Bændablaðið - 23.02.2017, Page 18

Bændablaðið - 23.02.2017, Page 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Ný stjórn Landsmóts hesta- manna, sem fram fer í Reykjavík 2018, hefur ráðið Áskel Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóra mótsins. Áskell Heiðar er menntaður landfræðingur frá Háskóla Íslands, með diplómu í opinberri stjórn- sýslu frá HÍ og MA gráðu í ferða- málafræði og viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og Leeds Metropolitan University. Áskell Heiðar hefur skipulagt fjölda viðburða hérlendis á undan- förnum árum t.d. tónlistarhá- tíðina Bræðsluna, auk þess að stýra Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal sl. sumar. Þá kennir hann einnig við- burðastjórnun og ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og Háskóla Íslands. Fákur mun alfarið sjá um mótshaldið Mótið mun marka ákveðin tímamót í rekstri Landsmóta, en þetta verð- ur í fyrsta sinn sem Landssamband hestamannafélaga mun ekki sjá um mótið, heldur mun hestamannafé- lagið Fákur sjá alfarið um móts- haldið með dyggum stuðningi Reykjavíkurborgar líkt og á síðustu Landsmótum sem haldin hafa verið í Reykjavík. Fákur hefur stofnað sérstakt félag, LM 2018 ehf., og skipað því sérstaka stjórn sem mun stýra skipulagningu mótsins, en í henni sitja; Sigurbjörn Magnússon, for- maður, Hjörtur Bergstað, varafor- maður, Ingibjörg Guðmundsdóttir, ritari og meðstjórnendur eru Katrín Pétursdóttir, Sigurbjörn Bárðarson, Haukur Baldvinsson, Áshildur Bragadóttir og Hrólfur Jónsson. Búist er við miklum fjölda gesta á Landsmótið sem fram fer fyrstu vikuna í júlí 2018 og að sögn Áskels Heiðars verður fyrsta verk- efni að undirbúa sölu á aðgöngu- miðum og pökkum fyrir erlenda gesti þar sem hægt verður að kaupa gistingu með aðgöngumiðunum. Þá mun nú fara af stað vinna við að virkja þann mikla kraft sem býr í hestamönnum og koma af stað starfshópum sem taka að sér ákveðin verkefni í undirbúningi mótsins. „Landsmót er samvinnuverk- efni þar sem mjög margir leggja hönd á plóg og hér í Reykjavík eins og víða annars staðar er til mikill mannauður og mikil þekking á svona mótahaldi, það verður mitt stærsta verkefni á næstu mánuðum að virkja þennan mannauð,“ segir Áskell Heiðar. Landsmótið í Reykjavík verður það 23. í röðinni en það fyrsta var haldið á Þingvöllum árið 1950. Síðast fór Landsmót hestamanna fram í Reykjavík árið 2012. Fréttir af FEIF-þingi: Nýjar vinnureglur við kynbótadóma HROSS&HESTAMENNSKA Ársfundur FEIF (alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga) var haldinn 3.–4. febrúar og að þessu sinni í Finnlandi. Fjölmargir fulltrúar frá aðildarlöndum FEIF sóttu fundinn og þótti hann takast vel. Á aðalfundi FEIF og einnig á sérstökum fundi ræktunarleiðtoga FEIF-landanna var rætt um fjölmörg atriði er varða ræktunarmál; m.a. skipulag kynbótasýninga, nafngiftir hrossa og nýjar vinnureglur við kyn- bótadóma sem taka gildi strax í vor. Nýjar vinnureglur við kynbótadóma Tvær nýjar vinnureglur við kyn- bótadóma sem komu frá fagráði í hrossarækt voru teknar til umræðu á þinginu. Þær voru báðar sam- þykktar og taka því gildi strax í vor. Fyrri vinnureglan á við dóma á vilja og geðslagi. Það hefur verið í gildi vinnuregla sem segir að fari hrossið ítrekað lengra en afmörkun brautar segir til um geti það haft áhrif á dóma á vilja og geðslagi. Þetta hefur ekki þótt nægilega skýr regla og ekki nógu vel til þess fallin að dómnefndir meðhöndli á samræmd- an hátt þegar hrossi er riðið ítrekað lengra en afmörkun brautar segir til um. Ástæðan fyrir þessari reglu er sú að gera dómnefndum betur kleift að sjá þegar hrossið er hægt niður í enda brautar og snúið við en það er mikil- vægt við mat á þjálni. Ef hrossinu er riðið lengra en afmörkun brautarinn- ar sjá dómarar ekki niðurhægingar og viðsnúninga nægilega vel og að sjálfsögðu merki um óþjálni sé ekki hægt að hægja hrossið niður og snúa við innan brautar. Því hefur verið ákveðið að taka í gildi skýrari reglu um þetta atriði til að bæta mat á vilja og geðslagi. Reglan er sem hér segir: Til að bæta mat á samstarfsvilja og þjálni skal, fyrir hærri einkunnir fyrir vilja og geðslag, horft til þess að hrossið sé hægt niður á fet í við- snúningum á brautarendum. Ef ekki er hægt að hægja hrossið niður og snúa við innan afmörkunar braut- arinnar, þá er 8.0 hámarks einkunn fyrir vilja og geðslag. Þó má gera undantekningu þegar um sýningu á mjög greiðu stökki og skeiði er að ræða svo fremi að niðurhægingin sé mjúk og átakalaus. Hverfi hross úr sjónsviði dómara eða sýnir mikla óþjálni er 7.0 hámarkseinkunn fyrir vilja og geðslag. Til að hljóta hækk- un fyrir vilja og geðslag á yfirlitssýn- ingu þarf að sýna greinilega fram á að hægt sé að hægja hrossið mjúkt og átakalaust niður innan afmörkunar brautarinnar. Það er merki um þjálan og mik- inn vilja ef hægt er að hægja niður á fet á flestum gangtegundum í enda brautar og spinna hrossið upp til afkasta endurtekið í plús og mínus átt hestsins. Það skal því horft til þess ef hinar hærri einkunnir eru gefnar. Hámarkseinkunn er sett sem 8.00 sé hrossinu riðið út fyrir afmörkun brautar en það er gert vegna þess að þá sér dómnefndin viðsnúninga í brautarendum ekki nægilega vel og takmarkar matið á þjálni hestsins. Undantekningu má gera á þessari reglu ef hrossinu er riðið til mikilla afkasta á skeiði og stökki. Það er gert til að bjóða afrekshrossum, ungum sem eldri, möguleika á hestvænum niðurhægingum. En það er að því gefnu að hraðinn sé afar mikill og niðurhægingin eigi sér að mestu stað innan brautar. Hvað varðar mat á skeiði var ákveðið að bæta við nýrri vinnureglu en hún er þessi: Þegar einkunnir 8.5 eða hærri eru gefnar fyrir skeið skal hestinum greinilega riðið á stökki í aðdraganda skeiðsins og hann tekinn niður á skeið af stökki. Einnig skal horft til þess að hesturinn sé í jafnvægi í niðurhægingu. Þessi regla er sett til þess að bæta mat á skeiði; takti og líkamsbeitingu hestsins á skeiði. Tölt og skeið eru líkar gangtegundir að svo mörgu leyti og því er til bóta við mat á skeiði að sjá að hægt sé að losa aðeins um hestinn á stökki áður en hann er tek- inn niður á skeið. Það skilur á milli hesta sem eru snjallvakrir og eiga auðvelt með líkamsbeitingu (snið) sem skilar svifi og þeirra hrossa sem þarf að stífa af og renna inn í skeið af tölti til að sækja svif í gangtegund- ina. Einnig er þetta íslensk reiðhefð og krafa sem gerð er til hrossa í keppni til hærri einkunna; hvort sem það er í fimmgangi, gæðingakeppni eða gæðingaskeiði. Hugmyndin með því að fara fram á að hesturinn sé í jafnvægi í niðurhægingu er ekki sú að fara fram á útfærslu á skeiðsprett- um líkt og í gæðingaskeiði, heldur að sjá að hesturinn sé í andlegu og líkamlegu jafnvægi á skeiðinu og hvellstytti sig ekki í enda spretts. Skipan dómnefnda Þá var formlega samþykkt breyting á reglum FEIF um skipan formanna í dómnefndir á kynbótasýningum um heim allan. Þessi nýja regla kveður á um að skipaður verði hópur 12 dómara og verður nauðsynlegt að velja einhvern úr þessum hópi til að gegna formennsku í hverri dóm- nefnd. Valið mun byggja á reynslu þeirra og þekkingu og verður þessi hópur valinn af kynbótadómaranefnd FEIF til tveggja ára í senn. Þetta er stórt skref í átt að enn betra samræmi í dómstörfum á milli sýninga og landa og tryggir viðunandi reynslu í hverri dómnefnd. Nafngiftir hrossa Einnig var samþykkt regla um nafngiftir íslenskra hrossa en ákveðið var að öll FEIF-löndin sam- einist um að halda í þá hefð að skíra íslensk hross íslenskum nöfnum. Það hefur reyndar verið í gildi sú regla fyrir skráningar í WorldFeng að nöfn hrossa skuli samræmast íslenskri nafnahefð en ákveðið var að herða aðhaldið í kringum þessi mál og taka í gildi skýrari reglu. Í WorldFeng er nafnabanki með fleiri þúsund nöfn- um sem sífellt er í vinnslu og verið að bæta góðum og gildum nöfnum þar inn. Við grunnskráningu hrossa í heimarétt er hægt að skrá nöfn sem eru í nafnabankanum en ef þau eru ekki þar þurfa skrásetjarar WorldFengs að sjá um skráninguna. Þar er því ákveðin sía en gildum nöfnum sem hugmynd kemur um verður svo bætt jafnóðum í bankann. Miðað við nafnareglur hjá mörgum öðrum hestakynjum er þetta afar ein- föld regla og setur ræktendum lítil takmörk hvað nafngiftir varðar. Hún er sem hér segir: Hestaeigendur geta skráð nafn á hross sín í WorldFeng. Hross verð- ur að nefna áður en þau eru sýnd í kynbótadómi eða í keppni sem er skráð í WorldFeng og því nafni er ekki hægt að breyta eftir þetta. Nafni er ekki hægt að breyta eftir að hrossið hefur eignast skráð afkvæmi. Hestaeigendur geta haft nafnabanka WorldFengs til viðmiðunar við nafn- gjöf, en sé það nafn sem þeir hafa í huga ekki í nafnabankanum geta þeir sótt um leyfi fyrir nafninu hjá skrásetjurum WorldFengs og nafni sem hlýtur samþykki er bætt í nafna- bankann. Eftirtaldar reglur gilda um nöfn á hrossum sem skráð eru í WorldFeng: • Nafnið þarf að vera í samræmi við íslenskar reglur og hefðir um nafngiftir. • Nafnið þarf að geta tekið íslenskri eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. • Nafnið má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi. • Nöfn þurfa að vera í karlkyni fyrir stóðhesta/geldinga og í kvenkyni fyrir hryssur, hvor- ugkyns orð eru ekki leyfileg sem nöfn. • Nöfn sem innihalda skammstaf- anir eru ekki leyfileg. • Nöfn sem eru ruddaleg eða hafa klúra meiningu, nöfn sem þykja ekki smekkleg eða eru dónaleg gagnvart trúar-, eða þjóðfélags- legum hópum eru ekki leyfð. Hérna hafa verið tíundaðar nýjar vinnureglur við kynbótadóma sem verða vonandi til bóta fyrir dóm- kerfið og til þess fallnar að skila okkur enn betri upplýsingum um eðlisgæði hrossanna. Af öðru sem fram fór á fundinum má nefna að Heimir Gunnarsson var kosinn í kynbótadómaranefnd FEIF í stað Guðlaugs Antonssonar sem gaf ekki kost á sér áfram. Þá kynnti Kristín Halldórsdóttir, formaður skrásetj- aranefndar WorldFengs, vinnu nefndarinnar. Hún vinnur m.a. að samræmingu á vinnubrögðum við skrásetningu á hrossum í WorldFeng. Þá kynnti Jón Baldur Lorange árs- skýrslu WorldFengs. Áskrifendum að WorldFeng hefur fjölgað nú á hverju ári undanfarið og nú eru þeir um 21.000 manns í 24 löndum en heimsóknir í gagnagrunninn voru rúmlega 830.000 á síðasta ári. Þá er gaman að geta sagt frá því að snjall- tækjavæðing WorldFengs er í fullum gangi og stefnt er að fyrstu útgáfu af WorldFengs appi í apríl 2017. Þorvaldur Kristjánsson. Smá ágreiningur. Mynd / HKr. Landsmót hestamanna 2018 verður haldið í Reykjavík: Áskell Heiðar Ásgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri Áskell Heiðar Ásgeirsson er lengst til vinstri á myndinni, en með honum er stjórn Landsmóts hestamanna 2018 og hluti meðstjórnenda. Í stjórninni eru Sigurbjörn Magnússon formaður, Hjörtur Bergstað, varaformaður og Ingi- björg Guðmundsdóttir, ritari. Meðstjórnendur eru Katrín Pétursdóttir, Sigurbjörn Bárðarson, Haukur Baldvinsson, Áshildur Bragadóttir og Hrólfur Jónsson.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.