Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Landnámshænan er eitt af íslensku
búfjárkynjunum og telst til svo-
kallaðra landkynja en það eru hús-
dýr sem hafa aðlagast umhverfi
sínu án sérstakra kynbóta.
Landnámshænan er harðgerð,
forvitin og dugleg að bjarga sér.
Eigenda- og ræktendafélag land-
námshænsna (ERL) er félag sem
stofnað var til utanumhalds á land-
námshænunni og ræktun hennar.
Stuðla þannig að verndun hennar
og vera vettvangur fyrir áhugafólk
um hana til þess að koma saman
eða vita af hvað öðru. Félagið var
stofnað árið 2004 og er því að
hefja sitt fjórtánda starfsár. Félagið
byggir á vinnu og verndunarstarfi
dr. Stefáns Aðalsteinssonar búfjár-
fræðings, sem starfaði lengi vel hjá
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
(RALA) og var ötull talsmaður
verndunar erfðauðlinda. Hann var
frumkvöðull í verndun landnáms-
hænunnar á árunum í kringum 1975
er hann ferðaðist um landið og safn-
aði saman landnámshænum og eggj-
um úr henni á þeim stöðum sem hann
taldi fuglinn vera óblandaðan.
Skilgreining á landnámshænum
Á aðalfundi 2011 var samþykkt
að skipa fimm manna nefnd á
vegum félagsins (ERL) til þess að
skilgreina einkenni landnámshæn-
unnar. Í þessari nefnd sátu Ólafur
Dýrmundsson, Jóhanna Harðardóttir,
Júlíus Már Baldursson, Jónas P.
Hreinsson og Bjarni Sigurðsson.
Nefnd þessi kynnti niðurstöð-
ur sínar á aðalfundi 2012 og voru
þær samþykktar með minni háttar
athugasemdum á fjölmennum aðal-
fundi árið 2012.
Framhaldsvinna ERL hvað þetta
snertir var að koma upp skrá yfir
viðurkennda ræktendur á land-
námshænum af hálfu ERL. Það eru
ræktendur landnámshænsna sem
halda og rækta landnámshænur
sem standast útlits- og atferlisein-
kenni félagsins. Aðalfundur 2013
fól stjórn að koma þessari vinnu í
framkvæmd. Þetta var nauðsynlegt
skref í því langhlaupi sem verndun
landnámshænunnar er. Þetta kemur
reglu á ræktunarstarfið, tryggir kaup-
endum landnámshænsna þá vöru
sem þeir telja sig vera að kaupa og
auðveldar ræktendum og eigendum
markmiðasetningu í sinni ræktun og
hænsnahaldi. ERL hvetur ræktendur
landnámshænunnar að halda henni á
lofti í umræðunni og vera duglega að
miðla fuglum eða eggjum til þeirra
sem hafa hug á að koma sér upp
stofni landnámshænsna.
Endurgjaldslaus úttekt fyrir
félagsmenn
Öllum félagsmönnum gefst kostur
á að fá úttekt af hálfu félagsins
endurgjaldslaust á sínum hænum og
fá þannig staðfestingu og leiðsögn
um ræktunarstarfið sitt. Þetta er
þó engin skylda og félagið stendur
öllum áhugamönnum opið. Standist
viðkomandi hópur skoðun þá verð-
ur eigandi viðkomandi hóps hluti
af tengsla- og ræktunarneti land-
námshænsna. Nafn hans birtist á
ræktendalista félagsins, í árlegu
tímariti félagsins, Landnámshænan,
og á heimasíðu félagsins www.haena.
is. Ræktendalistinn birtist einmitt
í grein Jóhönnu Harðardóttur í
Bændablaðinu 12. janúar síðastliðinn.
Stjórn ERL vill koma fram þakk-
læti til þeirra fjölmörgu félagsmanna
sem sótt hafa um vottun/úttekt á
sínum hænum. Þetta starf er þó allt
rekið í sjálfboðaliðavinnu og tekur
því stundum lengri tíma en áætlað
er. Það er því mikilvægt að þakka
þeim vel sem komið hafa að vottun/
úttekt og ekki sýst þeim fjölmörgu
umsækjendum sem sumir hverjir hafa
sýnt einstaka biðlund eftir heimsókn.
Það er líka ánægjulegt að heyra af
þeim sem bæta sig eftir að komið
hafa upp áföll í ræktuninni.
Mikill áhugi er á félaginu um
þessar mundir og því ber að fagna.
Félaginu berast fjölmargar fyrir-
spurnir í hverri viku. Það er greinilegt
að hænsnaunnendum er umhugað um
landnámshænuna og verndun hennar.
Félagið er fyrir alla sem vilja hag
landnámshænunnar sem bestan. Það
þarf ekki að eiga hænur til þess að
vera með og taka þátt í verndunar-
starfi landnámshænunnar. Nýir
félagar eru ávallt velkomnir.
Stjórn Eigenda- og ræktendafé-
lags landnámshænsna
Hugi Ármannsson,
formaður
Valgerður Auðunsdóttir,
gjaldkeri
Magnús Ingimarsson,
ritari
Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna (ERL):
Landnámshænur og ræktun þeirra
Hjólabúnaður Þrýstibremsur Nefhjól
Læsanlegir og einfaldir
beislisendar
Ljós og ljósabúnaður
Bremsuborðar Hjólalegur
Hjólnöf
Bremsubarkar
Samhliða innflutningi okkar á Indespension kerrum
erum við með varahluti og hluti til kerrusmíða fyrir
flestar kerrugerðir, t.d. Indespension, Ifor Williams o.fl.
Eigum á lager mikið úrval varahluta í helstu gerðir
bremsu og hjólabúnaðar fyrir Alko og Knott. Bjóðum
einnig sérpantanir.
Kerruvarahlutir á góðu verði
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Aðalfundur
Sambands garðyrkjubænda
verður 16. mars 2017, kl. 13:00
á Icelandair Hótel Flúðum.
Hefðbundin aðalfundarstörf,
skv. samþykktum félagsins.
Félagar hvattir til að mæta vel til fundarins.
Á FAGLEGUM NÓTUM
ERL vottar að hér eru haldnir fuglar samkvæmt gildandi reglum um
viðurkennd útlits- og atferliseinkenni landnámshænsna.
ERL áskilur sér að setja viðkomandi á skrá yfir viðurkennda ræktendur á
heimasíðu félagsins www.haena.is
ERL áskilur sér rétt til að framkvæma skoðanir til breytinga á
skráningunni ef þurfa þykir eða ábendingar berast.
__________________________________________
Nafn
__________________________________________
Kennitala
__________________________________________
Heimilisfang
__________________________________________
Póstnúmer og staður
Stjórn ERL
EIGENDA- OG RÆKTENDAFÉLAG
LANDNÁMSHÆNSNA
_______________________________
Undirskrift formanns
_______________________________
f.h. trúnaðarmanna
_____________________
Dagsetning
Landnámshænur. Mikið er lagt upp úr því hjá ERL að halda stofninum hrein-
um samkvæmt þeirri skilgreiningu sem gerð var 2012. Allir blendingar með
önnur einkenni eru því ekki viðurkenndir af félaginu sem landnámshænur.
Svona lítur vottorðið út sem á að staðfesta að þeir sem það fá haldi fugla
samkvæmt gildandi reglum um viðurkennd útlits- og atferliseinkenni land-
námshænsna.