Bændablaðið - 23.02.2017, Side 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Ný stjórn Landsmóts hesta-
manna, sem fram fer í Reykjavík
2018, hefur ráðið Áskel Heiðar
Ásgeirsson framkvæmdastjóra
mótsins.
Áskell Heiðar er menntaður
landfræðingur frá Háskóla Íslands,
með diplómu í opinberri stjórn-
sýslu frá HÍ og MA gráðu í ferða-
málafræði og viðburðastjórnun frá
Háskólanum á Hólum og Leeds
Metropolitan University.
Áskell Heiðar hefur skipulagt
fjölda viðburða hérlendis á undan-
förnum árum t.d. tónlistarhá-
tíðina Bræðsluna, auk þess að
stýra Landsmóti hestamanna sem
fram fór á Hólum í Hjaltadal sl.
sumar. Þá kennir hann einnig við-
burðastjórnun og ferðamálafræði
við Háskólann á Hólum og Háskóla
Íslands.
Fákur mun alfarið sjá um
mótshaldið
Mótið mun marka ákveðin tímamót
í rekstri Landsmóta, en þetta verð-
ur í fyrsta sinn sem Landssamband
hestamannafélaga mun ekki sjá um
mótið, heldur mun hestamannafé-
lagið Fákur sjá alfarið um móts-
haldið með dyggum stuðningi
Reykjavíkurborgar líkt og á síðustu
Landsmótum sem haldin hafa verið
í Reykjavík.
Fákur hefur stofnað sérstakt
félag, LM 2018 ehf., og skipað
því sérstaka stjórn sem mun stýra
skipulagningu mótsins, en í henni
sitja; Sigurbjörn Magnússon, for-
maður, Hjörtur Bergstað, varafor-
maður, Ingibjörg Guðmundsdóttir,
ritari og meðstjórnendur eru Katrín
Pétursdóttir, Sigurbjörn Bárðarson,
Haukur Baldvinsson, Áshildur
Bragadóttir og Hrólfur Jónsson.
Búist er við miklum fjölda
gesta á Landsmótið sem fram fer
fyrstu vikuna í júlí 2018 og að sögn
Áskels Heiðars verður fyrsta verk-
efni að undirbúa sölu á aðgöngu-
miðum og pökkum fyrir erlenda
gesti þar sem hægt verður að kaupa
gistingu með aðgöngumiðunum.
Þá mun nú fara af stað vinna við
að virkja þann mikla kraft sem
býr í hestamönnum og koma af
stað starfshópum sem taka að sér
ákveðin verkefni í undirbúningi
mótsins.
„Landsmót er samvinnuverk-
efni þar sem mjög margir leggja
hönd á plóg og hér í Reykjavík eins
og víða annars staðar er til mikill
mannauður og mikil þekking á
svona mótahaldi, það verður mitt
stærsta verkefni á næstu mánuðum
að virkja þennan mannauð,“ segir
Áskell Heiðar.
Landsmótið í Reykjavík verður
það 23. í röðinni en það fyrsta var
haldið á Þingvöllum árið 1950.
Síðast fór Landsmót hestamanna
fram í Reykjavík árið 2012.
Fréttir af FEIF-þingi:
Nýjar vinnureglur við kynbótadóma
HROSS&HESTAMENNSKA
Ársfundur FEIF (alþjóðasamtaka
Íslandshestafélaga) var haldinn
3.–4. febrúar og að þessu sinni í
Finnlandi. Fjölmargir fulltrúar frá
aðildarlöndum FEIF sóttu fundinn
og þótti hann takast vel.
Á aðalfundi FEIF og einnig á
sérstökum fundi ræktunarleiðtoga
FEIF-landanna var rætt um fjölmörg
atriði er varða ræktunarmál; m.a.
skipulag kynbótasýninga, nafngiftir
hrossa og nýjar vinnureglur við kyn-
bótadóma sem taka gildi strax í vor.
Nýjar vinnureglur við
kynbótadóma
Tvær nýjar vinnureglur við kyn-
bótadóma sem komu frá fagráði í
hrossarækt voru teknar til umræðu
á þinginu. Þær voru báðar sam-
þykktar og taka því gildi strax í
vor. Fyrri vinnureglan á við dóma
á vilja og geðslagi. Það hefur verið
í gildi vinnuregla sem segir að fari
hrossið ítrekað lengra en afmörkun
brautar segir til um geti það haft áhrif
á dóma á vilja og geðslagi. Þetta
hefur ekki þótt nægilega skýr regla
og ekki nógu vel til þess fallin að
dómnefndir meðhöndli á samræmd-
an hátt þegar hrossi er riðið ítrekað
lengra en afmörkun brautar segir til
um. Ástæðan fyrir þessari reglu er sú
að gera dómnefndum betur kleift að
sjá þegar hrossið er hægt niður í enda
brautar og snúið við en það er mikil-
vægt við mat á þjálni. Ef hrossinu er
riðið lengra en afmörkun brautarinn-
ar sjá dómarar ekki niðurhægingar
og viðsnúninga nægilega vel og að
sjálfsögðu merki um óþjálni sé ekki
hægt að hægja hrossið niður og snúa
við innan brautar. Því hefur verið
ákveðið að taka í gildi skýrari reglu
um þetta atriði til að bæta mat á vilja
og geðslagi. Reglan er sem hér segir:
Til að bæta mat á samstarfsvilja
og þjálni skal, fyrir hærri einkunnir
fyrir vilja og geðslag, horft til þess
að hrossið sé hægt niður á fet í við-
snúningum á brautarendum. Ef ekki
er hægt að hægja hrossið niður og
snúa við innan afmörkunar braut-
arinnar, þá er 8.0 hámarks einkunn
fyrir vilja og geðslag. Þó má gera
undantekningu þegar um sýningu á
mjög greiðu stökki og skeiði er að
ræða svo fremi að niðurhægingin
sé mjúk og átakalaus. Hverfi hross
úr sjónsviði dómara eða sýnir mikla
óþjálni er 7.0 hámarkseinkunn fyrir
vilja og geðslag. Til að hljóta hækk-
un fyrir vilja og geðslag á yfirlitssýn-
ingu þarf að sýna greinilega fram á
að hægt sé að hægja hrossið mjúkt og
átakalaust niður innan afmörkunar
brautarinnar.
Það er merki um þjálan og mik-
inn vilja ef hægt er að hægja niður
á fet á flestum gangtegundum í enda
brautar og spinna hrossið upp til
afkasta endurtekið í plús og mínus
átt hestsins. Það skal því horft til þess
ef hinar hærri einkunnir eru gefnar.
Hámarkseinkunn er sett sem 8.00
sé hrossinu riðið út fyrir afmörkun
brautar en það er gert vegna þess
að þá sér dómnefndin viðsnúninga
í brautarendum ekki nægilega vel og
takmarkar matið á þjálni hestsins.
Undantekningu má gera á þessari
reglu ef hrossinu er riðið til mikilla
afkasta á skeiði og stökki. Það er gert
til að bjóða afrekshrossum, ungum
sem eldri, möguleika á hestvænum
niðurhægingum. En það er að því
gefnu að hraðinn sé afar mikill og
niðurhægingin eigi sér að mestu stað
innan brautar.
Hvað varðar mat á skeiði var
ákveðið að bæta við nýrri vinnureglu
en hún er þessi:
Þegar einkunnir 8.5 eða hærri
eru gefnar fyrir skeið skal hestinum
greinilega riðið á stökki í aðdraganda
skeiðsins og hann tekinn niður á
skeið af stökki. Einnig skal horft
til þess að hesturinn sé í jafnvægi í
niðurhægingu.
Þessi regla er sett til þess að bæta
mat á skeiði; takti og líkamsbeitingu
hestsins á skeiði. Tölt og skeið eru
líkar gangtegundir að svo mörgu
leyti og því er til bóta við mat á skeiði
að sjá að hægt sé að losa aðeins um
hestinn á stökki áður en hann er tek-
inn niður á skeið. Það skilur á milli
hesta sem eru snjallvakrir og eiga
auðvelt með líkamsbeitingu (snið)
sem skilar svifi og þeirra hrossa sem
þarf að stífa af og renna inn í skeið af
tölti til að sækja svif í gangtegund-
ina. Einnig er þetta íslensk reiðhefð
og krafa sem gerð er til hrossa í
keppni til hærri einkunna; hvort sem
það er í fimmgangi, gæðingakeppni
eða gæðingaskeiði. Hugmyndin með
því að fara fram á að hesturinn sé í
jafnvægi í niðurhægingu er ekki sú
að fara fram á útfærslu á skeiðsprett-
um líkt og í gæðingaskeiði, heldur
að sjá að hesturinn sé í andlegu og
líkamlegu jafnvægi á skeiðinu og
hvellstytti sig ekki í enda spretts.
Skipan dómnefnda
Þá var formlega samþykkt breyting
á reglum FEIF um skipan formanna
í dómnefndir á kynbótasýningum um
heim allan. Þessi nýja regla kveður
á um að skipaður verði hópur 12
dómara og verður nauðsynlegt að
velja einhvern úr þessum hópi til
að gegna formennsku í hverri dóm-
nefnd. Valið mun byggja á reynslu
þeirra og þekkingu og verður þessi
hópur valinn af kynbótadómaranefnd
FEIF til tveggja ára í senn. Þetta er
stórt skref í átt að enn betra samræmi
í dómstörfum á milli sýninga og
landa og tryggir viðunandi reynslu
í hverri dómnefnd.
Nafngiftir hrossa
Einnig var samþykkt regla
um nafngiftir íslenskra hrossa en
ákveðið var að öll FEIF-löndin sam-
einist um að halda í þá hefð að skíra
íslensk hross íslenskum nöfnum. Það
hefur reyndar verið í gildi sú regla
fyrir skráningar í WorldFeng að nöfn
hrossa skuli samræmast íslenskri
nafnahefð en ákveðið var að herða
aðhaldið í kringum þessi mál og taka
í gildi skýrari reglu. Í WorldFeng er
nafnabanki með fleiri þúsund nöfn-
um sem sífellt er í vinnslu og verið
að bæta góðum og gildum nöfnum
þar inn. Við grunnskráningu hrossa
í heimarétt er hægt að skrá nöfn
sem eru í nafnabankanum en ef
þau eru ekki þar þurfa skrásetjarar
WorldFengs að sjá um skráninguna.
Þar er því ákveðin sía en gildum
nöfnum sem hugmynd kemur um
verður svo bætt jafnóðum í bankann.
Miðað við nafnareglur hjá mörgum
öðrum hestakynjum er þetta afar ein-
föld regla og setur ræktendum lítil
takmörk hvað nafngiftir varðar. Hún
er sem hér segir:
Hestaeigendur geta skráð nafn á
hross sín í WorldFeng. Hross verð-
ur að nefna áður en þau eru sýnd
í kynbótadómi eða í keppni sem
er skráð í WorldFeng og því nafni
er ekki hægt að breyta eftir þetta.
Nafni er ekki hægt að breyta eftir að
hrossið hefur eignast skráð afkvæmi.
Hestaeigendur geta haft nafnabanka
WorldFengs til viðmiðunar við nafn-
gjöf, en sé það nafn sem þeir hafa
í huga ekki í nafnabankanum geta
þeir sótt um leyfi fyrir nafninu hjá
skrásetjurum WorldFengs og nafni
sem hlýtur samþykki er bætt í nafna-
bankann. Eftirtaldar reglur gilda
um nöfn á hrossum sem skráð eru
í WorldFeng:
• Nafnið þarf að vera í samræmi
við íslenskar reglur og hefðir
um nafngiftir.
• Nafnið þarf að geta tekið
íslenskri eignarfallsendingu eða
hafa unnið sér hefð í íslensku
máli.
• Nafnið má ekki brjóta í bága við
íslenskt málkerfi.
• Nöfn þurfa að vera í karlkyni
fyrir stóðhesta/geldinga og í
kvenkyni fyrir hryssur, hvor-
ugkyns orð eru ekki leyfileg
sem nöfn.
• Nöfn sem innihalda skammstaf-
anir eru ekki leyfileg.
• Nöfn sem eru ruddaleg eða hafa
klúra meiningu, nöfn sem þykja
ekki smekkleg eða eru dónaleg
gagnvart trúar-, eða þjóðfélags-
legum hópum eru ekki leyfð.
Hérna hafa verið tíundaðar nýjar
vinnureglur við kynbótadóma sem
verða vonandi til bóta fyrir dóm-
kerfið og til þess fallnar að skila
okkur enn betri upplýsingum um
eðlisgæði hrossanna. Af öðru sem
fram fór á fundinum má nefna að
Heimir Gunnarsson var kosinn í
kynbótadómaranefnd FEIF í stað
Guðlaugs Antonssonar sem gaf ekki
kost á sér áfram. Þá kynnti Kristín
Halldórsdóttir, formaður skrásetj-
aranefndar WorldFengs, vinnu
nefndarinnar. Hún vinnur m.a. að
samræmingu á vinnubrögðum við
skrásetningu á hrossum í WorldFeng.
Þá kynnti Jón Baldur Lorange árs-
skýrslu WorldFengs. Áskrifendum
að WorldFeng hefur fjölgað nú á
hverju ári undanfarið og nú eru þeir
um 21.000 manns í 24 löndum en
heimsóknir í gagnagrunninn voru
rúmlega 830.000 á síðasta ári. Þá er
gaman að geta sagt frá því að snjall-
tækjavæðing WorldFengs er í fullum
gangi og stefnt er að fyrstu útgáfu af
WorldFengs appi í apríl 2017.
Þorvaldur Kristjánsson.
Smá ágreiningur. Mynd / HKr.
Landsmót hestamanna 2018 verður haldið í Reykjavík:
Áskell Heiðar Ásgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri
Áskell Heiðar Ásgeirsson er lengst til vinstri á myndinni, en með honum er stjórn Landsmóts hestamanna 2018
og hluti meðstjórnenda. Í stjórninni eru Sigurbjörn Magnússon formaður, Hjörtur Bergstað, varaformaður og Ingi-
björg Guðmundsdóttir, ritari. Meðstjórnendur eru Katrín Pétursdóttir, Sigurbjörn Bárðarson, Haukur Baldvinsson,
Áshildur Bragadóttir og Hrólfur Jónsson.