Bændablaðið - 14.03.2019, Qupperneq 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 20194
FRÉTTIR
Ný reglugerð ESB um frjálst flæði á lífrænum íburði og rotmassa:
Stenst ekki lög um varnir
gegn dýrasjúkdómum
Í mars 2016 birti Evrópusambandið
tillögur að nýrri reglugerð um
áburð, sem meðal annars fjalla
um að lífrænn áburður geti verið
í frjálsu flæði innan Evrópska
efnahagssvæðisins. Lífrænn
áburður getur verið molta sem
getur innihaldið húsdýraáburð
og rotmassa blandaðan húsdýra
áburði og jafnvel kjöt og beina
mjöli.
Halldór Runólfsson fyrrverandi
yfirdýra læknir hefur sett saman
áhættulista um hættu á innflutningi
á búfjár sjúkdómum til landsins.
„Mest er hættan ef flutt eru
til landsins lifandi dýr en það er
bannað og ég tel víst að ekki verði
hróflað við því. Næst á eftir á
áhættulistanum og er í farvatninu
er innflutningur á búfjáráburði eða
búfjárskít.“
Reglugerð um áburð og sáðvörur
„Ef við bökkum aðeins og horfum
til ársins 1994 við upphaf EBS-
samningsins þá tók Ísland yfir
allar reglugerðir um áburð,
fóður og sáðvöru. Undanfarin
ár hefur Evrópusambandið verið
að undirbúa nýja reglugerð um
lífrænan áburð sem verður bætt inn
í áburðarreglugerðina.
Staðan er því sú að þar
sem Ísland er búið að innleiða
grunnreglugerðina þá verðum við
að innleiða þá nýju líka samkvæmt
EES-samningnum.“
Hvað er í lífrænum áburði?
Eins og gefur að skilja er innihald
lífræns áburðar margbreytilegt.
Halldór segir að í drögum að nýju
reglugerðinni sé lífrænum áburði
skipt í ellefu flokka og meðal annars
flokka þar sem blandað er saman
húsdýraáburði og plöntuleifum
og í ákveðnum tilfellum kjöt- og
beinamjöli. Í öðrum flokkum er svo
eingöngu um að ræða plöntuleifar
eða moltu.
Lög um dýrasjúkdóma
„Í lögum nr. 25/1993 um dýra-
sjúkdóma og varnir gegn þeim
er innflutningur á kjöt- og
beinamjöli og lífrænum áburði,
svo sem alidýraáburði og rotmassa
blönduðum alidýraáburði, óheimill,
þar sem með lífrænum áburði geta
borist smitefni, sem geta valdið
dýra- og plöntusjúkdómum.“
Halldór segir því ljóst að Ísland
þarf séraðlögun um að takmarka
innflutning lífræns áburðar, til
að vernda sérstöðu landsins,
hvað varðar góða stöðu dýra- og
plöntusjúkdóma.
„Ég tók saman áhættumat vegna
þessa máls fyrir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið og skilaði
því í mars 2018. Í áhættumatinu er
gerð grein fyrir að það geti verið
margir dýra- og plöntusjúkdómar,
sem flestir finnast ekki hér á landi,
sem geta borist til landsins með
óheftum innflutningi á lífrænum
áburði, sérstaklega ef hann væri
ekki framleiddur undir ströngustu
skilyrðum um eyðingu smitefna.
Þar sem of umfangsmikið og
tímafrekt var talið að taka alla
þessa sjúkdóma til skoðunar, var
aðeins gert fullt áhættumat á einum
sjúkdómi varðandi hverja af okkar
helstu dýrategundum og einum
plöntusjúkdómi sem gæti borist í
margar plöntutegundir.“
Sjúkdómarnir sem gætu
borist til landsins
• EHV – 1 eða Herpes
veirusmitsjúkdómur í hestum,
sem aldrei hefur greinst hér,
sem er landlægur í flestum
Evrópulöndum og sem
Matvælastofnun hefur verið að
vara við að gæti borist hingað
með fólki og búnaði.
• Garnaveiki af þeirri tegund sem
fer fyrst og fremst í nautgripi og
hefur aldrei greinst á Íslandi.
• Mæði/Visna veiran, sem veldur
mæðiveiki í sauðfé og útrýmt
var hér á landi með gífurlegum
tilkostnaði.
• PRRS – sem er veiru-
smitsjúkdómur í svínum, sem
aldrei hefur greinst hér á landi.
• AEV sem er veirusmitsjúkdómur
í hænsnum, sem aldrei hefur
greinst hér á landi.
Varðandi plöntusjúkdóma segir
Halldór að talið sé að íslenskri
garðyrkju og skógrækt gæti stafað
mikil hætta af sýkingum af völdum
sveppa af tegundinni Phytopthora.
Vantar opinbert eftirlit
í Evrópusambandinu
„Í nýju reglugerð Evrópu-
sambandsins er gert ráð fyrir að
allur lífrænn áburður og rotmassi
sé hitaður í ákveðið hitastig, til
dæmis 70° á Celsíus, og haldið við
það í ákveðinn tíma til að drepa
bakteríur, fræ og aðrar lífverur í
honum. Allir sem skoðað hafa
moltugerð vita að það getur verið
mjög erfitt að ná upp réttu hitastigi
og halda því í öllum massanum í
nógu langan tíma til að drepa
ákveðnar bakteríur og eyðileggja
veirur.
Áhyggjuefnið er því að ef þessi
hiti næst ekki í rotmassa sem er búið
að blanda með húsdýraáburði og
fleiru munu geta lifað í massanum
bakteríur og veirur sem geta valdið
dýra- og plöntusjúkdómum hér á
landi sé hann fluttur inn.“
Halldór segir að samkvæmt
hugmyndafræði nýju reglu-
gerðarinnar séu allar viðmiðunar-
tölur til staðar en hann hafi
meiri áhyggjur af eftirliti með
framleiðslunni og að erfitt sé að fá
opinbera vottun um að hún sé í lagi.
Úrgangur úr gróðurhúsum
„Í einum af ellefu flokkum lífræns
áburðar eru leifar úr gróðurhúsum
og ekki gert ráð fyrir að sá massi
sé hitameðhöndlaður sem þýðir
að í honum geta leynst alls konar
bakteríur og vírusar sem geta borist
í gróðurhús hér á landi. Einnig
geta leynst í massanum framandi
plöntutegundir sem geta valdið usla
í ræktun.“
Þurfum undanþágu
frá fimm flokkum
Halldór segir að af þeim ellefu
flokkum lífræns áburðar sem
er að finna í nýju reglugerð
Evrópusambandsins þurfi Ísland
að fá undanþágu frá að minnsta
kosti fimm.
„Þessir fimm flokkar gætu
verið áhættusamir í innflutningi og
standast ekki innlendu löggjöfina
um varnir gegn dýrasjúkdómum.
/VH
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Vill segja upp tollasamningi
milli Íslands og ESB
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar sem haldinn var í
liðinni viku í Hlíðarbæ skoraði
á stjórnvöld að segja upp tolla
samningi um tollkvóta land
búnaðarvara milli Íslands og
Evrópusambandsins. Í viðræðum
við Breta um tollasamning land
búnaðarvara verði höfð hliðsjón
af tollasamningi milli Íslands og
Sviss.
Fram kemur í greinargerð með
ályktuninni að útganga Bretlands úr
ESB skapi algjöran forsendubrest
núgildandi samnings. Við gerð
þess tollasamnings við ESB sem
nú er í gildi voru heimildir til
útflutnings auknar og þá sérstaklega
á skyri og lambakjöti. Þessar
vörur hafi að miklum hluta verið
fluttar út til Bretlands en ljóst er
að Bretar séu á leið úr ESB sem
gerir tollasamninginn ómerkan.
Viðsemjandinn sé ekki lengur
sá sami eftir brotthvarf Breta úr
sambandinu.
Á síðustu árum hefur verið
meiri útflutningur á lambakjöti og
ostum til Bretlands en allra annarra
landa ESB til samans sem gerir
það ljóst að um samningsrof er
að ræða.
Bæta haga bænda
Aðalfundurinn hvatti í annarri
ályktun stjórn til að vinna að því
að bæta hag bænda með því að
láta bjóða í eða semja við söluaðila
rekstrarvöru eða þjónustu til að
freista þess að ná betri kjörum.
Ályktun af svipuðum toga sem
samþykkt var á aðalfundi fyrir ári
og snerist um sameiginlegt útboð á
rafmagnskaupum skilaði bændum
verulegum ávinningi í formi lægra
verðs á rafmagni.
Á fundinum var stjórn BSE veitt
heimild til að ganga til samninga við
stjórn BSSÞ með það að markmiði
að sameina kúasæðingar í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum. /MÞÞ
FRá aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Mynd / BSE
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Mótmælir hugmyndum um að
svipta dýralækna lyfjasöluleyfi
Á aðalfundi Búnaðarsambands
Eyjafjarðar var mótmælt harð
lega hugmyndum sem koma
fram í drögum að frumvarpi til
nýrra lyfjalaga sem verið hefur
til kynningar í Samráðsgátt
stjórnvalda.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að svipta dýralækna leyfi til sölu
dýralyfja og að gefa álagningu á
dýralyf frjálsa. Skorar fundurinn
á ráðherra heilbrigðismála að
fella framangreindar tillögur út úr
frumvarpsdrögunum.
Stóraukinn kostnaður fyrir
bændur og vegur að velferð dýra
Fram kemur í greinargerð með
ályktun um málið að grunnur að
árangri í meðferð helstu fram-
leiðslusjúkdóma í búfé sé að geta
hafið meðferð svo fljótt sem auðið
er.
Til að svo megi verða er
grundvallarnauðsyn að dýralæknar
geti ávísað þeim lyfjum sem til þarf,
þegar í upphafi meðferðar. Víða um
land háttar svo til að um langan veg
þarf að fara til að komast í lyfjabúð,
sem í hinum dreifðu byggðum eru
með stuttan opnunartíma. Svipting
dýralækna á lyfsöluleyfi hefur því
í för með sér stóraukinn kostnað
fyrir bændur, dregur úr líkum á
árangursríkri meðferð og vegur að
velferð dýra. Þess utan veikir svipting
lyfsöluleyfis rekstrargrundvöll
sjálfstætt starfandi dýralækna mjög
og er líkleg til að draga úr framboði
og úrvali dýralyfja. Niðurfelling á
hámarks álagningu dýralyfja mun
augljóslega hafa í för með sér
stórhækkun á verði þeirra. /MÞÞ
Breytingar í stjórn Bændasamtaka Íslands:
Einar Ófeigur Björnsson
er nýr varaformaður
Nokkur uppstokkun hefur orðið á
stjórn Bændasamtaka Íslands eftir
að Sindri Sigurgeirsson sagði sig
frá formennsku í samtökunum.
Samhliða því að Guðrún Sigríður
Tryggvadóttir, Svartárkoti, tók við af
Sindra sem formaður Bændasamtaka
Íslands, tók Einar Ófeigur Björnsson,
Lóni II, við sem varaformaður af
Guðrúnu. Auk þess kom Guðrún
S. Lárusdóttir, Keldudal, ný inn
í aðalstjórnina, en hún var fyrsti
varamaður. /VH Einar Ófeigur Björnsson. Mynd / HKr.
Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýra læknir, benti Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
á ýmsa varasama þætti sem taka þyrfti tillit til við innleiðingu á reglugerð Evrópusambandsins með tilheyrandi
breytingum á lögum um dýrasjúkdóma og matvæli. Lýsti hann sinni sýn á málinu á fundi sem ráðherrann hélt í
Þjóðminjasafninu 28. febrúar. Myndir /TB
„Í einum af ellefu flokkum lífræns
áburðar eru leifar úr gróðurhúsum
og ekki gert ráð fyrir að sá massi
sé hitameðhöndlaður sem þýðir
að í honum geta leynst alls konar
bakteríur og vírusar sem geta borist
í gróðurhús hér á landi.“