Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
SKÓGARMÁL
Skógrækt er á allra vörum eftir að
ný „Brynhildarskýrsla“ var kynnt
í liðinni viku. Samkvæmt skýrsl-
unni gæti árleg nettóbinding
íslenskra skóga orðið um ein
milljón tonna um miðja öldina,
mælt í koltvísýringsígildum, ef
gróðursett væri fjórum sinnum
meira á hverju ári en nú er gert.
Það væru 12 milljónir plantna
á ári og ætla má að kostnaður við
það væri um 1,8 milljarðar króna
með öllu. Hvort það telst há eða
lág upphæð fer eftir samanburðin-
um. Hún er t.d. mjög lág miðað við
arðgreiðslur bankanna.
Eigendur lögbýla eiga þess kost
að fá framlög fyrir allt að 97%
kostnaðar við nýskógrækt eins
langt og fjárveitingar ríkisins duga.
Að auki hefur ríkið mikið land til
umráða sem hentar til skógræktar.
En ef ráðast á í stóraukna skógrækt
sumarið 2018 þarf loforð um aukið
fé að liggja fyrir á næstu vikum.
Í skýrslu Hagfræðistofnunar, sem
Brynhildur Davíðsdóttir prófess-
or ritstýrði, kemur fram sú spá að
losun muni aukast um 53-99 pró-
sent fram til ársins 2030 frá því sem
var 1990. Ef kolefnisbinding með
skógrækt og landgræðslu er tekin
með verður aukningin heldur minni,
eða 33-79 prósent. Mest eykst los-
unin frá stóriðju. Í skýrsl unni eru
tíundaðir margvíslegir möguleikar
sem Íslendingum standi til boða
til að draga úr losun. Að óbreyttu
stefni í að Ísland standi ekki við
skuldbindingar sínar gagnvart
Parísarsamningnum til 2030, en
slíkt sé hins vegar mögulegt, verði
gripið til frekari mótvægisaðgerða.
Ein milljón tonna 2050?
Skógrækt er ein þeirra leiða sem
tíundaðar eru í skýrslunni og
geta bundið mikið magn koltví-
sýringsígilda á hagkvæman hátt.
Einungis lítill hluti landsins sé
þakinn skógi og rannsóknir sýni
að verulegt magn koltvísýrings
bindist í skógi og skógarjarðvegi á
Íslandi. Heildarumfang bindingar
árið 2030 vegna skógræktar að
gefnum forsendum geti orðið 369
þúsund tonn koltvísýringsígilda
með óbreyttu umfangi skógræktar
en 535 þúsund tonn ef umfangið
væri fjórfaldað. Með þeim hraða
næði bindingin einni milljón tonna
á ári um miðbik aldarinnar.
Binding eins tonns koltvísýr-
ingsígilda með skógrækt kostar um
2.500 krónur. Að sjálfsögðu gefa
skógarnir fleira en kolefnisbindingu
og með tímanum verður til verð-
mæt auðlind. Skógrækt hefur það
fram yfir ýmis önnur loftslagsúrræði
að gefa margvíslegan arð umfram
kolefnisbindinguna sem af henni
hlýst.
Tækifæri bænda
Fullyrða má að aldrei fyrr hafi verið
brýnna að hefja hakann á loft og
rækta nýjan skóg á Íslandi. Sem
vörslumenn landsins hafa bænd-
ur mikilvægu hlutverki að gegna
í þessum efnum. Um leið og þeir
rækta skóg á jörðum sínum og
binda með því kolefni búa þeir í
haginn fyrir komandi kynslóðir.
Landið verður verðmætara, láns-
traust bænda í bönkum eykst, skjól
myndast fyrir menn og skepnur
og um leið eykst frjósemi ræktar-
lands. Á fimmtán til tuttugu árum
myndast grisjunarviður sem nýtist
í girðingarstaura, kurl og fleira.
Ungur bóndi sem hefur skógrækt
uppsker smíðavið úr skógi sínum
áður en starfsævin er úti.
Hið opinbera á líka mikið land
sem hentar til skógræktar og nú
er lag að nýta það til þessa brýna
verkefnis.
Í frétt um skýrslu Hagfræði-
stofnunar á vef umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins er vísað til
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar þar sem segir að gerð verði
aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í
samræmi við Parísarsamkomulagið.
Áætlunin feli meðal annars í sér
græna hvata, skógrækt, landgræðslu
og orkuskipti í samgöngum. Björt
Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, stefni að því að kynna
Alþingi skýrslu sína um loftslags-
mál nú í febrúarmánuði. Skýrslan
muni m.a. taka mið af þeim niður-
stöðum Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands, sem kynntar voru í síðustu
viku.
Getum við?
En náum við árangri áður en samn-
ingstími Parísarsamkomulagsins
rennur út 2030? Það fer eftir því
hversu dugleg við verðum. Í háspá
margnefndrar skýrslu er gert ráð
fyrir fjórföldun útplöntunar frá
því sem nú er en þá yrði bindingin
orðin ein milljón tonna á ári um
miðja öldina. Þetta er vel gerlegt
með ákveðinni uppbyggingu í
plöntuframleiðslunni og með því
að ráða fólk til starfa við gróður-
setningu. Á láglendi Íslands eru um
11.000 ferkílómetrar lands sem telst
illa eða ógróið (gróðurþekja 50%
eða minni). Þetta er 1,1 milljón
hektara. Við þurfum semsé aðeins
að nota til verksins land sem sam-
svarar litlum hluta láglendisauðn-
anna.. Stór svæði í umsjón
Landgræðslunnar gætu t.d. hentað
mjög vel og nú hafa systurstofnan-
irnar Skógræktin og Landgræðslan
einmitt efnt til samstarfs um að
skógur verði ræktaður á völdum
svæðum þar sem Landgræðslan
hefur stöðvað rof og komið af stað
gróðurframvindu.
Ég trúi því að með skógrækt,
landgræðslu, endurheimt mýra
(þar sem er reyndar mikil óvissa),
rafbílavæðingu, betri meðferð
úrgangs og fleiri ráðum sem nefnd
eru í Brynhildarskýrslunni geti
okkur tekist að standa við skuld-
bindingarnar fyrir 2030. Ef við
hefjum stórfellda skógrækt núna
getum við líka séð járnblendi- og
kísilverksmiðjunum fyrir innlend-
um viði í fyllingu tímans. Úr 20
ára skógi kemur grisjunarviður sem
hentar mjög vel sem iðnviður. Of
skammur tími er fram til 2030 til að
iðnviður fáist úr nýjum skógi á þeim
tíma. Hins vegar er mjög vaxandi
grisjunarþörf í þeim skógum sem
farið var að rækta á lögbýlum upp
úr 1990. Framboð á grisjunarviði
til stóriðjunnar eykst því talsvert á
tímabilinu og það ætti að geta dregið
eitthvað úr losun Íslands, hvort sem
það kemur inn í loftslagsbókhaldið
okkar eða einungis það alþjóðlega.
Sáningartíminn nálgast
En ekki dugar það eitt að tala um
hlutina. Hefjast þarf handa. Skógur
verður ekki ræktaður án fræs eða
skógarplantna, fjármagns eða
vinnandi handa. Á næstu vikum
og mánuðum þarf að liggja fyrir
loforð um meira fé ef auka á gróð-
ursetningu sumarið 2018. Sá þarf
fyrir plöntum og hefja stiklingarækt
strax í vor til að efniviðurinn verði
tilbúinn næsta vor. Um leið þarf að
finna ræktunarlandið, skipuleggja
það og útvega mannskap til gróð-
ursetningar. Ef ekki verður brugð-
ist við fljótt getum við ekki ráðist
í þessa aukningu fyrr en sumarið
2019.
Við megum engan tíma missa.
Sumrin fram til 2030 eru aðeins
fjórtán talsins. Nýtum nú tímann
vel, stöndum við stóru orðin og
stóraukum framlög til skógræktar!
Pétur Halldórsson
kynningarstjóri Skógræktarinnar.
Varahlutir fyrir ámoksturstæki
Varahlutir í Trima og Alö Quicke ámoksturstæki. Einnig stjórnbarkar, suðufestingar ofl.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Stálsteypumót til sölu
Til sölu lítið notuð PREFORM stálsteypumót ásamt fylgibún-
aði, undirsláttarstoðum, steypu-sílói, I-bitum, timbri o.fl.
Uppl. í símum 896-1012 og 898-1014.
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS