Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 34

Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Wallis dráttarvélar nutu talsverðra vinsælda í Norður-Ameríku á fyrri hluta síðustu aldar. Þær urðu síðar hluti af Massry-Harris samstæð- unni. Uppruna Wallis dráttar- véla má rekja til fyrirtækis- ins J. I. Case Plow Works sem var stofnað í Ohio-ríki í Bandaríkjunum árið 1884 til að framleiða plóga og önnur jarðvinnslutæki. Þegar stofnandi fyrirtækis- ins, Jerome I. Case, féll frá 1891 tók tengdasonur hans, Henry M. Wallis, við rekstrinum. Samhliða framleiðslu á jarðvinnslutækj- um hóf hann hönnun á þriggja járnhjóla dráttarvél sem ganga átti fyrir olíu í stað gufu sem var algengast á þeim tíma. Fyrsti Wallisinn Árin 1912 og 1914 setti fyrir- tækið á markað tvær týpur Wallis dráttarvéla sem kölluðust Bear og Cub, eða Björninn og Húnninn, og voru mismunandi af stærð. Bear var mun stærri og öflugri en Cubinn. Við markaðssetningu traktoranna var mikið lagt upp úr að þeir væru sparneytnir á olíu. Björninn Björninn var um 50 hest- öfl, vó rúm sjö tonn og með fjögurra strokka og til þess gerður að draga stór og þung jarðvinnslu- tæki og plóga. Framhjólið var um metri að breidd og afturhjólin hálf sú stærð. Ganghraðinn var þrír gírar áfram og einn aftur á bak. Húnninn Fyrsta útgáfan af húnin- um var 25 hestöfl og vó rúm 3,4 tonn en sú sem fylgdi í kjölfarið var 44 hestöfl og tæp 3,8 tonn að þyngd og með fjögurra strokka vél. Gírarnir voru tveir áfram og einn aftur á bak. Wallis Cub var fyrsta dráttar- vélin sem var með heilum undir- vagni. Cub Junior Sala á Cubnum var góð og á næstu árum voru nýjar týpur eins og Cub Junior eða Model J settar á markað. Junior var 25 hestafla smátraktor á þremur hjólum og vó ekki nema 1,3 tonn. Ganghraðinn var einn gír áfram og einn aftur á bak. Módel K og OK Árið 1920 setti fyrirtækið módel K sem var fjögurra hjóla dráttarvél sem byggði að hluta á hönnun bresku Ruston og Hornsby dráttarvélanna. Stærstur hluti Model K var framleiddur til útflutnings og seldur til Ástralíu og Nýja- Sjálands. Þrátt fyrir að Model K væri fjögurra hjóla voru 380 slíkir framleiddir á þremur hjólum. Árið 1923 var greint frá því að hönnun á nýrri týpu Wallis dráttarvélar væri vel á veg komin og skyldi hún kallast Model OK. Um var að ræða minnsta Vallis traktorinn til þessa og var hann ætlaður vínberja- og ávaxta- ræktendum. Salan hans var dræm og framleiðslunni fljótlega hætt. Massey-Harris eignast J. I. Case Plow Works Árið 1927 tók Massey-Harris að sér sölu á Wallis dráttarvél- um í Kanada og ári síðar yfirtók Massry-Harris fyrirtækið með manni og mús. J. I. Case Plow Works er því að hluta til grunnur- inn að því veldi sem seinna varð Massey-Harris Feguson. /VH Breska fjármálablaðið Financial Times sagði fyrr í mánuðin- um að evrusvæðið (Eurozone) sé enn og aftur komið í vand- ræði út af Grikklandi. Eftir nokkurra mánaða þögn sé vandi Grikklands nú aftur að komast í kastljósið sem mesta áhyggjumál Evrópusambandsins. Sem kunnugt er fór ESB í stór- kostleg peningaútlát til að kaupa verðlaus skuldabréf af bönkum í Grikklandi sem útilokað var að Grikkir gætu staðið við að borga. Peningarnir runnu síðan áfram, eink- um inn í þýska, franska og ítalska banka, sem voru í bakábyrgð fyrir bréfunum. Grískur almenningur var síðan látinn taka á sig skuldir bankanna með því að ríkissjóður Grikklands var gerður ábyrgur fyrir vandræðum óreiðumanna með útgáfu ríkisskuldabréfa á móti fjárstuðningi ESB. Það þýddi um leið botnlausan niðurskurð á útgjöldum gríska ríkis- ins með ómældri skerðingu á opin- berri þjónustu. Það kallaði á mikla reiði almennings í landinu og ekki hefur mikill straumur flóttamanna frá Tyrklandi lagað þá stöðu. Til að fegra stöðuna tóku evrópskir bankar gríðarlegt magn af ónýtum grískum skuldabréfum inn í sína efnahagsreikninga þar sem þeim var veifað sem eign. Þetta hefur síðan verið að plaga banka eins og Deutsche Bank og Banca Monte dei Paschi di Siena á Ítalíu, elsta banka heims, enda eru bréfin jafn verðlaus og áður. Ágreiningur milli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og ESB Nú er uppi klofningur milli Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) og evru- svæðisins vegna þess að fyrri áætl- anir sjóðsins um lausn á vanda Grikklands hafa ekki gengið upp. Þá er krafa ESB um að ríkissjóður Grikklands skili 3,5% afgangi strax á næsta ári og viðhaldi slíku ástandi, talin algjörlega óraunhæf. Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn vill fara hægar í sakirnar og að stjórnvöld í Aþenu skili „aðeins“ 1,5% tekjuafgangi á ríkissjóði til að nota til að greiða niður skuldir, sem flestum hugsandi mönn- um finnst líka út í hött að hægt sé að standa við. Eldfimt mál Málið er talið afar eldfimt vegna komandi kosninga í Þýskalandi, en þýsk stjórnvöld hafa krafist þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn komi að öllum björgunaraðgerðum í Grikklandi, enda evrusvæðið væntan- lega í nægum vandræðum án Grikkja. Átökin nú eru þó ekki bara á milli IMF og stjórnvalda í Berlín, því grísk stjórnvöld eru saltvond yfir svartsýn- um spám IMF og kröfum um aukinn niðurskurð í framtíðinni. Þá kemur væntanlega í ljós í kosningunum í Þýskalandi hvort Angel Merkel held- ur velli eða hvort þýskir kjósendur séu búnir að fá nóg af peningaaustri ríkisins til að bjarga fjárglæframönn- um í bankakerfinu heima og erlendis. Grikkir skulda 320 milljarða evra Skuldir gríska ríkisins nema nú um 320 milljörðum evra og atvinnu- leysið í landinu er um 23%. Áframhaldandi óvissa um endur- reisn Grikklands er talin draga úr áhuga fjárfesta á að koma þar inn með fjármagn að nýju. Það gerir síðan allar spár IMF óraunhæfar. Verði ekki leyst úr þessum flækjum mun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ekki koma að þriðja hluta endurreisnarpl- ansins sem fyrirhugað er af ESB. Peningakassinn tæmist í júlí Sem stendur hefur gríska ríkið ekki nægt lausafé til að halda rekstri ríkis- ins gangandi nema fram til júníloka. Ef ekki fæst þá frekari aðstoð kemst ríkissjóður landsins í þrot, enda eiga Grikkir þá að standa skil á 7 milljarða evra láni. Peningum sem ríkið á ekki til. Óvissa er um þá aðstoð þar sem samkomulag um leiðir liggur ekki fyrir og virðist vera stál þar sem ESB vill ekki láta af hendi meiri peninga án aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Náist ekki samkomulag komast stærstu bankar Evrópu í enn meiri vandræði en þeir eru þegar í. Ef ekkert gerist, þá segir Financial Times að við blasi raunverulegur grískur harmleikur. /HKr. Enn er titringur á evrusvæðinu og hjá evrópskum bönkum: Raunverulegur grískur harmleikur sagður í uppsiglingu í sumar – Grísk stjórnvöld verða að öllu óbreyttu uppiskroppa með lausafé í júlí UTAN ÚR HEIMI Wallis – Björninn og Húnninn

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.