Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 4

Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 20194 FRÉTTIR Ný reglugerð ESB um frjálst flæði á lífrænum íburði og rotmassa: Stenst ekki lög um varnir gegn dýrasjúkdómum Í mars 2016 birti Evrópusambandið tillögur að nýrri reglugerð um áburð, sem meðal annars fjalla um að lífrænn áburður geti verið í frjálsu flæði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Lífrænn áburður getur verið molta sem getur innihaldið húsdýraáburð og rotmassa blandaðan húsdýra­ áburði og jafnvel kjöt­ og beina­ mjöli. Halldór Runólfsson fyrrverandi yfirdýra læknir hefur sett saman áhættulista um hættu á innflutningi á búfjár sjúkdómum til landsins. „Mest er hættan ef flutt eru til landsins lifandi dýr en það er bannað og ég tel víst að ekki verði hróflað við því. Næst á eftir á áhættulistanum og er í farvatninu er innflutningur á búfjáráburði eða búfjárskít.“ Reglugerð um áburð og sáðvörur „Ef við bökkum aðeins og horfum til ársins 1994 við upphaf EBS- samningsins þá tók Ísland yfir allar reglugerðir um áburð, fóður og sáðvöru. Undanfarin ár hefur Evrópusambandið verið að undirbúa nýja reglugerð um lífrænan áburð sem verður bætt inn í áburðarreglugerðina. Staðan er því sú að þar sem Ísland er búið að innleiða grunnreglugerðina þá verðum við að innleiða þá nýju líka samkvæmt EES-samningnum.“ Hvað er í lífrænum áburði? Eins og gefur að skilja er innihald lífræns áburðar margbreytilegt. Halldór segir að í drögum að nýju reglugerðinni sé lífrænum áburði skipt í ellefu flokka og meðal annars flokka þar sem blandað er saman húsdýraáburði og plöntuleifum og í ákveðnum tilfellum kjöt- og beinamjöli. Í öðrum flokkum er svo eingöngu um að ræða plöntuleifar eða moltu. Lög um dýrasjúkdóma „Í lögum nr. 25/1993 um dýra- sjúkdóma og varnir gegn þeim er innflutningur á kjöt- og beinamjöli og lífrænum áburði, svo sem alidýraáburði og rotmassa blönduðum alidýraáburði, óheimill, þar sem með lífrænum áburði geta borist smitefni, sem geta valdið dýra- og plöntusjúkdómum.“ Halldór segir því ljóst að Ísland þarf séraðlögun um að takmarka innflutning lífræns áburðar, til að vernda sérstöðu landsins, hvað varðar góða stöðu dýra- og plöntusjúkdóma. „Ég tók saman áhættumat vegna þessa máls fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og skilaði því í mars 2018. Í áhættumatinu er gerð grein fyrir að það geti verið margir dýra- og plöntusjúkdómar, sem flestir finnast ekki hér á landi, sem geta borist til landsins með óheftum innflutningi á lífrænum áburði, sérstaklega ef hann væri ekki framleiddur undir ströngustu skilyrðum um eyðingu smitefna. Þar sem of umfangsmikið og tímafrekt var talið að taka alla þessa sjúkdóma til skoðunar, var aðeins gert fullt áhættumat á einum sjúkdómi varðandi hverja af okkar helstu dýrategundum og einum plöntusjúkdómi sem gæti borist í margar plöntutegundir.“ Sjúkdómarnir sem gætu borist til landsins • EHV – 1 eða Herpes veirusmitsjúkdómur í hestum, sem aldrei hefur greinst hér, sem er landlægur í flestum Evrópulöndum og sem Matvælastofnun hefur verið að vara við að gæti borist hingað með fólki og búnaði. • Garnaveiki af þeirri tegund sem fer fyrst og fremst í nautgripi og hefur aldrei greinst á Íslandi. • Mæði/Visna veiran, sem veldur mæðiveiki í sauðfé og útrýmt var hér á landi með gífurlegum tilkostnaði. • PRRS – sem er veiru- smitsjúkdómur í svínum, sem aldrei hefur greinst hér á landi. • AEV sem er veirusmitsjúkdómur í hænsnum, sem aldrei hefur greinst hér á landi. Varðandi plöntusjúkdóma segir Halldór að talið sé að íslenskri garðyrkju og skógrækt gæti stafað mikil hætta af sýkingum af völdum sveppa af tegundinni Phytopthora. Vantar opinbert eftirlit í Evrópusambandinu „Í nýju reglugerð Evrópu- sambandsins er gert ráð fyrir að allur lífrænn áburður og rotmassi sé hitaður í ákveðið hitastig, til dæmis 70° á Celsíus, og haldið við það í ákveðinn tíma til að drepa bakteríur, fræ og aðrar lífverur í honum. Allir sem skoðað hafa moltugerð vita að það getur verið mjög erfitt að ná upp réttu hitastigi og halda því í öllum massanum í nógu langan tíma til að drepa ákveðnar bakteríur og eyðileggja veirur. Áhyggjuefnið er því að ef þessi hiti næst ekki í rotmassa sem er búið að blanda með húsdýraáburði og fleiru munu geta lifað í massanum bakteríur og veirur sem geta valdið dýra- og plöntusjúkdómum hér á landi sé hann fluttur inn.“ Halldór segir að samkvæmt hugmyndafræði nýju reglu- gerðarinnar séu allar viðmiðunar- tölur til staðar en hann hafi meiri áhyggjur af eftirliti með framleiðslunni og að erfitt sé að fá opinbera vottun um að hún sé í lagi. Úrgangur úr gróðurhúsum „Í einum af ellefu flokkum lífræns áburðar eru leifar úr gróðurhúsum og ekki gert ráð fyrir að sá massi sé hitameðhöndlaður sem þýðir að í honum geta leynst alls konar bakteríur og vírusar sem geta borist í gróðurhús hér á landi. Einnig geta leynst í massanum framandi plöntutegundir sem geta valdið usla í ræktun.“ Þurfum undanþágu frá fimm flokkum Halldór segir að af þeim ellefu flokkum lífræns áburðar sem er að finna í nýju reglugerð Evrópusambandsins þurfi Ísland að fá undanþágu frá að minnsta kosti fimm. „Þessir fimm flokkar gætu verið áhættusamir í innflutningi og standast ekki innlendu löggjöfina um varnir gegn dýrasjúkdómum. /VH Búnaðarsamband Eyjafjarðar: Vill segja upp tollasamningi milli Íslands og ESB Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem haldinn var í liðinni viku í Hlíðarbæ skoraði á stjórnvöld að segja upp tolla­ samningi um tollkvóta land­ búnaðarvara milli Íslands og Evrópusambandsins. Í viðræðum við Breta um tollasamning land­ búnaðarvara verði höfð hliðsjón af tollasamningi milli Íslands og Sviss. Fram kemur í greinargerð með ályktuninni að útganga Bretlands úr ESB skapi algjöran forsendubrest núgildandi samnings. Við gerð þess tollasamnings við ESB sem nú er í gildi voru heimildir til útflutnings auknar og þá sérstaklega á skyri og lambakjöti. Þessar vörur hafi að miklum hluta verið fluttar út til Bretlands en ljóst er að Bretar séu á leið úr ESB sem gerir tollasamninginn ómerkan. Viðsemjandinn sé ekki lengur sá sami eftir brotthvarf Breta úr sambandinu. Á síðustu árum hefur verið meiri útflutningur á lambakjöti og ostum til Bretlands en allra annarra landa ESB til samans sem gerir það ljóst að um samningsrof er að ræða. Bæta haga bænda Aðalfundurinn hvatti í annarri ályktun stjórn til að vinna að því að bæta hag bænda með því að láta bjóða í eða semja við söluaðila rekstrarvöru eða þjónustu til að freista þess að ná betri kjörum. Ályktun af svipuðum toga sem samþykkt var á aðalfundi fyrir ári og snerist um sameiginlegt útboð á rafmagnskaupum skilaði bændum verulegum ávinningi í formi lægra verðs á rafmagni. Á fundinum var stjórn BSE veitt heimild til að ganga til samninga við stjórn BSSÞ með það að markmiði að sameina kúasæðingar í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. /MÞÞ FRá aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Mynd / BSE Búnaðarsamband Eyjafjarðar: Mótmælir hugmyndum um að svipta dýralækna lyfjasöluleyfi Á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar var mótmælt harð­ lega hugmyndum sem koma fram í drögum að frumvarpi til nýrra lyfjalaga sem verið hefur til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að svipta dýralækna leyfi til sölu dýralyfja og að gefa álagningu á dýralyf frjálsa. Skorar fundurinn á ráðherra heilbrigðismála að fella framangreindar tillögur út úr frumvarpsdrögunum. Stóraukinn kostnaður fyrir bændur og vegur að velferð dýra Fram kemur í greinargerð með ályktun um málið að grunnur að árangri í meðferð helstu fram- leiðslusjúkdóma í búfé sé að geta hafið meðferð svo fljótt sem auðið er. Til að svo megi verða er grundvallarnauðsyn að dýralæknar geti ávísað þeim lyfjum sem til þarf, þegar í upphafi meðferðar. Víða um land háttar svo til að um langan veg þarf að fara til að komast í lyfjabúð, sem í hinum dreifðu byggðum eru með stuttan opnunartíma. Svipting dýralækna á lyfsöluleyfi hefur því í för með sér stóraukinn kostnað fyrir bændur, dregur úr líkum á árangursríkri meðferð og vegur að velferð dýra. Þess utan veikir svipting lyfsöluleyfis rekstrargrundvöll sjálfstætt starfandi dýralækna mjög og er líkleg til að draga úr framboði og úrvali dýralyfja. Niðurfelling á hámarks álagningu dýralyfja mun augljóslega hafa í för með sér stórhækkun á verði þeirra. /MÞÞ Breytingar í stjórn Bændasamtaka Íslands: Einar Ófeigur Björnsson er nýr varaformaður Nokkur uppstokkun hefur orðið á stjórn Bændasamtaka Íslands eftir að Sindri Sigurgeirsson sagði sig frá formennsku í samtökunum. Samhliða því að Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, Svartárkoti, tók við af Sindra sem formaður Bændasamtaka Íslands, tók Einar Ófeigur Björnsson, Lóni II, við sem varaformaður af Guðrúnu. Auk þess kom Guðrún S. Lárusdóttir, Keldudal, ný inn í aðalstjórnina, en hún var fyrsti varamaður. /VH Einar Ófeigur Björnsson. Mynd / HKr. Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýra læknir, benti Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á ýmsa varasama þætti sem taka þyrfti tillit til við innleiðingu á reglugerð Evrópusambandsins með tilheyrandi breytingum á lögum um dýrasjúkdóma og matvæli. Lýsti hann sinni sýn á málinu á fundi sem ráðherrann hélt í Þjóðminjasafninu 28. febrúar. Myndir /TB „Í einum af ellefu flokkum lífræns áburðar eru leifar úr gróðurhúsum og ekki gert ráð fyrir að sá massi sé hitameðhöndlaður sem þýðir að í honum geta leynst alls konar bakteríur og vírusar sem geta borist í gróðurhús hér á landi.“

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.