Bændablaðið - 23.02.2017, Side 24

Bændablaðið - 23.02.2017, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Garðyrkjuskóli LbhÍ á Reykjum: Mikið að gera hjá nemendum við að ljúka verkefnum fyrir sumarið Töluverðar annir eru við Garð- yrkjuskólann þessa dagana enda vorið á næsta leiti og fjöldi verk- efna sem þarf að ljúka fyrir sum- arið. Viðhald á húsnæði skólans hefur verið verulega vanrækt á liðnum árum. Á fjárlögum er gert ráð fyrir 70 milljónum króna til endurbóta á húsnæðinu. Guðríður Helgadóttir, forstöðu- maður starfs- og endur menntunar- deildar Landbúnaðar háskóla Íslands, segir að nemendur í áfanga sem kallast plöntuvernd hafi undanfarið þrætt heimaland Garðyrkjuskólans og leitað að meindýrum á plöntum. „Sérstaklega sitkalús. Það er gert vegna þess hve veturinn hefur verið mildur og gæti því verið hætta á far- aldri sitkalúsar á grenitrjám næsta sumar. Enn sem komið er hafa þó heimtur sem betur fer verið litlar og engin lús fundist.“ Guðríður segir að í gróðurhúsum skólans skjóti stundum upp kollinum spennandi meindýr sem nemendur hafa kost á að greina og fræðast um samhliða því hvaða lífrænu varnir nýtast gegn viðkomandi meindýri. Ylræktarbraut Guðríður segir að ylræktarnemar haldi utan um heimsfræga hnúðkáls- ræktun skólans. „Árlega er ræktað hnúðkál í gróðurhúsi skólans og verða kálhausarnir til sölu á sumar- daginn fyrsta. Allt ræktunarferlið er í höndum nemenda, sáning, priklun og útplöntun í gróðurhúsið, auk þess sem nemendur taka þátt í umhirðu plantnanna á ræktunartímanum. Uppskeran verður einnig í þeirra höndum og þegar sumardagurinn fyrsti rennur upp selst hnúðkálið hraðar en auga á festir.“ Nemendur ylræktarbrautar eru jafnframt að læra um ylræktun blóm- lauka til afskurðar en sala á afskorn- um laukum hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin. Ræktun lífrænna matjurta Á námsbraut um lífræna ræktun matjurta eru nemendur meðal annars að læra um það hvernig sé best að viðhalda frjósemi jarðvegs til rækt- unar en það er einmitt lykilatriði í lífrænni ræktun. „Nemendur jarðgera allt lífrænt efni sem fellur til í eldhúsi skólans og er spennandi að fylgjast með því hvernig niðurbrotið gengur. Þetta er nýjasta námsbraut skólans og er nú kennd í annað sinn. Mikil eftirspurn er eftir afurðum sem framleiddar eru með aðferðum lífrænnar framleiðslu og anna framleiðendur í landinu engan veginn eftirspurninni, sem getur verið tækifæri fyrir öfluga nemendur eftir útskrift.“ Garð- og skógræktarbraut „Nemendur garð- og skógarplöntu- brautar vinna nú að uppeldi á trjá- plöntum og fóru sáningar á elritrjám fram fyrir nokkrum dögum. Nemendurnir munu fylgjast með plöntunum á uppeldistímanum og þegar plönturnar ná tiltekinni stærð verða þær gróðursettar í heimalandi skólans. Verkefni eins og þetta reyna á ýmsa þætti í ræktunartækninni, svo sem vökvun og áburðargjöf, lýsingu og stýringu á hitastigi og er þetta mjög góð æfing sem tengir saman upplýsingar úr mörgum áföngum,“ segir Guðríður. Á skógræktarbraut er verið að kenna nýjan áfanga um útivistar- svæði og hafa nemendur meðal annars verið að skoða hvernig hægt sé að skipuleggja skógar- svæði þannig að hægt sé að taka á móti gestum. Kennsla í trjáfell- ingum er alltaf vinsæl og hafa nemendur verið á ferð í skóginum á Reykjum í viðeigandi hlífðar- fatnaði með keðjusagir og grisjað burtu tré sem ekki hafa hlotið náð fyrir augum kennarans. Timbur úr skóginum á Reykjum var síðan flutt að Snæfoksstöðum þar sem Skógræktarfélag Árnesinga hefur komið sér upp fullkominni aðstöðu til flettingar á trjábolum. Nemendur fengu þar að spreyta sig á flettingar- söginni og verður timbrið síðan notað í verkefnum á Reykjum. „Nemendur í skrúðgarðyrkju hafa verið að vinna í landmótun og hellulögnum í verknámshúsi skrúð- garðyrkjunnar og miðar vinnan að því að húsið verði orðið að glæsileg- um innigarði á opnu húsi skólans á sumardaginn fyrsta. Samhliða þessu eru nemendur að stíga fyrstu skref- in í klippingum á trjám og runnum en margir njóta þess að hafa fengið þjálfun í þessu fagi í verknámi sínu, áður en þeir koma í skólann. Hluti nemenda í skrúðgarðyrkju kom inn í námið í gegnum raun- færnimat og er það mjög góð leið fyrir fólk með mikla starfsreynslu því þar fær fólk metið það sem það kann og tekur svo þá áfanga í námi sem upp á vantar. Endurbætur á húsnæði skólans Húsnæði Garðyrkjuskólans hefur lengi verið vanrækt og viðhaldi víða áfátt. Guðríður segir að ríkisvaldið hafi veitt 70 milljónum króna til endurbóta á húsnæði skólans í ár og að það séu jákvæðar fréttir. „Reyndar mátti ekki seinna vænna vera því hluti af þaki garð- skálans, eins helsta einkennis skól- ans, fauk í hressilegu roki í byrjun febrúar. Innan skólans eru miklar væntingar til þess að tryggja megi áframhaldandi fjárveitingu til frek- ari endurbóta, ekki síst þegar horft er til samfélagslegra áhrifa þess að stuðla megi að enn öflugri garð- yrkju hérlendis,“ segir Guðríður Helgadóttir að lokum. /VH Garðyrkjuskóli LbhÍ á Reykjum í Hveragerði. Mynd / HKr. Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands. Björgvin Eggertsson kennari og Sigurjón Sæland, nemandi á brautinni Skógur og náttúra. Mynd / Ólafur Oddsson. Margrét María Leifsdóttir, nemi á yl- ræktarbraut.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.