Bændablaðið - 23.02.2017, Síða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
spenn fyrstu ævidagana. Kálfarnir
eru á spena í um sex mánuði.
Burður á sér yfirleitt stað um
sólarupprás þegar loft fer að hlýna
á hásléttunum sem eykur lífslíkur
afkvæmanna.
Karldýrin verða ekki kynþroska
fyrr en við þriggja ára aldur.
Lamadýr eru hópdýr þar sem tugir
og jafnvel hundruð dýra geta mynd-
að hóp. Hver hópur samanstendur af
minni fjölskylduhópum með fimm
til tíu kvendýrum og einu karldýri.
Forustukarldýrið makast með öllum
kúnum í fjölskylduhópnum og ver
hann fyrir rándýrum og öðrum mök-
unarfúsum lamanautum.
Sagt er að geld lamanaut séu eins
og bestu varðhundar og víða eru slík,
yfirleitt ein og sér, vanin til að fylgja
sauðfé og geitum og vara bústofninn
við rándýrum.
Varnarhljóð lamanauta er hátt og
hvellt blístur
Ungkarldýr og naut sem ekki eru for-
ustudýr í hjörð mynda hjörð vonbiðla
eða piparsveina sem halda sig frá en
samt norpandi kringum fjölskyldu-
hópana. Laskist forustutarfur fjöl-
skylduhóps eru ungtarfarnir fljótir
til og bítast um hópinn með kjafti,
hnubbi og spörkum.
Burðardýr og ull
Upphaflega voru lamadýr veidd og
nytjuð til átu. Snemma var einnig
farið að nýta ullina til vefnaðar í
teppi, fatnað, reipi og aðra nytjahluti.
Lamadýr eru rúin einu sinni á ári
eða á tveggja ára fresti eftir vexti
ullarinnar og gefur hver rúning af sér
um þrjú kíló af ull. Ull lamadýra er
gerð úr tveimur gerðum hára. Annað
er lengra og grófara, hitt styttra og
fíngerðara. Grófara hárið er notað í
grófari vefnað eins og reipi en það
fínna er spunnið í garn og notað í
klæðnað.
Húðir lamadýra eru spýttar í leður
sem þykir endingargott, enda þykkt,
og meðal annars notað í handtöskur,
belti, húsgögn og skó.
Saur lamadýra er nánast skrauf-
þurr og lyktarlaus við losun og
nýttur sem áburður og eldiviður.
Tilgátur eru uppi um að saurinn
hafi gegnt afgerandi hlutverki sem
áburður í landbúnaðarbyltingunni í
S-Ameríku og sé þannig undirstaða
menningar Maja, Inka, og Asteka.
Svo sem saur húsdýra hefur almennt
gegnt í sögu menningarþjóða heims-
ins.
Fornminjar sýna að lamadýr hafa
verið sett í grafir til að fylgja fólki
yfir í Sumarlandið.
Lamadýr eru í dag, líkt og fyrr á
tímum, notuð sem burðardýr og eiga
auðvelt að feta vegleysur í fjalllendi
sem ófært nútíma farartækjum.
Dýrin geta borið allt að fjórðungi
líkamsþyngdar sinnar, eða milli 25
til 50 kíló eftir stærð. Landadýr eru
einnig einstaklega þolin og geta
borið byrðar yfir 30 kílómetra á átta
til tíu klukkustundum og farið um á
allt að 45 kílómetra hraða á klukku-
stund stuttar vegalengdir í góðu færi.
Þrátt fyrir að lamadýr séu sögð
meðfærileg og viljug burðardýr
eiga ofhlaðnir og þreyttir einstak-
lingar það til að vera staðir, leggj-
ast á jörðina og spýta hraustlega á
þann sem reynir að stugga við þeim.
Dýrin standa yfirleitt ekki upp fyrir
en byrði þeirra hefur verið létt.
Dýr ofar í goggunarröð fjöl-
skylduhópa sýna stöðu sína með því
að spýta á sér lægra sett dýr. Pirruð
lamadýr í dýra- eða á búgörðum
eiga til að gera sama við fólk og
mun spýjan úr þeim vera einkar illa
þefjandi og andstyggileg.
Lamadýr og gull
Lamadýr voru einu eftirlifandi stóru
grasbítarnir í Suður-Ameríku þegar
Kólumbus og kónar hans römbuðu
á Nýja heiminn.
Á tímum Inkaveldis, sem féll fyrir
Spánverjum 1572, voru flest lama-
dýr eign valdastjórnarinnar og fjölda
þeirra stjórnað með ræktun og veiði
bönnuð. Einungis æðstu valdhafar
máttu eiga lamadýr og var fjöldi-
þeirra dýra sem einstaklingur átti
tákn um ríkidæmi hans.
Lamanautum og ófrjóum kúm var
fórnað við trúarathafnir Inka. Kjöt
dýranna þótti best ferskt en það sem
var umfram var saltað eða þurrkað
til geymslu. Auk þess sem sumir lík-
amspartar og innyfli þóttu hafa lækn-
ingamátt væru þau meðhöndluð rétt.
Eftir að Spánverjar lögðu veldi
Inka voru nýju valdhafarnir fljótir
að átta sig á gagnsemi lamadýra.
Í einni heimild segir að hátt í 300
þúsund lamadýr hafi verið í burðar-
lest sem flutti gull úr námum við
borgina Pontosí í Bólivíu til að sefa
gullhungur Spánverjanna.
Evrópumenn fluttu með sér
Gamla heims búfé til Nýja heimsins,
nautgripi, hesta, sauðfé og geitur.
Lamadýr á Íslandi
Þrátt fyrir að engin lamadýr finnist á
Íslandi óskaði Íslenska lamafélagið
eftir umsögn um hugsanlegan inn-
flutning þeirra í bréfi til landbúnað-
arráðuneytisins snemma á þessari
öld. Flytja átti dýrin inn frá Kanada
og nota sem burðardýr í trússferð-
um. Umsagnarbeiðninni var vísað
til Umverfisstofnunar.
Mat Umhverfisstofnunar
Greinargerð Umhverfisstofnunar
frá 12. ágúst 2003, tilvísun
UST20030700070/tb, er eftirfarandi:
Efni – Innflutningur á lamadýrum:
Vísað er í bréf frá landbúnað-
arráðuneytinu, dags. 7. júlí sl.,
þar sem óskað er eftir umsögn
Umhverfisstofnunar vegna
umsóknar um að fá að flytja til
landsins lamadýr, Lama glama.
Í greinargerð með umsókninni
er rakin ástæða þess að farið er
fram á að flytja inn lamadýr og
einnig er á faglegan hátt fjallað
um helstu atriði sem geta skipt
máli við umfjöllun um innflutn-
ing dýranna.
Almenn umfjöllun:
• Umhverfisstofnun hefur farið
yfir innsend gögn. Stofnunin
telur ekki að lamadýr geti
haft bein áhrif á íslenskar
dýrategundir með því að
blandast þeim. Lamadýr geta
hugsanlega borið til landsins
sjúkdóma sem gætu borist
í búfé en það er á höndum
Yfirdýralæknisembættisins að
taka afstöðu til þess þáttar.
• Eins og fram kemur í greinar-
gerð með umsókninni eru lama-
dýr grasbítar en nýta sér einnig
laufblöð. Óvíst er því hvaða
áhrif lamadýr hefðu í íslenskri
náttúru, svo sem í náttúrulegum
birkiskógum, eða á t.d. skóg-
ræktarsvæðum ef þau gætu lifað
hér villt.
• Lamadýr er tiltölulega stór dýr
og auðfinnanleg og á því að
vera auðvelt að halda stofninum
í skefjum eða fella hann með
öllu ef upp koma þær aðstæður
að ástæða er talin til þess.
• Umhverfisstofnun fer með
umsjón friðlýstra svæða þ.m.t.
þjóðgarða. Engin afstaða hefur
verið tekin til þess, innan
Umhverfisstofnunar, að nota
lamadýr sem burðardýr á frið-
lýstum svæðum, sjá umfjöllun
í greinargerð. Þó má gera ráð
fyrir að það samrýmist betur 1.
gr. laga nr. 44/1999 um nátt-
úruvernd að nota íslenska hest-
inn sem burðardýr, á „gamla“
mátann, á Íslandi, þar sem ekki
má nota vélknúin farartæki. En
íslenski hesturinn er órjúfanlega
tengdur menningarsögu lands-
ins. Vissulega hefur það komið
fyrir að stórir hópar hesta hafa
valdið töluverðum landspjöll-
um en strangar reglur gilda um
hestaferðir í þjóðgörðum.
Niðurstaða:
• Umhverfisstofnun telur að
íslenskri náttúru stafi ekki bein
hætta af innflutningi lamadýra
og að tiltölulega auðvelt sé að
hefta útbreiðslu dýranna sé það
talið nauðsynlegt. Ekki kemur
fram í innsendum gögnum
hvort að tegundin geti þrifist
vel á Íslandi séð í ljósi laga um
dýravernd.
• Umhverfisstofnun telur að vel
megi reka vistvæna útivist/
ferðamennsku á Íslandi án
lamadýra og að það eitt rétt-
læti ekki innflutning þeirra.
Stofnunin hefur ekki tekið
afstöðu til notkunar lamadýra
á friðlýstum svæðum.
• Umhverfisstofnun metur ekki
hvort landbúnaði geti stafað
hætta af innflutningi tegundar-
innar vegna sjúkdóma eða
annars.
• Umhverfisstofnun leggst ekki
gegn innflutningi lamadýra
fyrir sitt leyti á þeim forsendum
að stofnunin telur ólíklegt að
tegundin geti haft mikil áhrif á
íslenska náttúru. Stofnunin telur
þó að strangar reglur verði að
gilda um hvernig nota megi
lamadýr og að óheimilt verði að
sleppa þeim villtum í íslenska
náttúru. Umhverfisstofnun telur
ekki sérstaka þörf fyrir inn-
flutning lamadýra til að stuðla
að vistvænni útivist/ferða-
mennsku. Umhverfisstofnun
bendir á að alltaf verður að fara
varlega við innflutning nýrra
tegunda vegna hættu á að sjúk-
dómar berist til landsins.
Lamadýr svo íslensk
Þrátt fyrir tiltölulega hlutlausa
umsögn Umhverfisstofnunar lagðist
yfirdýralæknir alfarið gegn innflutn-
ingnum og Guðni Ágústsson, þáver-
andi landbúnaðarráðherra, hafnaði
beiðninni árið 2014. Ekki hefur því
orðið af innflutningi lamadýra til
Íslands.
Öll nótt er þó ekki úti. Lamadýr
eru í eðli sínu svo íslensk, svöl til
augnanna og harðgerð og líkjast
helst hálslangri sauðkind. Dýrin
myndu án efa falla vel að íslenskri
fjalla- og jöklasýn. – Lamadýrin
heim.
Lamadýr geta verið tvílit og kallast því líklega skjöldótt.
Við mökun liggja kvendýrin, sem er óvenjulegt, meðal stórra spendýra.
Mökunin tekur frá tuttugu mínútum upp í klukkustund sem er einnig óvenju-
legt meðal spendýra.
Sagt er að geld lamanaut séu eins og bestu varðhundar og víða eru slík vanin
til að fylgja sauðfé og geitum og vara bústofninn við rándýrum.
Höfuð lamadýra er fremur smátt mið-
að við líkamsstærð og eyrun löng.
Mynd / HKr.
Pirruð lamadýr í dýra- eða á búgörð-
um eiga til að spýta hraustlega á fólk
og mun spýjan úr þeim vera einkar
illa þefjandi og andstyggileg.