Bændablaðið - 23.02.2017, Page 7

Bændablaðið - 23.02.2017, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Tómataræktendunum í Friðheimum var á dögunum veittur sá heiður að vera boðið á hinn árlega tómatavið- burð í Berlín, The Tomato Inspiration Event, sem haldinn var á dögunum. Þangað er boðið þeim 100 tómatar- æktendum í heiminum sem þykja hafa skarað fram úr hvað varðar frum- kvöðlastarf og nýsköpun. Það eru þau Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttir sem eiga og reka Friðheima, en þar er einnig hesta- búgarður og veitingastaður. Á meðal tíu efstu Knútur segir að það hafi komið skemmtilega á óvart að fá boðsbréf á viðburðinn. „Þegar við fengum boðið fórum við að skoða hvað stæði á bak við þennan viðburð og í ljós kom að þarna voru öflugir styrktaraðilar að baki og að þetta var alvöru viðburður. Þetta eru styrktaraðilar, sem flestir starfandi í þessum geira eiga viðskipti við með einum eða öðrum hætti. Þetta eru aðil- ar sem selja til dæmis lífrænar varnir og stýri- og tölvukerfi fyrir gróðurhús. Þessir aðilar mynda ráðgjafahóp sem síðan velur þennan lista. Það er auðvitað mikil upphefð í því að vera á þessum lista. Það er einhver sem hefur bent á okkur og hvað við erum að gera. Svo erum við bara skoðuð – þær upp- lýsingar sem liggja fyrir – og á endanum er ákveðið að bjóða okkur að vera með. Þegar á aðalviðburðinn var komið var hópurinn þrengdur niður í 30 ræktendur, svo niður í tíu og að lokum eru fimm aðilar sérstaklega heiðraðir. Hollenska fyrirtækið Greenco hlaut svo flest atkvæði sem voru greidd um efsta sætið. Þeir eru tómataræktendur en eru líka í framleiðslu á tómatvörum, sem við höfum reyndar líka verið að færa okkur yfir í. Það er gaman að segja frá því að við feng- um upplýsingar um það í lok hátíðarinnar, frá áreiðanlegum heimildarmanni, að við hefðum lent á meðal þeirra tíu efstu,“ segir Knútur. Mikill vöxtur í aðsókn ferðamanna „Í þessum efstu sætum voru mjög áhugaverðir ræktendur; einn er frá Dubai sem rekur sína stöð úti í eyðimörkinni og sinnir inn- anlandsmarkaði og stór stöð frá Kanada sem er að gera svipaða hluti og við varð- andi það að taka á móti gestum líka og kynna garðyrkjuna. Það sem horft var til þegar við vorum valin á þennan lista var það hvað við höfum opnað stöðina okkar mikið. Í fyrra tókum við á móti 135 þúsund gestum sem við sögðum frá hvað við erum að fást við. Um leið erum við auðvitað að kynna garð- yrkju almennt, hvar sem hún er stunduð í heiminum,“ segir Knútur. Fjórar tómatategundir ræktaðar Friðheimar eru í Reykholti í Bláskógabyggð, í um 90 km frá Reykjavík. Þar eru ræktaðar fjórar tegundir af tómöt- um, auk þess sem þar er rekinn veitinga- staður þar sem uppistaða hráefnisins eru afurðir tómataræktunarinnar. Mikill vöxtur hefur verið í aðsókn ferðamanna í stöðina og til að mæta honum þarf að fjölga starfsfólki. „Já, við þurfum að fjölga starfsfólki sem starfar yfir allt árið og eins sumarstarfsfólki. Við erum líka með vinsælar hestasýningar hérna sem þarf mannskap í kringum. Þær byrja svona í kringum miðjan apríl og eru svo reglulega fram í lok september eða byrjun október. En við bjóðum reyndar upp á hesthúsaheim- sóknir allt árið og þá er bara ein manneskja frá okkur sem tekur á móti gestunum, segir frá uppruna og sögu íslenska hestsins, séreinkenn- um og notagildi. Svo leggur knapi á einn hest og svo er farið út á völlinn okkar og allar fimm gangtegundirnar okkar sýndar og útskýrðar í leiðinni. Þetta er svona persónulegri nálgun. Í vetur höfum við verið með um 25 hópa í viku með þessu sniði,“ segir Knútur. /smh Friðheimar heiðraðir í Berlín fyrir frumleika og nýsköpun Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM Þ á er Góan gengin í garð. Í fyrsta sinn þessa febrúarmánaðar mylgr-ar nú niður snjó við Eyjafjörð. Það verða að teljast tíðindi og mikil umskipti. Því verður nú einnig breytt um bragarhátt í þessum þætti. Einhver liprasti limru- smiður við Eyjafjörð er hann Davíð Hjálmar Haraldsson. Hans er því sviðið í þessum vísnaþætti: Nú klaki og þeli þána og þynnast öll svell og blána og ég heyrði í gær um hrút sem varð ær því hann komst ekki yfir ána. Er Hallgerður hönd sína gaf Helga (með krukkur og staf sem hann tæpast fær leynt) hann trompaðist hreint og tafarlaust hjó‘ana af. Þessa limru nefnir Davíð „Sköpunarsagan í hnotskurn“: Er Guð bjó til einfaldan apann tók ómælistíma að skap‘ann og þróa í mann en maðurinn fann að bragði upp byssu og drap‘ann. --- Hann Hallgrímur hálfblindi á Nögl oft himbrima drepur og gögl með tvíhleypu góðri (fær tugi í róðri) en tittliga ef knappt er um högl. --- Kvað Albert „ég orðinn er skröggur, þó er í mér dálítill töggur. Ég elskaði tvær í einu í gær og aftur en þá var ég snöggur.“ Minning: Um fjallveg og freðjökul rann‘ann og fimmtíu maraþon vann‘ann. Á hraðferð um Fljót loks hrasaði um grjót og tófan var fljótust og fann‘ann. Á vordögum oft lagðist út ei ærkind á fjallinu Strút við kjarngrös og skjól en kom heim um jól en ekkert er ort hér um hrút. Blánuðu börðin á skötum, á bala kom fjöldi af götum, tin varð að mold og tófum reis hold er Steingerður fækkaði fötum. Smjörið er kolgrænt í kúpunni og kasúldin bringan á rjúpunni á veitingastað en verst er þó að kokkurinn situr í súpunni. Óperusýning á Scala: Sesselju, sópran frá Hala, er syngur í Tosca á Scala, tilbiðja flestir tónleikagestir en Þorsteini þykir hún la la. Petra er prúð svo að dá hana prestar, og enginn má fá hana, en úti í hlöðu í angandi töðu þið ættuð með Jóni að sjá hana. Atli var illkvittinn sauður, ófrómur, lyginn og blauður. Umbreyttist hann í öndvegismann í útfararræðunni, dauður. Í uppsveitum Önundarfjarðar ég æfingar stundaði harðar. Þar var svo bratt að þegar ég datt þá var rúm tomma til jarðar. 172 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com xx Knútur Rafn á hátíðinni í Berlín. Helena Hermundardóttir, Martin Eyjólfsson, sendiherrann í Berlín og Knútur Rafn Ármann.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.