. Nú starfa um 6-10 manns í fullu starfi allt árið í garðyrkju- stöðinni og annað eins bætist við yfir sumarvertíðina. Þar sem hluti garðplönturæktunar er árstíða- bundinn er breytt um framleiðslu- tegund um mitt ár. Frá janúar til júlí eru ræktuð sumarblóm, en frá júlí til desember eru húsin nýtt undir græðlingatöku og jólastjörnurækt- un. Þá eru laukblóm, s.s. túlípan- ar, páskaliljur og hýasintur, einnig þáttur í framleiðslunni. Afurðir garðyrkjustöðvarinnar eru seldar í smásölu að Heiðmörk 38 og í heildsölu vítt og breitt um landið. /HKr. Fréttir Nú fyrir skemmstu tilkynnti Krónan um að tekist hefði á einu ári að minnka sóunina um 53 prósent; úr 300 tonnum matvæla niður í 140 tonn. Krónuverslanirnar lögðu á síð- asta ári af stað með verkefni til að minnka matarsóun í sínum verslun- um með því að selja matvörur sem eru að renna út á tíma á niðursettu verði. Matarsóun er stórt vandamál um allan heim. Þriðjungi framleiddra matvæla er sóað í þessum heimi þar sem einn af hverjum níu jarðarbúum þjáist af vannæringu á degi hverjum, samkvæmt upplýsingum frá FAO, Landbúnaðar- og matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna. Minnst matarsóun í landbúnaði Samkvæmt nýlegum gögnum frá Umhverfisstofnun um matarsóun á Íslandi, sem eru sambærileg gögn- um frá öðrum Evrópulöndum, er mesta sóun á mat hjá gististöðum og í veitingarekstri, þarnæst í mat- vælaframleiðslu og þá á heimilum. Þar á eftir koma skólar, heilsustofn- anir, heildsala og smásöluverslanir, en minnst er sóun í landbúnaði. /smh Krónan minnkar matarsóun um 53% – Minnst matarsóun í landbúnaði Myndir / HKr. Mynd / Krónan Nú styttist í ársfund Bænda- samtakanna en hann verður haldinn á Akureyri föstudaginn 3. mars í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður blásið til opinnar ráðstefnu um landbún- að og bændahátíðar um kvöldið. Tekið er við miðapöntunum á bændahátíðina fram til mánaða- móta á bondi.is. Ráðstefnan er öllum opin og ekki þarf að skrá sig né borga aðgangseyri að henni. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Búskapur morgundagsins“. Þemað er tækni, nýsköpun og framtíð land- búnaðarins. Á bændahátíðinni um kvöldið verður þriggja rétta veislumáltíð í boði og skemmtikraftar halda uppi fjörinu. Miðaverð er einungis 7.500 kr. fyrir félagsmenn BÍ. Fullt verð er 8.900 kr. Nánari upplýsingar um ársfund- inn og dagskrána er að finna á www. bondi.is og í auglýsingu hér í blaðinu á bls. 33. Miðapantanir er hægt að gera í síma 563-0300 og á bondi.is til og með 28. febrúar. /TB Ársfundur BÍ í Hofi: Bændahátíð og ráðstefna

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.