Bændablaðið - 15.11.2018, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201840
UTAN ÚR HEIMI
Í byrjun október fór hópur
Íslendinga í epla- og ævintýra-
ferð með Erlu Hjördísi
Gunnarsdóttur, blaðamanni
Bændablaðsins og eggja- og
eplabónda í Harðangursfirði
í Noregi, á hennar slóðir þar í
landi.
Ferðin hófst í Bergen og síðan
var haldið í Harðangursfjörðinn þar
sem hópurinn fékk meðal annars
að kynnast norskum matarhefðum,
spreyta sig á eplatínslu og smakka
á ekta norskri sviðaveislu.
Þátttakendur í ferðinni voru alls
staðar að af Íslandi og myndaðist
einstaklega góð stemning í
hópnum, sem lét örlítið úrhelli
á vesturströnd Noregs ekki á sig
fá. Meðal þjóðlegra rétta sem
hópurinn fékk að smakka í ferðinni
voru norsk Betasúpa, sem líkist
íslenskri kjötsúpu, rømmegrøt,
sem er grautur búinn til úr sýrðum
rjóma, ásamt norskri sviðamáltíð
en norsku sviðin eru ólík þeim
íslensku að því leyti að þau eru
léttreykt og er aðeins einn aðili í
Noregi sem framleiðir svið en það
eru bændurnir á Smalahovetunet
við Voss.
Þar að auki heimsótti hópurinn
eplavínsverksmiðju í Ulvik á
Lekve-sveitabænum og virti
fyrir sér gangna- og gatnagerð á
heimsmælikvarða með því að keyra
yfir Harðangursbrúna, sem er ein
af lengstu hengibrúm í heiminum.
Einnig urðu nokkrir fallegir fossar
á vegi hópsins ásamt Oleana-
prjónaverksmiðjunni í Bergen.
Síðan átti hópurinn notalega stund
saman í Bergen áður en haldið var
aftur heim til Íslands eftir góða
daga í Noregi. /ehg
Íslendingar léku við hvurn sinn fingur í ævintýraferð
á heimaslóðir íslenskra og norskra bænda í Noregi
Þorsteinn Pétursson frá Akureyri lét ekki rigninguna aftra sér frá því að tína
nokkur epli í poka í Álavík.
Aðalheiður Einarsdóttir tíndi epli af miklum móð og hafði á orði að þau
lyktuðu einstaklega vel og væru mun bragðbetri en þau sem fást í verslunum
heima á Íslandi.
Þórarinn Björnsson er í þann mund
að fara að smakka norskan mjöð á
Smalahovetunet við Voss, sem líkist
einna helst íslensku malti.
Ingvi Þór Stefánsson frá Grindavík
teigaði norska mjöðinn með bestu
lyst.
Ivar Løne á Smalahovetunet við
Voss útskýrir fyrir hópnum hvernig
framleiðsluferlið virkar en þetta
er eini staðurinn í Noregi sem
framleiðir svið.
Hin þýska Jeannette Huttenlocher og norska Margreta Bjørke aðstoðuðu
hópnum hvernig hann pakkar eplasafa í þriggja lítra umbúðir, eða svokallaðar
„beljur“.