Bændablaðið - 23.02.2017, Side 29

Bændablaðið - 23.02.2017, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 ástandi en sá sem við henni tók. Hér hefur alltaf verið búskapur og þannig getur maður séð af gömlum uppskeruskráningum að árið 1657 voru hér 5 nautgripir, 2 kindur, 2 geitur og sáð var út einni og hálfri tunnu af korni en 200 árum síðar var hér 1 hestur á bænum, 10 kýr, 24 kindur og uppskorið var 14 tunnur af korni og 14 tunnur af kartöflum. Svo tímarnir breytast og er skemmtilegt að hafa þessar upplýsingar og geta farið aftur í tímann. Hér var einnig alltaf til nóg af smjöri og osti og er til gamalt orðtak yfir það.“ Kirkjusókn og tunnubönd Um aldamótin 1900 bjuggu um 30 manns á Kjepso. Vegur til að komast að sjó, nausti og bát kom snemma og var haldið vel við, meðal annars til að geta róið með íbúa staðarins til kirkju á sunnudögum. „Fyrst um sinn tilheyrði Kjepso sókninni í Kinsarvik sem er um 48 kílómetra í burtu en eftir að fólk frá Øystese tók yfir hér á Kjepso og sótti um að hafa sóknina í samnefndum bæ gekk það í gegn árið 1881. Þetta er rúmlega 20 kílómetra leið og því mun styttri en til Kinsarvik að fara. Þrátt fyrir það fengu heimilismenn góða hreyfingu út úr kirkjusókninni á sunnudögum og á kirkjubekkn- um hittu þeir fólk og heyrðu það sem var nýjast í fréttum. Þetta var mjög mikilvægt áður en þau höfðu aðgang að dagblöðum,“ útskýrir Per Ragnar og segir jafnframt: „Í gegnum tíðina hafa margir smiðir verið hér á Kjepso og í stórri laut í einum fjallsveggnum tóku þeir út járnmálm. Út úr þessu bjuggu þeir til járn og einfalda hluti eins og nagla og festingar. Árið 1905 var flutt hingað upp eftir sögunar- mylla á hesti og sleða frá Álavík og sett saman hér þannig að ábú- endur urðu sjálfbjarga með efni úr tré. Vetrarvinnan fólst aðallega í að höggva við, smíða og búa til tunnubönd úr við sem voru beygð í hringi, pökkuð saman í búnt og seld til tunnuframleiðenda. Konurnar sinntu matnum og öðrum hússtörf- um en einnig var mikil vinna hjá þeim við ullina eins og að spinna, tvinna, lita, prjóna og vefa.“ Fjölbreyttir tímar á Kjepso Per, faðir Per Ragnars, tók við Kjepso árið 1926 en þrír bræður hans höfðu fengið starf við nýtil- komna verksmiðju í Álavík, stein- snar frá bænum. „Eftir að verksmiðjan kom í Álavík árið 1915 varð dramatískur skortur á vinnuafli og því varð að minnka búskapinn á Kjepso. Það var ekki nóg að faðir minn væri góður hljóðfæraleikari og hafði svolitla innkomu af því og hægt var að leigja út svolítið húspláss til starfs- fólks verksmiðjunnar. Hann þurfti einnig tekjur annars staðar frá. Hér myndi ég segja að hafi orðið svolítil niðursveifla á bænum sem breyttist aftur við heimsstyrjöldina síðari. Þá varð matarskortur í landinu og auðveldara að fá vinnufólk þannig að lífið á Kjepso varð aftur blóm- legt á ný. Þá kom hestur á bæinn og það var mikið framleitt af kartöflum og mjólk og einnig svolítið tóbak,“ segir Per Ragnar en á þessum tíma var þjóðvegurinn byggður fyrir neðan Kjepso og á tímabili bjuggu tugir vegagerðarmanna á bænum. „Eftir stríðið urðu meiri vand- ræði hjá föður mínum hér því tón- listin hans, harmonikkuspilið, var orðið gamaldags og hann fékk exem af vinnu sinni við skógarhöggið. Hann fékk því vinnu árið 1952 í verksmiðjunni í Álavík og hér lík- aði honum vel og vann sín verk af miklum móð. Á þessum tíma var búskapurinn lítill sem enginn, aðeins nokkrar kindur. Eftir þetta hefur aðallega verið stundaður land- búnaður á Kjepso af áhugamennsku en kindunum skiptum við út fyrir skoskt háfjallafé sem er auðveldara að eiga við, það gengur úti nánast allt árið og hjálpar til við að halda skóginum hér í kringum bæinn í skefjum. Þannig að svona hefur þetta verið undanfarna áratugi og hér hefur mér og minni konu ávallt liðið mjög vel. Þegar við erum á Kjepso, þá erum við heima. “ /ehg - angursfjarðar. Það er fínasta leið að Kjepso, mörg þrepin að fara og jafnast á við létta fjallgöngu, sumar tröppurnar eru meira að segja teppalagðar. - vegginn í baksýn en því er vel viðhaldið og vistlegt. Eitt af gömlu húsunum á Kjepso, húsmannsstova, um 100 ára gamalt hús, Gamlastova, sem er talin vera frá 1610 og sjást merki á veggjum eftir veggföst húsgögn frá þeim tíma sem Mikkel Kjepso var úthlutað svæðinu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.