Bændablaðið - 23.08.2018, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201818
HROSS&HESTAMENNSKA
Þráinn frá Flagbjarnarholti er draumareiðhestur þjálfara síns:
Hestalán hollenskra hjóna
Þráinn frá Flagbjarnarholti, 6
vetra gamall stóðhestur, hlaut
hæstu aðaleinkunn kynbótahrossa
á Landsmóti hestamanna 2018.
Fyrr í vor hlaut hann hæstu
einkunn sem gefin hefur verið á
kynbótasýningu. Þessi brúnskjótti
ljúflingur er í eigu hjónanna
Yvonne og Jaap Groven sem hafa
stundað íslenska hestamennsku í
Hollandi í tugi ára.
„Við fengum það strax á
tilfinninguna að það væri eitthvað
einstakt við Þráin. Sú tilfinning
hefur aldrei horfið. Hann var mjög
stoltur sem folald, hreyfingarnar
voru fallegar og karakterinn
sérstakur. Hann var alltaf ráðandi
í hjörðinni en um leið afar ljúfur,“
segir Yvonne Groven, sem ræktaði
og á Þráin frá Flagbjarnarholti ásamt
eiginmanni sínum, Jaap.
Hjónin eru nokkuð afkastamiklir
ræktendur og eiga um 60 hross í
Hollandi, en hluti ræktunarstarfsins
fer þó fram hérlendis.
„Fyrir um 15 árum fengum
við gullið tækifæri til að kaupa
helmingshluti í tveimur mætum
ræktunarmerum, Þyrlu og
Drottningu frá Ragnheiðarstöðum.
Við höfum því fengið eitt folald á
ári á Íslandi,“ segir Jaap.
Báðar eru hryssurnar undan
Krás frá Laugarvatni, og eru því
sammæðra fyrrum töltmeistaranum
Rás frá Ragnheiðarstöðum.
Drottning var alsystir Rásar, undan
Orra frá Þúfu, en Þyrla undan Svart
frá Unalæk. Þyrla er móðir Þráins.
Faðir hans er Álfur frá Selfossi.
Þráinn hlaut hæstu aðaleinkunn
kynbótahrossa á Landsmótinu, 8,92,
sem er aðeins skör frá metdómi hans
fyrr um vorið, þegar hann hlaut
hæsta kynbótadóm sem kveðinn
hefur verið upp, 8,95.
Þráinn er með 8,70 fyrir
sköpulag og hlaut 9,06 fyrir kosti á
Landsmótinu, þ.á m. 9,5 fyrir skeið
og vilja og geðslag en einkunnina 9
fyrir tölt, fegurð í reið, fet og hægt
tölt.
Með fyrirvara um flutning
Þórarinn Eymundsson á veg og
vanda að tamningu Þráins. Hjónin
segja að umönnun og góð eftirfylgni
á svo efnilegum stóðhesti byggi
helst á góðri samvinnu milli þeirra
og Þórarins.
„Við höfðum t.d. þann fyrirvara
þegar hann tók við Þráni, að hann
myndi keyra suður og sækja
hestinn sjálfur. Við höfum séð svo
margt rangt gerast við flutning á
hestum. Við vildum að Tóti vissi
nákvæmlega hvað hesturinn hefði
gengið í gegnum frá fyrsta degi.“
Haggaðist ekki í hávaðaroki
Þórarinn tók fyrirvaranum, sótti
folann og sá fljótlega að þarna var
kominn fram spennandi foli.
„Hann tamdist auðveldlega.
Einhvern tímann í febrúar var búið
að frumtemja hann og ég farinn að
sækja meira gangtegundirnar, þá
var ég sannfærður um að ef hann
fengi ekki einkunnina 9 fyrir tölt 4
vetra þá fengi hann 9,5. Þá var hann
þannig á tölti að mig óraði ekki fyrir
því að skeiðið yrði svona opið. Ég
vissi þó að þetta væri alhliðahestur.
Þegar kom undir vorið fór ég aðeins
að fikta meira við rýmið og prófa að
hleypa honum og sjá hvað gerist. Þá
dettur hann strax í skeið og eftir 2–3
skipti var hann farinn að brunskeiða.
Í staðinn fyrir að fara í 9–9,5 fyrir
tölt þá fór hann í 8,5 fyrir tölt og 8,5
fyrir skeið í kynbótadómi 4 vetra
gamall sem er mjög gott,“ segir
Þórarinn og rifjar upp heimsókn
mætra Skagfirðinga í hesthúsið
þennan fyrsta vetur þeirra saman.
„Það var leiðindaveður þennan
dag, mjög hvasst, en ég var í stuði til
að sýna þeim einhvern góðan hest.
Ég lagði á hann í rokinu og hallaði
mér upp í vindinn og fór af stað.
Þeir fóru inn í bíl og keyrðu niður á
völl. Ég reið þar á tölti. Þessir menn
voru einmitt að rifja það upp hvað
hann hefði verið góður á tölti og
haggaðist ekki á töltinu. Hann lét
vindinn ekkert á sig fá, þó aðeins
4 vetra.“
Hann segir söguna lýsandi
dæmi um Þráin, sem sé í öllu
falli draumareiðhestur. „Hann
er fallegur, hreyfingagóður og
geðgóður. Stundum eru vel dæmdir
hestar ekkert endilega eftirlætis
reiðhesturinn manns þó þeir skili
gangtegundum vel. En það er gaman
þegar þetta fer saman.“
Ekki á leið til Hollands
Þórarinn hlakkar til að vinna meira
með þessum mæta stóðhesti.
„Það skiptir mestu máli með
svona hesta að hugsa vel um þá,
þjálfa þá rétt og vel. Við eigum
eflaust eftir að fara meira í brautina,
í keppnir og sýningar og slíkt. En
fyrst um sinn verður stærsta hlutverk
hans að sinna íslenskri hrossarækt.“
Hjónin taka undir orð Þórarins og
segja hestinn ekki á leið til Hollands
að sinni. /ghp
Fimmfaldur
meistari
Landslið Íslands í hestaíþróttum
reið nokkuð feitum hesti frá
Norðurlandamóti íslenska
hestsins sem fram fór í Svíþjóð
á dögunum.
Védís Huld Sigurðardóttir hlaut
fimm gull á mótinu; í fimmgangi
unglinga, gæðingaskeiði unglinga,
100 m flugskeiði unglinga, 250 m
skeiði unglinga og samanlögðum
fimmgangsgreinum unglinga.
Hún sat hestinn Krapa frá Fremri-
Gufudal.
Védís Huld er einungis 14 ára
og býr á Sunnuhvoli í Ölfusi þar
sem fjölskyldan stundar saman
hrossarækt, tamningar, þjálfun og
reiðkennslu.
Íslenska liðið hlaut fimmtán
verðlaun á mótinu, átta gull, átta
silfur og þrjú brons í hinum ýmsu
greinum á mótinu.
– Sjá nánar á bls. 32.
Minni hrossa-
útflutningur
Útflutningur hrossa er minni en
síðustu ár, samkvæmt tölum frá
Worldfengur, upprunaættbók
íslenska hestsins.
Það sem af er árinu hafa 585
hross verið flutt til 17 landa. Mun
það vera rúmum 100 hrossum
færra en höfðu verið útflutt í fyrra
og rúmum 200 hrossum færri en
árið 2016, en þá höfðu 759 hross
yfirgefið landið á sama tíma.
Flest hross fóru til Þýskalands,
eins og alla jafna, eða 250 talsins.
Þá fóru 72 hross til Sviss, 64
til Danmerkur og jafnmörg til
Svíþjóðar. Eitt hross fór til Möltu en
það mun vera eina íslenska hrossið
skráð á eyjunni.
Af þeim hrossum sem hafa farið
utan á þessu ári hafa 35 þeirra hlotið
fyrstu verðlaun í kynbótadómi, 23
stóðhestar og 12 hryssur.
Hæst dæmda útflutta hross ársins
er hryssan Paradís frá Steinsholti, en
hún var önnur í flokki 5 vetra hryssa
á Landsmóti hestamanna í sumar.
Þá hefur stóðhesturinn Þeyr
frá Akranesi verið fluttur til
Svíþjóðar. Stóðhesturinn Glaumur
frá Geirmundarstöðum fór til
Danmerkur, en hann er einn af
hæst dæmdu afkvæmum Spuna frá
Vesturkoti.
Leiðrétting:
Refillinn var 15
metra langur
Í síðasta blaði sögðum við frá
sýningu Söguseturs íslenska
hestsins. Þar var fjallað um
sagnarefil, sem lýsir sögu íslenska
hestsins síðustu 100 ár, og hann
sagður 5 metra langur. Hið rétta
er að hann er 15 metra langur.
Leiðréttist það hér með. /ritstj.
Þráinn vakti eftirtekt eigenda sinna strax á unga aldri fyrir ljúfa nærveru.
Hann var þó alltaf ráðandi í hjörð sinni. Hér er folinn 2 vetra gamall.
Þráinn hlaut einkunnina 9,06 fyrir kosti, m.a. 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag
og 9 fyrir tölt, fegurð í reið, fet og hægt tölt.
Yvonne og Jaap Groven segja að umönnun og góð eftirfylgni á efnilegum stóðhesti byggi helst á góðri samvinnu milli þeirra og Þórarins Eymundssonar,
þjálfara og knapa hans. Mynd/ghp
Hin 14 ára gamla Védís Huld og Krapi.
Mynd/Árný Oddbjörg Oddsdóttir