Bændablaðið - 23.08.2018, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. ágúst 201824
UTAN ÚR HEIMI
Fyrr á árinu greindi Bændablaðið
frá gufuvélinni Soilprep frá
norska fyrirtækinu Soil Steam
International sem kom á markað
í sumar og hefur þróunarvinna á
tækinu tekið 20 ár.
Vélin veldur byltingu við ræktun
á grænmeti og berjum utandyra með
því að læsa gufu á 30 sentímetra dýpi
í jarðveginum, nær hún að eyða
illgresi, sveppum og þráðormum með
góðum árangri. Þetta getur þýtt allt
að 40 prósenta meiri uppskeru á þeim
svæðum sem gufuvélin er notuð.
Þrátt fyrir mikla þurrka og erfið
skilyrði fyrir marga bændur í Noregi
í sumar hefur komist á reynsla við
notkun vélarinnar sem virðist gefa
góða raun.
„Í lok maí og byrjun júní fóru
fram tilraunir á mínum sveitabæ
í Lier. Með Soilprep var um sjö
metra breitt belti gufað á landi
sem er um 300 metra langt. Eftir
þetta ferli ræktuðum við kínakál á
svæðinu. Það sem við sjáum núna
er að svæðið sem hefur fengið
gufumeðferð er nánast laust við
illgresi á uppskerutímabilinu. Það
sem við sjáum er örlítið illgresi í
öðrum enda svæðisins en það er
skiljanlegt og bjuggumst við alveg
eins við því þar sem erfitt var fyrir
vélina á ná inn á það. Við sjáum
núna að uppskeran er um 15%
meiri en verið hefur og þökkum við
það gufuaðferðinni,“ segir Martin
Sørum, framkvæmdastjóri hjá
fyrirtækinu Lier Grønt. /ehg
Norsk vél losar bændur við að nota eiturefni í landbúnaði:
Notkun gufu við ræktun
utandyra gefur góða raun
– Virkar vel við að eyða illgresi, sveppum og þráðormum í jarðvegi
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Réttu
græjurnar!
Við sérhæfum okkur í öryggisbúnaði
m.a. heyrnarhlífum og samskiptabúnaði.
Hugaðu að heyrninni, hún er mikilvæg!
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Fyrir börnin
Í skotveiðina
Bluetooth
Áföst á hjálmi
Hefðbundin
Fyrir samskipti
Í yfirlýsingu frá Alþjóðama t-
vælastofnuninni, FAO, segir að
lirfur haustherorma muni ógna
matvælaöryggi milljóna smábænda
í Asíu á næstu árum.
Ormarnir hafa náð fótfestu á
Indlandi og munu á næstu árum dreifa
sér til svæða í Suðaustur-Asíu og
suðurhluta Kína og valda verulegum
skaða á uppskeru, að sögn sérfræðinga
FAO.
Lirfa haustherorma, þeirra fyrstu í
Asíu, varð fyrst vart á Indlandi fyrir
tveimur árum og síðan þá hefur þeim
fjölgað hratt og útbreiðslusvæði þeirra
stækkað með ógnarhraða.
Éta allan gróður
Viðkoma haustherorma er hröð í
heitu loftslagi. Úr púpu herlifranna
skríður fluga sem getur ferðast allt að
100 kílómetra á sólarhring til að finna
sér hýsilplöntu til að verpa í. Eftir þrjá
til fimm daga skríður úr eggjunum ný
kynslóð herlifra sem í tvær til þrjár
vikur éta allan gróður sem að kjafti
kemur. Púpustig herormanna er ein til
tvær vikur og líftími flugunnar ellefu
til fjórtán dagar.
Meðal nytjaplantna sem geta orðið
illa úti af völdum herlirfa eru maís,
hrísgrjón, kálplöntur, bómull og um
það bil áttatíu aðrar tegundir.
Samkvæmt yfirlýsingu FAO er
hætta á að lirfurnar valdi miklu tjóni
á hrísgrjóna- og maísuppskeru í
Suðaustur-Asíu og suðurhluta Kína á
þessu ári. Aðallega á svæðum þar sem
smábændur reiða sig á uppskeruna sér
og sínum til framdráttar.
Víða í Asíu sjá smábændur um
ræktun á um 80% landbúnaðarlands og
er áætlað að yfir 200 milljón hektarar
séu notaðir til ræktunar á hrísgrjónum
og maís og um 90% af hrísgrjónum í
heiminum eru framleidd í Asíu.
Upprunnir í Suður-Ameríku
Haustherormar eru upprunnir í
Suður-Ameríku. Þeirra varð fyrst
vart í Afríku 2016 og síðan hafa þeir
farið eins og eldur í sinu um álfuna
sunnan Sahara og valdið miklum
uppskeruskaða og dreift sér til Asíu.
Nafnið herormar er dregið af því
að lirfurnar eiga það til að feta sig
þúsundum saman á milli gróðursvæða
og þá helst um graslendi og yfir á
ræktunarsvæði. Lirfurnar éta aðallega
á nóttinni og í skýjuðu veðri og geta á
stuttum tíma étið allt lauf plantnanna
sem þær leggjast á og skilja ekkert eftir
nema beran stöngulinn.
Víða er innflutningsbann á
landbúnaðarvörur þar sem herormar
eru landlægir.
Sérfræðingar FAO vonast til að
geta nýtt reynslu sína í baráttu sinni
við herormana í Afríku til að hefta
útbreiðslu þeirra í Asíu. /VH
Vaxandi útbreiðsla
herorma í Asíu
Ólöglegt skógarhögg í Brasilíu:
Innfæddur umhverfis-
verndarsinni myrtur
Róstur milli innfæddra í skógum
Amason og skógarhöggsmanna
fer vaxandi. Undanfarin ár hafa
innfæddir tekið málin sífellt meira
í sínar hendur í baráttunni við
ólöglegt skógarhögg og til að verja
búsvæði sitt.
Fulltrúar innfæddra segja yfirvöld
ekkert gera til að stöðva ólöglegt
skógarhögg og hafa því reynt að vekja
athygli á málstað sínum og gripið
til aðgerða og skæra til að stöðva
fellingu skóganna. Meðal annars
með því að kveikja í flutningabílum
og tefja skógarhöggið á annan hátt.
Í kjölfarið hefur fjöldi
umhverfissinna og innfæddra sem
hafa látið sig málið varða fundist
látin undanfarin ár. Talið er að
margir hinna látnu hafi verið myrtir
af málaliðum tengdum fyrirtækjum
sem stunda skógarhögg.
Brasilíski umhverfis verndar-
sinninn og leiðtogi Guajajara-
fólksins fannst látin við árbakka
skammt frá þorpi Gujajara-fólksins
fyrir skömmu. Talið er að hún hafi
verið myrt af málaliðum aðila
sem stunda ólöglegt skógarhögg.
Atvikið er ekki einangrað því frá
aldamótunum 2000 hafa 80 manns
af þjóðflokki Guajajara-fólksins
fundist myrt á svipuðum slóðum.
/VH
Sônia Guajajara,
leiðtogi Guaja-
jarafólks ins og
arsinni, er talin
hafa verið myrt
af málaliðum
fyrirtækis sem
má vel sjá skilin sem verða á milli
þess svæðis sem fékk meðferð með
gufuvél og svæðis sem ekki fékk