Bændablaðið - 23.02.2017, Side 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Massey Ferguson
Meiriháttar dráttarvélar fyrir meiriháttar bændur
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar
og fáið sérsniðna vél að ykkar þörfum.
Til á lager MF5610 , MF5613 og MF6615 Það er ekki að ástæðulausu að Massey Ferguson er ein mest selda dráttarvél undanfarinna ára.
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Skógafoss:
Tímabundin lokun
göngustígs
Álag á göngu-
stígum við
Skógafoss hefur
verið gríðarlegt
í vetur vegna
mikils ferða-
mannastraums.
Hlýindi og
vætutíð hafa
gert það að verkum að göngustígar
hafa vaðist upp í leðju og hætta
hefur verið á verulegum skemmd-
um á viðkvæmri náttúru svæðisins.
Umhverfisstofnun lokaði göngu-
stígnum á Skógaheiði þann 9. des-
ember síðastliðinn tímabundið fyrir
ferðamönnum með það að markmiði
að vinna að viðeigandi verndarráð-
stöfunum, t.d. með því að byggja
þar upp malargöngustíg.
Ljóst er að framkvæmdir á
Skógaheiði munu taka tíma og
spilar veðráttan þar stórt hlutverk.
Umhverfisstofnun hefur ákveðið að
göngustígurinn verði lokaður næstu
vikurnar, eða til 17. mars næstkom-
andi, eða þar til verndarráðstöfunum
er lokið og óhætt verður að hleypa
umferð fólks aftur inn á svæðið.
Lokunin er samkvæmt 25. gr. a. laga
um náttúruvernd. /MÞÞ
Innflutningur á kjöti
jókst um 12,9% 2016
Kjötmarkaðurinn 2016
Sala á Hlutdeild
innlendri innlendrar
framleiðslu Innflutn.* Sala alls framleiðslu Innflutningur
Alifuglakjöt 81% 19%
Svínakjöt 78% 22%
Nautakjöt 80% 20%
Kindakjöt 100% 0%
Hrossakjöt 100% 0%
Samtals 79% 21%
Aðrar innfl. kjötvörur
Innflutningur á kjöti af nautgrip-
um, svínum og alifuglum (kalkún-
um og kjúklingum) árið 2016 nam
samtals 2.931 tonni. Jókst inn-
flutningurinn um 12,9% frá 2015
þegar hann nam 2.597 tonnum.
Enn fremur voru flutt inn 287
tonn af unnum kjötvörum sem að
uppistöðu er kjöt af fyrrnefndum
tegundum. Þar varð lítils háttar
samdráttur frá fyrra ári þegar inn-
flutningur nam 305 tonnum.
Innflutt kjöt er að stærstum hluta
beinlaust, þ.e. úrbeinað kjöt. Til að
umreikna það til jafngildis við sölu
á kjöti í heilum skrokkum hefur
innflutningur verið umreiknaður í
skrokka og er reiknað með að nýt-
ingarhlutfall kjöts sé um 60% af
skrokki.
Þegar leiðrétt hefur verið fyrir
þessu nemur hlutdeild innflutts kjöts
í heildarmarkaði 21% árið 2016. Þar
við bætast svo unnar kjötvörurnar.
Heildar kjötmarkaðurinn á árinu
2016 skiptist eins og sjá má í með-
fylgjandi töflu á eftirfarandi hátt
niður á kjöttegundir.
Útflutningur til margra landa
Alls voru flutt út 2.781,6 tonn af
lambakjöti að verðmæti 1.826 millj-
ónir króna. Meðalverðmæti fob nam
656 kr/kg. Útflutningur í magni er
mestur til Bretlands en þangað fóru
810 tonn en um 80% af því eru fryst
úrbeinuð lambaslög.
Til Noregs fóru 550 tonn, að
stærstum hluta fryst lambakjöt í
heilum skrokkum. Þriðja stærsta
viðskiptalandið eru Færeyjar með
322 tonn. Í 4.–6 sæti. eru Spánn,
Rússland og Bandaríkin í þessari röð.
Af afurðum er útflutningur mestur á
frystum úrbeinuðum slögum 27% og
lambakjöt í heilum skrokkum, nýtt
og fryst 28%.
Hrossakjöt var flutt út til 7 landa,
alls 272 tonn að verðmæti 92 millj.
kr. Útflutningur á skyri nam 1.261
tonni að verðmæti 491 m.kr. Um 450
tonn fóru til Sviss og 322 tonn til
Bandaríkjanna.
Æðardúnn var fluttur út til 9
landa. Mikilvægasta landið er Japan
en þangað fór 63% af framleiðslunni.
Heildarútflutningur nam 3.382 kg að
verðmæti 694 m.kr., eða rösklega
205.000 kr/kg. Þá nam útflutnings-
verðmæti minkaskinna 746 milljón-
um króna. /EB/HKr.