Bændablaðið - 23.02.2017, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2017
Af og til hef ég í spjalli við menn
verið gagnrýndur fyrir að prófa
ekki nógu marga rafmagnsbíla, en
ástæðan er sú að ég hef ekki séð
rafmagnsbíla sem eru með nægi-
lega mikla drægni fyrir lands-
byggðina og að of fáar hleðslu-
stöðvar hafa verið hingað til úti
á landi. Nú hefur hleðslustöðvum
fyrir rafmagnsbíla fjölgað veru-
lega á landsbyggðinni og raf-
magnsbílarnir eru alltaf að kom-
ast lengra og lengra á hleðslunni.
Að mínu mati þarf að vera auka-
vél sem tekur við þegar rafmagnið
er búið til að bíllinn henti vel fyrir
íslenskan markað og fyrir nokkru
prófaði ég svona bíl.
Á að komast yfir 150 km áður en
ljósavélin tekur við
BMW er, eins og flestir aðrir
bílaframleiðendur, farnir að veðja
á rafvæðinguna og eru komnir með
nokkrar tegundir af rafmagnsbílum.
Einn af þessum bílum heitir BMW
i3 rex, og er með 170 hestafla raf-
mótor. Hann er líka með litla ljósavél
sem fer í gang þegar stutt er eftir af
hleðslunni og hleður rafmagni inn
á rafhlöðurnar til að koma bílnum
áfram.
Þegar ég fékk bílinn höfðu margir
verið að prófa hann á laugardagsopn-
un BL og því lítil drægni á bílnum
og hraðhleðslustöðin fyrir utan BL
upptekin. Litlu seinna kom ég við
í BL og þá var hraðhleðslustöðin
laus og ég hlóð bílinn í um 30 mín.
Eftir þá hleðslu sagði mælaborðið
mér að ég ætti að komast 175 km á
rafhlöðunni.
175 km hleðslan dugði mér
í 108 km
Ég ákvað að fara í langan prufu-
akstur til þess að sjá hversu langt
væri hægt að komast á hleðslunni
með því að eyða eins miklu rafmagni
og ég gæti. Með miðstöðina í botni,
sætishitarann, afturrúðuhitarann og
fleira sem tekur rafmagn hraðar af
rafhlöðunni náði ég að komast 108
km áður en ljósavélin fór í gang.
Þetta var mun lengra en ég hafði
fyrirfram búist við.
Á meðan þessum akstri stóð
fylgdist ég með í mælaborðinu á
hvaða hraða ég væri að eyða minnsta
og mesta rafmagninu og er það mjög
svipað og með aðra bíla að eyðslan
er mest við hröðun á bilinu 0 upp í
50 km hraða. Einnig á miklum hraða
sem ekki má segja frá á prenti.
BMW i3 Rex er gefinn upp fyrir
að vera 8,1 sek. að ná 100 km hraða
sem er ekki fjarri lagi, allavega
fannst mér bíllinn mjög sprækur
af stað. Á jafnsléttu og hraða rétt
undir 80 er bíllinn að eyða minnsta
rafmagni.
Ekkert varadekk og furðuleg
dekkjastærð
Eins og venjulega prófa ég alla
bíla á holóttum malarvegum, en
þessi bíll er ekki sá skemmtilegasti
sem ég hef keyrt á möl þrátt fyrir
að vera afturhjóladrifinn. Hann er
hastur og allt of lítil fjöðrun út úr
dekkjunum, sem er engin furða þar
sem dekkin eru óttalegar lakkrís-
reimar. Dekkjastærðin er 155/70/19
og er loftþrýstingur í þeim 34 psi að
framan og yfir 40 að aftan. Þessa
afbrigðilegu dekkjastærð hef ég
ekki séð áður undir bíl og mjög fáir
dekkjaframleiðendur og innflutn-
ingsaðilar með þessa stærð dekkja
til sölu. Nær væri að minnka felgur
niður í 16 eða 17 tommur til að fá
fjöðrun út úr dekkjunum og dekk á
viðráðanlegu verði, en það kæmi
eflaust niður á aksturseiginleikum
á sléttu malbiki. Ekkert varadekk er
í bílnum, en í staðinn er rafmagns-
pumpa og dekkjakvoða til að bjarga
sér á ef dekk springur.
Útlit framúrstefnulegt og
farangursrými lítið
Eftir að hafa klárað rafmagnið fór
ljósavélin í gang og malaði ljúft á
stöðugum snúningi, en ekki veit ég
af hverju mér datt í hug gamli trakt-
orinn í sveitinni heima, sem stóð
við hlöðuhornið á jöfnum snúningi
við súgþurrkun, þegar ég hlustaði
eftir hljóðinu í ljósavélinni, en mér
fannst hávaðinn í henni full mikill.
Spurning um að stækka hljóðkútinn
á ljósavélinni.
BMW i3 er skráður fyrir fjóra.
Til að hleypa farþega inn og út
úr bílnum sem situr í aftursætum
þarf sá sem situr í framsæti að opna
fyrst hurðina hjá sér svo að hægt
sé að opna hurðirnar aftur í bílinn
sem opnast öfugt.
Fótapláss er gott bæði í fram- og
aftursætum og ágætis rými, öðru
máli gegnir með farangursrými
sem er full lítið (ekki nema 260
l) og greinilegt að bíllinn er ekki
hannaður með mikil ferðalög í
huga.
Lokaorð, jákvætt/neikvætt
Vissulega tek ég undir þær spár
um að rafmagnsbílar séu framtíð-
in, en er frekar ósáttur við marga
rafmagnsbílaframleiðendur að
vistvænir bílar þurfi að vera með
eitthvert sér útlit, af hverju þarf
þetta sér útlit, sem sumum finnst
svo fráhrindandi, að vera á flestum
rafmagnsbílum?
Plús:
Fínn bíll fyrir styttri ferðir,
eða um 200 km. Hagkvæmur í
rekstri, kraftmikill og snarpur í
innanbæjarakstri.
Mínus:
Ekkert varadekk, lítið far-
angursrými, óþarfa vesen að
hleypa farþegum í aftursætum
inn og út úr bílnum.
Verðið á BMW i3 er 5.590.000
(verð á BMW i3 án ljósavélar
sem hefur meira drag á raf-
magninu kostar 4.790.000).
Allar nánari upplýsingar má
finna á vefsíðunni www.bl.is.
Afgerandi minnst rafmagnseyðsla var rétt undir 80 km hraða á klukkustund.
Mikið af upplýsingum er hægt að kalla fram úr tölvu bílsins.
Það þarf að opna framhurðina til að hægt sé að opna afturhurð.
Hjörtur L. JónssonVÉLABÁSINN
Ekki nema 260 lítra farangursrými, eða 5 innkaupapokar.
Hljóðkúturinn á ljósavélinni mætti
vera stærri.
155.70.19. er undarleg dekkjastærð
undir bíl og kostar mikið.
Þyngd 1.430 kg
Hæð 1.578 mm
Breidd 1.775 mm
Lengd 3.999 mm
Helstu mál og upplýsingar
BMW i3 Rex. Myndir / HLJ
liklegur@internet.is