Bændablaðið - 23.02.2017, Síða 10

Bændablaðið - 23.02.2017, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Heiða Guðný Ásgeirsdóttir frá Ljótarstöðum í Skaftártungu og Hafliði Sævarsson frá Fossárdal í Berufirði eru nýkomin heim eftir sex vikur á Nýja-Sjálandi þar sem þau tóku m.a. þátt í heimsmeistarakeppninni í rún- ingi. Bæði stóðu þau sig frábærlega. Hafliði hafnaði í 39. sæti af 56 keppendum og Heiða Guðný, sem var eina konan í keppninni, lenti í 55. sæti. Öttu kappi við mjög reynda rúningsmenn Þau voru að keppa við mjög reynda og snögga rúningsmenn. Hver keppandi rúði 15 kindur og var það síðan hlutverk dómaranna að fara yfir verkið og gefa einkunn. Rúningur á Nýja-Sjálandi er gerólíkur því sem þekkist á Íslandi og því þurftu Heiða og Hafliði að læra allt aðra tækni en þau eru vön. Þau fóru því á námskeið hjá heimamönnum áður en keppnin sjálf hófst. Reynslunni ríkari Bæði segj- ast þau reynslunni ríkari eftir k e p p n i n a , aðstæðurnar á Nýja-Sjálandi hafi verið frábærar og þau hafi fengið góðar móttökur hjá mótshöldurum og heimamönnum. /MHH Fréttir Á næstu dögum munu Bændasamtökin senda út gíró- seðla vegna félagsgjalda samtak- anna fyrir árið 2017. Guðbjörg Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá BÍ, segir að undirbúningurinn gangi vel. Töluverð vinna hefur staðið yfir við að yfirfara félagatal og aðlaga tölvukerfi í tengslum við breytingarnar og kynna þær fyrir bændum. Hægt er að yfirfara skráningar inni á Bændatorginu en frestur til þess að gera leið- réttingar á félagatalinu hefur verið framlengdur til 27. febrúar nk. „Vinnan við uppfærslu félagatals fyrir Bændasamtökin hefur gengið vel og bændur hafa verið virkir í því að yfirfara sína félagsaðild inni á Bændatorginu. Við höfum feng- ið fjölda fyrirspurna og símtala frá bændum sem eru að velta þessum málum fyrir sér,“ segir Guðbjörg. Hún segir jafnframt að margir hafi nýtt sér þann valmöguleika að senda fyrirspurn eða erindi í gegnum Bændatorgið eða með tölvupósti. „Það hefur verið ánægjulegt hversu margir bændur hafa hringt til að ráðfæra sig við starfsfólk samtak- anna varðandi félagsaðildina. Við ákváðum að gefa félagsmönnum aðeins lengri frest til þess að gera leiðréttingar á sínum skráningum, eða til mánudagsins 27. febrúar. Þeir sem ekki hafa nú þegar yfir- farið sína aðild eru hvattir til þess,“ segir Guðbjörg. Félagsmenn fá sendan greiðslu- seðil í pósti um næstu mánaðamót ásamt kynningarbréfi um félags- gjöldin. Fyrir flesta félagsmenn verður upphæðin 42.000 krónur. Þeir sem vilja skipta greiðslum gefst kostur á því og er bent á að hafa sam- band við BÍ í síma 563-0300, senda skilaboð í gegnum bændatorgið eða með tölvupósti á bondi@bondi.is. Að auki er bændum bent á upplýs- ingar inni á bondi.is. Fuglaflensa af H7N9 stofni herjar á Kínverja: Er farin að smitast manna á milli – 100 manns létust af völdum fuglaflensu í janúar Óvenju skæður fuglaflensufar- aldur hefur verið í Kína þar sem veiran af stofni H7N9 hefur borist bæði í fugla og menn. Í lok jan- úar höfðu 100 manns látist af völdum fuglaflensunnar sem er mun skæðari en þegar fuglaflensa greindist fyrst í mönnum árið 2013. Þá urðu 79 dauðsföll af völdum veirunnar. Þeir sem smitast geta orðið mjög veikir og nærri einn af hverjum þrem sem smitast deyja. Kínversk stjórnvöld hafa hvatt almenning til að forðast markaði þar sem verslað er með alifugla. Haft var eftir NI Daxin, yfirmanni smitsjúkdómamiðstöðvar Kína í China Daly, að algeng smitleið væri með lifandi alifuglum eða af kjöti af nýslátruðum fuglum. „Ef fólk keypti aðeins frosið kjöt, þá væri mun auðveldara að koma í veg fyrir faraldur,“ sagði NI Daxin. Viðskipti með kjúklinga hafa verið stöðvuð í borgunum Guangzhou í suðri og Changsha í Mið-Kína. Einnig í austurhluta Zheijiang-héraðs og á fleiri stöðum. Tilkynnt var um 35 smittilfelli í Zheijiang-héraði einu saman í janúar að sögn ríkisreknu fréttastofunnar Xinhua. Flest smit sem vitað er um hafa borist í fólk sem hefur komist í snertingu við fugla, eða fuglaúrgang á mörkuðum. Þó hafa í það minnsta tvö tilvik verið tilkynnt síðan í sept- ember þar sem um smit milli manna var að ræða. Nokkur hræðsla hefur gripið um sig í Kína vegna fuglaflensunnar, en viðbrögð fólks eru æði misjöfn. Sumir neita að viðurkenna hættuna á meðan aðrir fyllast skelfingu út af venjulegi kvefi. /HKr. Heimsmeistarakeppnin í rúningi á Nýja-Sjálandi: Heiða Guðný og Hafliði stóðu sig frábærlega Mynd / MHH Bændur fá brátt senda gíróseðla vegna félagsgjalda BÍ: Er þín félagsaðild rétt skráð? Mynd / TB

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.