Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Garðyrkjuskóli LbhÍ á Reykjum:
Mikið að gera hjá nemendum við
að ljúka verkefnum fyrir sumarið
Töluverðar annir eru við Garð-
yrkjuskólann þessa dagana enda
vorið á næsta leiti og fjöldi verk-
efna sem þarf að ljúka fyrir sum-
arið. Viðhald á húsnæði skólans
hefur verið verulega vanrækt á
liðnum árum. Á fjárlögum er gert
ráð fyrir 70 milljónum króna til
endurbóta á húsnæðinu.
Guðríður Helgadóttir, forstöðu-
maður starfs- og endur menntunar-
deildar Landbúnaðar háskóla Íslands,
segir að nemendur í áfanga sem
kallast plöntuvernd hafi undanfarið
þrætt heimaland Garðyrkjuskólans
og leitað að meindýrum á plöntum.
„Sérstaklega sitkalús. Það er gert
vegna þess hve veturinn hefur verið
mildur og gæti því verið hætta á far-
aldri sitkalúsar á grenitrjám næsta
sumar. Enn sem komið er hafa þó
heimtur sem betur fer verið litlar og
engin lús fundist.“
Guðríður segir að í gróðurhúsum
skólans skjóti stundum upp kollinum
spennandi meindýr sem nemendur
hafa kost á að greina og fræðast um
samhliða því hvaða lífrænu varnir
nýtast gegn viðkomandi meindýri.
Ylræktarbraut
Guðríður segir að ylræktarnemar
haldi utan um heimsfræga hnúðkáls-
ræktun skólans. „Árlega er ræktað
hnúðkál í gróðurhúsi skólans og
verða kálhausarnir til sölu á sumar-
daginn fyrsta. Allt ræktunarferlið er
í höndum nemenda, sáning, priklun
og útplöntun í gróðurhúsið, auk þess
sem nemendur taka þátt í umhirðu
plantnanna á ræktunartímanum.
Uppskeran verður einnig í þeirra
höndum og þegar sumardagurinn
fyrsti rennur upp selst hnúðkálið
hraðar en auga á festir.“
Nemendur ylræktarbrautar eru
jafnframt að læra um ylræktun blóm-
lauka til afskurðar en sala á afskorn-
um laukum hefur aukist jafnt og þétt
síðustu árin.
Ræktun lífrænna matjurta
Á námsbraut um lífræna ræktun
matjurta eru nemendur meðal annars
að læra um það hvernig sé best að
viðhalda frjósemi jarðvegs til rækt-
unar en það er einmitt lykilatriði í
lífrænni ræktun.
„Nemendur jarðgera allt lífrænt
efni sem fellur til í eldhúsi skólans
og er spennandi að fylgjast með því
hvernig niðurbrotið gengur. Þetta er
nýjasta námsbraut skólans og er nú
kennd í annað sinn. Mikil eftirspurn
er eftir afurðum sem framleiddar eru
með aðferðum lífrænnar framleiðslu
og anna framleiðendur í landinu
engan veginn eftirspurninni, sem
getur verið tækifæri fyrir öfluga
nemendur eftir útskrift.“
Garð- og skógræktarbraut
„Nemendur garð- og skógarplöntu-
brautar vinna nú að uppeldi á trjá-
plöntum og fóru sáningar á elritrjám
fram fyrir nokkrum dögum.
Nemendurnir munu fylgjast með
plöntunum á uppeldistímanum og
þegar plönturnar ná tiltekinni stærð
verða þær gróðursettar í heimalandi
skólans.
Verkefni eins og þetta reyna á
ýmsa þætti í ræktunartækninni, svo
sem vökvun og áburðargjöf, lýsingu
og stýringu á hitastigi og er þetta
mjög góð æfing sem tengir saman
upplýsingar úr mörgum áföngum,“
segir Guðríður.
Á skógræktarbraut er verið að
kenna nýjan áfanga um útivistar-
svæði og hafa nemendur meðal
annars verið að skoða hvernig
hægt sé að skipuleggja skógar-
svæði þannig að hægt sé að taka
á móti gestum. Kennsla í trjáfell-
ingum er alltaf vinsæl og hafa
nemendur verið á ferð í skóginum
á Reykjum í viðeigandi hlífðar-
fatnaði með keðjusagir og grisjað
burtu tré sem ekki hafa hlotið náð
fyrir augum kennarans. Timbur úr
skóginum á Reykjum var síðan
flutt að Snæfoksstöðum þar sem
Skógræktarfélag Árnesinga hefur
komið sér upp fullkominni aðstöðu
til flettingar á trjábolum. Nemendur
fengu þar að spreyta sig á flettingar-
söginni og verður timbrið síðan
notað í verkefnum á Reykjum.
„Nemendur í skrúðgarðyrkju
hafa verið að vinna í landmótun og
hellulögnum í verknámshúsi skrúð-
garðyrkjunnar og miðar vinnan að
því að húsið verði orðið að glæsileg-
um innigarði á opnu húsi skólans á
sumardaginn fyrsta. Samhliða þessu
eru nemendur að stíga fyrstu skref-
in í klippingum á trjám og runnum
en margir njóta þess að hafa fengið
þjálfun í þessu fagi í verknámi sínu,
áður en þeir koma í skólann.
Hluti nemenda í skrúðgarðyrkju
kom inn í námið í gegnum raun-
færnimat og er það mjög góð leið
fyrir fólk með mikla starfsreynslu
því þar fær fólk metið það sem það
kann og tekur svo þá áfanga í námi
sem upp á vantar.
Endurbætur á húsnæði skólans
Húsnæði Garðyrkjuskólans hefur
lengi verið vanrækt og viðhaldi víða
áfátt. Guðríður segir að ríkisvaldið
hafi veitt 70 milljónum króna til
endurbóta á húsnæði skólans í ár og
að það séu jákvæðar fréttir.
„Reyndar mátti ekki seinna
vænna vera því hluti af þaki garð-
skálans, eins helsta einkennis skól-
ans, fauk í hressilegu roki í byrjun
febrúar. Innan skólans eru miklar
væntingar til þess að tryggja megi
áframhaldandi fjárveitingu til frek-
ari endurbóta, ekki síst þegar horft
er til samfélagslegra áhrifa þess að
stuðla megi að enn öflugri garð-
yrkju hérlendis,“ segir Guðríður
Helgadóttir að lokum. /VH
Garðyrkjuskóli LbhÍ á Reykjum í Hveragerði. Mynd / HKr.
Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður
starfs- og endurmenntunardeildar
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Björgvin Eggertsson kennari og Sigurjón Sæland, nemandi á brautinni
Skógur og náttúra. Mynd / Ólafur Oddsson.
Margrét María Leifsdóttir, nemi á yl-
ræktarbraut.