Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
endur skoðun
á stefnu CAP
er meiningin
að banna með
öllu notkun á
glýfósati sem er
virka eiturefnið
í mest notuðu
hjálparefnum
landbúnaðarins
víða um heim.
Þetta mun þýða
að framleiðslu-
geta landbúnaðar í
Evrópu mun dragast
saman.
Slíkt bann átti að
ganga í gildi 30. júní 2016,
en Evrópuráðið heyktist á að
halda því til streitu. Þess í stað var
samþykkt að heimila áframhaldandi
notkun á glýfósati til bráðabirgða
í 18 mánuði, eða til ársloka 2017.
Sífellt fleiri vísindamenn og
stofnanir eru farnar að vara við
óhóflegri notkun jurta- og skor-
dýraeiturs, ofnotkun áburðar sem
og fúkkalyfja í landbúnaði. Er það
í takt við upplýsingar um afar nei-
kvæð áhrif sem þessi efni eru farin
að hafa á heilsu fólks víða um heim.
Þeir sem móta stefnuna innan ESB
hafa tekið undir áhyggjur vísinda-
manna.
Enn einn vandinn hefur svo
verið að skjóta upp kollinum, en
það er ryðsveppur sem herjar á
hveiti og dreifist hratt um Evrópu.
Þó það komi glýfósat-umræðunni
væntanlega ekkert við, þá mun
það nær örugglega kalla á stór-
aukna notkun á sveppaeitri. Það
gæti líka tekið mörg ár að finna,
eða „hanna“ afbrigði sem ver sig
gegn ryðsveppnum.
Fæðuöryggi þjóðarinnar ógnað?
Það þarf enga snillinga til að sjá að
þessi þróun mun hafa mikil áhrif á
Íslandi, sér í lagi ef menn ætla að
byggja aukna neyslu nær alfarið á
auknum innflutningi. Um það hefur
vissulega verið hávær krafa af hálfu
íslenskrar verslunarforystu. Einn
liður í þeirri þróun var samningur-
inn sem gerður var um tollalækk-
anir á landbúnaðarvörum gagnvart
ESB haustið 2015 og samþykktur á
Alþingi haustið 2016. Annar þáttur
er mikil áhersla núverandi landbún-
aðarráðherra á að gera breytingar á
landbúnaðarkerfinu, hvað sem það
svo felur í sér.
Í þessu ljósi þarf heldur engan
snilling til að reikna það út að
aukinn innflutningur á landbúnað-
arvörum í enn harðari samkeppni
við íslenska framleiðslu mun leiða
til minna framboðs á íslenskum
matvælum þar sem bændur gef-
ast hreinlega upp. Það ýtir síðan
aftur undir kröfur um enn aukinn
innflutning og frekari hnignunar
innlendrar framleiðslu.
Þótt offramboð hafi verið á
sumum matvælum og lágt verð í
Evrópu til skamms tíma er sú staða
greinilega ekki talin varanleg. Það
sem tekur við er væntanlega harður
slagur um það sem þar verður í boði
og stórhækkað matvælaverð. Tölur
FAO af kjötmarkaði sýna glögglega
slíka þróun.
Á síðasta ári voru framleidd
um 322 milljónir tonna af kjöti
á heimsvísu og um 31 milljón
tonn af því fór í milliríkjavið-
skipti. Framleiðsluaukningin var
sáralítil á milli ára, eða um 0,3%.
Verðhækkunin var hins vegar að
meðaltali um 3 til 5%. Verulega
hækkandi matvælaverð m.a. á
Íslandi er óhjákvæmileg afleiðing
þessarar þróunar. Ef ekkert verður
gert til að tryggja áframhaldandi
innlenda landbúnaðarframleiðslu,
hlýtur fæðuöryggi þjóðarinnar að
vera ógnað.
Óheft aðgengi að matvælum og
vatni ekki lengur tryggt
Sú tíð er liðinn að Evrópubúar geti
treyst á að kaupa ódýr matvæli
frá öðrum ríkjum utan álfunnar.
F j ö l g u n
jarðarbúa, minnk-
andi aðgengi að ræktarlandi og
ofnýting á neysluvatni er að leiða
til þess að víða um heim geta
menn ekki lengur annað þörfum
heimamanna, hvað þá annarra. Sem
dæmi þá hafa Kínverjar verið að
stórauka sína landbúnaðarfram-
leiðslu, en hafa samhliða verið
að kaupa upp ræktarland í Afríku,
í Suður-Ameríku og víðar til að
tryggja eigin þegnum matvæli.
Íslendingar hafa líka orðið varir við
ásókn útlendinga í bújarðir og eru
nefndar ýmsar forsendur fyrir því.
Kínverskir fjárfestar kaupa
ræktarland í Ástralíu
Samkvæmt China Daily hafa kín-
verskir fjárfestar stóraukið kaup á
ræktarlandi í Ástralíu og eiga þar nú
yfir þrjár milljónir hektara. Þá hafa
indverskir fjárfestar, Sádi-arabar,
Þjóðverjar og fleiri verið að kaupa
ræktarland í Afríku og hvar sem
tækifæri gefast.
Kínverjar eru í dag stærstu
innflytjendur á lambakjöti í heim-
inum. Þannig fluttu þeir inn um
220 þúsund tonn af lambakjöti frá
Ástralíu og Nýja-Sjálandi á árinu
2016. Mestur var innflutningurinn
2014, eða um 275.000 tonn, en
innflutningurinn síðustu fjögur ár
er verulegt stökk frá 2010 þegar
talan var einungis um 60.000 tonn.
Kínverjar velja þó fremur að borða
svínakjöt en lambakjöt og mark-
aðsverð á svínakjöti hefur stýrt
mjög eftirspurninni eftir öðrum
kjöttegundum.
Kína er risastór áhrifavaldur
Aukin velmegun í Kína og efl-
ing millistéttarinnar hefur leitt til
stóraukinnar kjötneyslu. Kínverjar
framleiddu um 79,6 milljónir tonna
af kjöti og 38 milljónir tonna af
mjólkurvörum á árinu 2012 og
hefur hún talsvert aukist síðan.
Framleiðsla Kínverja hefur verið
langmest á svínakjöti, en einnig
umtalsverð á alifugla- og nautakjöt.
Öll sú framleiðsla er þó langt frá
því að duga í vaxandi kjötneyslu
þessarar þjóðar sem telst vera um
21% mannkyns. Því verður að flytja
inn gríðarlegt magn af kjöti og fóðri
til dýraeldis.
Kínversk stjórnvöld lýstu því
reyndar yfir í fyrrasumar að reynt
yrði að draga úr kjötneyslunni þar í
landi, m.a. til að minnka innflutning
og til að mæta auknum kröfum í
loftslagsmálum.
Kínverjar stærstu framleiðendur
og neytendur svínakjöts
Kínverjar eru samkvæmt tölum
bandaríska landbúnaðarráðuneyt-
isins (USDA) þegar stærstu fram-
leiðendur og neytendur á svínakjöti.
Þeir eru líka stærstir í innflutningi
á svínakjöti sem hlutfall af heims-
viðskiptum, eða með nær 30% af
markaðnum. Þar af koma um 17%
frá ríkjum Evrópusambandsins.
Aukin viðskipti með svínakjöt frá
Evrópu gætu því að einhverju leyti
komið í stað viðskipta við Rússa,
en tilkostnaðurinn er án efa meiri.
Stórir innflytjendur á nautakjöti
Á árinu 2016 urðu Kínverjar svo
næststærstu innflytjendur á nauta-
kjöti í heiminum, en þeir eru til-
tölulega nýir á þessum markaði.
Bandaríska landbúnaðarráðu-
neytið telur að Kínverjar fari fram
úr Bandaríkjunum í innflutningi
á nautakjöti á næstu tveim til
þrem árum. Þá muni aukin neysla
Kínverja á nautakjöti hafa gríðarleg
áhrif á heimsmarkaðsverð strax á
þessu ári.
300 milljón bændur með
afar lítið jarðnæði
Um 300 milljónir kínverskra bænda
stunda nú landbúnað á 120 millj-
ónum hektara lands. Það þýðir að
hver bóndi hefur einungis um 0,4
hektara að meðaltali til umráða
samkvæmt tölum matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAO. Þrátt fyrir að þessi
staða hindri mikla framleiðniaukn-
ingu þá hafa orðið gríðarlegar
tækniframfarir í kínverskum land-
búnaði á síðustu 30 árum. Á árinu
2010 var framleiðni bænda samt
einungis mæld 16% af framleiðni
hvers Kínverja í iðnaði.
Framleiða gríðarlega mikið en
samt dugar það ekki
Framleiðslutölur í kínverskum
landbúnaði eru gríðarlega háar.
Þannig framleiddu kínversk-
ir bændur 571,2 milljón tonna
af korni árið 2012 og fór í 616
milljón tonn 2016. Það var þó 5,2
milljónum tonnum minni fram-
leiðsla en 2015. Þá minnkaði hrís-
grjónauppskeran úr 208 milljón-
um tonna í 206 milljónir tonna.
Hveitiuppskeran dróst lítillega
saman og endaði í tæplega 129
milljónum tonna. Þá framleiða
Kínverjar líka mikið af maís eða
nær 215 milljónir tonna.
Hratt gengið á ræktarland
Með aukinni tækni- og iðnvæð-
ingu hefur verið gengið mjög á
ræktarland í Kína. Frá 1997 hefur
ræktarland í Kína minnkað um
8,2 milljónir hektara, mest af því
hefur farið undir aukið þéttbýli
og borgir. Land á hvern íbúa er
nú aðeins 0,092 hektarar eða 40%
minna en meðaltalið á heimsvísu.
Samhliða þessu hefur verið gengið
mjög á vatn, er nú orðinn skortur á
vatni til að viðhalda framleiðslu-
getu landbúnaðarins. Kínversk
stjórnvöld hafa haft af þessu vax-
andi áhyggjur.
Reynt hefur verið að auka
framleiðslugetuna í landbún-
aði með óhóflegri áburðargjöf,
eða 3,9 sinnum meira en notað
er að meðaltali á hektara á
heimsvísu. Skordýraeitur hefur
einnig verið notað í stórum stíl.
Umhverfisáhrifin eru þegar orðin
veruleg með niðurbroti jarðvegs og
grunnvatnsmengun. Ofan á allt þetta
kemur loftslagshlýnun og þurrkar.
Loftslagsbreytingar einar og sér eru
taldar munu draga úr framleiðslu-
getu landbúnaðar í Kína um 5–10%
fram til 2030. Allt eykur þetta síðan
þrýsting á heimsmarkað með mat-
væli, fóður og vatn.
Tækifæri talin felast
í erfiðri stöðu
Þrátt fyrir þessa svörtu sýn sem fram
kemur í gögnum FAO um Kína, er
ýmislega hægt að gera þar í landi
til úrbóta. Eru því mikil tækifæri
talin felast í stöðunni. Þrátt fyrir
mikla fátækt víða í dreifbýlinu í
Kína nýtur þjóðin þess að hafa búið
við mikinn efnahagsvöxt á liðnum
árum. Það hefur gert þjóðina að
öðru stærsta efnahagsveldi heims.
Ýmislegt hefur líka verið gert á
síðustu árum, m.a. til að bæta hag
bænda og auka sjálfbærni í land-
búnaði. Einnig hafa Kínverjar verið
að taka sig á í umhverfismálum. Þá
hafa þeir fjárfest gríðarlega í líf-
tæknigeiranum með það í huga m.a.
að auka framleiðnina í landbúnaði.
Samkvæmt frétt China Daily
hyggjast Kínverjar nútímavæða
landbúnað af miklum krafti og
ætla að verja til þess 450 milljörð-
um dollara fram til 2020. Hversu
mikilli framleiðsluaukningu þeir
hyggjast ná með hliðsjón af minnk-
andi ræktarlandi og minna aðgengi
að vatni skal ósagt látið. Þetta mun
þó örugglega þýða aukna vélvæð-
ingu og verulega fækkun starfa í
landbúnaði. Þar kemur líka fram að
þeir hyggist samhliða þessu reyna
að auka ekki notkun eiturefna og
áburðar frá því sem nú er.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
RÝMINGARSALA
20% aukaafsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
á meðan byrgðir endast
GARÐHÚS 4,7m²
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
· Allt á að seljast
· Fyrstur kemur fyrstur fær
· Ekki missa af þessu
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar volundarhus.is
og í síma 864-2400.
Þótt kínverskir bændir teljist kannski
ekki þeir tæknivæddustu í heimi enn
sem komið er þá framleiða þeir samt
gríðarlegt af korni og öðrum tegund-
um landbúnaðarafurða. Hér er verið
að vinna við hreinsun á pipar.
Auka þarf framleiðslu matvæla gríðarlega á komandi árum ef mæta á þörfum sívaxandi fólksfjölda. Mynd / HKr.