Bændablaðið - 23.02.2017, Side 46

Bændablaðið - 23.02.2017, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017 Af og til hef ég í spjalli við menn verið gagnrýndur fyrir að prófa ekki nógu marga rafmagnsbíla, en ástæðan er sú að ég hef ekki séð rafmagnsbíla sem eru með nægi- lega mikla drægni fyrir lands- byggðina og að of fáar hleðslu- stöðvar hafa verið hingað til úti á landi. Nú hefur hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla fjölgað veru- lega á landsbyggðinni og raf- magnsbílarnir eru alltaf að kom- ast lengra og lengra á hleðslunni. Að mínu mati þarf að vera auka- vél sem tekur við þegar rafmagnið er búið til að bíllinn henti vel fyrir íslenskan markað og fyrir nokkru prófaði ég svona bíl. Á að komast yfir 150 km áður en ljósavélin tekur við BMW er, eins og flestir aðrir bílaframleiðendur, farnir að veðja á rafvæðinguna og eru komnir með nokkrar tegundir af rafmagnsbílum. Einn af þessum bílum heitir BMW i3 rex, og er með 170 hestafla raf- mótor. Hann er líka með litla ljósavél sem fer í gang þegar stutt er eftir af hleðslunni og hleður rafmagni inn á rafhlöðurnar til að koma bílnum áfram. Þegar ég fékk bílinn höfðu margir verið að prófa hann á laugardagsopn- un BL og því lítil drægni á bílnum og hraðhleðslustöðin fyrir utan BL upptekin. Litlu seinna kom ég við í BL og þá var hraðhleðslustöðin laus og ég hlóð bílinn í um 30 mín. Eftir þá hleðslu sagði mælaborðið mér að ég ætti að komast 175 km á rafhlöðunni. 175 km hleðslan dugði mér í 108 km Ég ákvað að fara í langan prufu- akstur til þess að sjá hversu langt væri hægt að komast á hleðslunni með því að eyða eins miklu rafmagni og ég gæti. Með miðstöðina í botni, sætishitarann, afturrúðuhitarann og fleira sem tekur rafmagn hraðar af rafhlöðunni náði ég að komast 108 km áður en ljósavélin fór í gang. Þetta var mun lengra en ég hafði fyrirfram búist við. Á meðan þessum akstri stóð fylgdist ég með í mælaborðinu á hvaða hraða ég væri að eyða minnsta og mesta rafmagninu og er það mjög svipað og með aðra bíla að eyðslan er mest við hröðun á bilinu 0 upp í 50 km hraða. Einnig á miklum hraða sem ekki má segja frá á prenti. BMW i3 Rex er gefinn upp fyrir að vera 8,1 sek. að ná 100 km hraða sem er ekki fjarri lagi, allavega fannst mér bíllinn mjög sprækur af stað. Á jafnsléttu og hraða rétt undir 80 er bíllinn að eyða minnsta rafmagni. Ekkert varadekk og furðuleg dekkjastærð Eins og venjulega prófa ég alla bíla á holóttum malarvegum, en þessi bíll er ekki sá skemmtilegasti sem ég hef keyrt á möl þrátt fyrir að vera afturhjóladrifinn. Hann er hastur og allt of lítil fjöðrun út úr dekkjunum, sem er engin furða þar sem dekkin eru óttalegar lakkrís- reimar. Dekkjastærðin er 155/70/19 og er loftþrýstingur í þeim 34 psi að framan og yfir 40 að aftan. Þessa afbrigðilegu dekkjastærð hef ég ekki séð áður undir bíl og mjög fáir dekkjaframleiðendur og innflutn- ingsaðilar með þessa stærð dekkja til sölu. Nær væri að minnka felgur niður í 16 eða 17 tommur til að fá fjöðrun út úr dekkjunum og dekk á viðráðanlegu verði, en það kæmi eflaust niður á aksturseiginleikum á sléttu malbiki. Ekkert varadekk er í bílnum, en í staðinn er rafmagns- pumpa og dekkjakvoða til að bjarga sér á ef dekk springur. Útlit framúrstefnulegt og farangursrými lítið Eftir að hafa klárað rafmagnið fór ljósavélin í gang og malaði ljúft á stöðugum snúningi, en ekki veit ég af hverju mér datt í hug gamli trakt- orinn í sveitinni heima, sem stóð við hlöðuhornið á jöfnum snúningi við súgþurrkun, þegar ég hlustaði eftir hljóðinu í ljósavélinni, en mér fannst hávaðinn í henni full mikill. Spurning um að stækka hljóðkútinn á ljósavélinni. BMW i3 er skráður fyrir fjóra. Til að hleypa farþega inn og út úr bílnum sem situr í aftursætum þarf sá sem situr í framsæti að opna fyrst hurðina hjá sér svo að hægt sé að opna hurðirnar aftur í bílinn sem opnast öfugt. Fótapláss er gott bæði í fram- og aftursætum og ágætis rými, öðru máli gegnir með farangursrými sem er full lítið (ekki nema 260 l) og greinilegt að bíllinn er ekki hannaður með mikil ferðalög í huga. Lokaorð, jákvætt/neikvætt Vissulega tek ég undir þær spár um að rafmagnsbílar séu framtíð- in, en er frekar ósáttur við marga rafmagnsbílaframleiðendur að vistvænir bílar þurfi að vera með eitthvert sér útlit, af hverju þarf þetta sér útlit, sem sumum finnst svo fráhrindandi, að vera á flestum rafmagnsbílum? Plús: Fínn bíll fyrir styttri ferðir, eða um 200 km. Hagkvæmur í rekstri, kraftmikill og snarpur í innanbæjarakstri. Mínus: Ekkert varadekk, lítið far- angursrými, óþarfa vesen að hleypa farþegum í aftursætum inn og út úr bílnum. Verðið á BMW i3 er 5.590.000 (verð á BMW i3 án ljósavélar sem hefur meira drag á raf- magninu kostar 4.790.000). Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.bl.is. Afgerandi minnst rafmagnseyðsla var rétt undir 80 km hraða á klukkustund. Mikið af upplýsingum er hægt að kalla fram úr tölvu bílsins. Það þarf að opna framhurðina til að hægt sé að opna afturhurð. Hjörtur L. JónssonVÉLABÁSINN Ekki nema 260 lítra farangursrými, eða 5 innkaupapokar. Hljóðkúturinn á ljósavélinni mætti vera stærri. 155.70.19. er undarleg dekkjastærð undir bíl og kostar mikið. Þyngd 1.430 kg Hæð 1.578 mm Breidd 1.775 mm Lengd 3.999 mm Helstu mál og upplýsingar BMW i3 Rex. Myndir / HLJ liklegur@internet.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.