Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201912
FRÉTTIR
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
NÝR
BÆ
KLINGUR
Votviðrasamt sumar í fyrra virðist sýna sig í tölum Hagstofu Íslands:
Kartöfluuppskeran á síðasta ári
var sú lélegasta síðan 2013
– Þriðja minnsta uppskeran síðan 1977 og vel undir meðaltali síðustu 42 ára
Samkvæmt nýjustu tölum Hag
stofu Íslands varð verulegur sam
dráttur í framleiðslu á útiræktuðu
grænmeti á Íslandi á síðasta ári.
Var kartöfluuppskeran m.a. sú
minnsta síðan 2013. Virðist sá
samdráttur vera að nokkru í
takt við óvenju votviðrasamt
tíðarfar.
Á síðasta ári fengust 6.020
tonn af kartöflum upp úr görðum
íslenskra bænda. Í kartöfluræktinni
hafa einungis þrjú ár frá 1977 verið
með minni uppskeru. Það var 2013
þegar uppskeran var 6.000 tonn, árið
1993 þegar uppskeran var 3.913 tonn
og 1983, en þá var uppskeran aðeins
3.561 tonn.
Talsvert undir 41 árs meðaltali
Á síðustu 42 árum, eða frá 1977,
hafa verið framleidd til sölu á
Íslandi 433.306 tonn af kartöflum,
eða 10.317 tonn að meðaltali á ári.
Hefur kartöfluframleiðslan aldrei
náð því meðaltali eftir 2010 þegar
framleiðslan var 12.460 tonn.
Mest framleiðsla 1994
Mest var kartöfluframleiðslan á
þessu tímabili 1994, eða 19.459
tonn í kjölfar mikils hrunárs í
framleiðslunni þegar framleiðslan
fór eins og áður sagði í 3.561 tonn.
Árið þar á undan, eða 1992, var
framleiðslan 14.300 tonn svo dýfan
fyrir framleiðendur var gríðarleg.
/HKr.
Votviðrasamt sumar 2018 gerði kartöflubændum sunnanlands og vestan
erfitt fyrir og uppskeran var mun rýrari en ella. Mynd / Bbl.
Framleidd voru hátt í 12 þúsund tonn af grænmeti á Íslandi 2018:
Metframleiðsla var
á gúrkum og salati
– Tómataframleiðslan hefur verið að dragast saman frá 2016
Metframleiðsla var á gúrkum
og salati á síðasta ári samkvæmt
tölum Hagstofu Íslands.
Tómataframleiðslan hefur aftur
á móti verið að dragast saman
síðan 2016.
Á síðasta ári voru framleidd
11.667 tonn af grænmeti á Íslandi.
Þar af var ríflega helmingurinn
kartöflur, eða 6.020 tonn. Næstmest
var framleitt af gúrkum, eða 1.927
tonn. Hefur gúrkuframleiðslan
aldrei verið meiri samkvæmt tölum
Hagstofunnar yfir þá framleiðslu
sem ná aftur til 1986. Sem dæmi
um þróunina voru framleidd 460
tonn af gúrkum árið 1986, en
síðan hefur verið nokkur stígandi
í framleiðslunni. Framleiðslan fór í
fyrsta sinn yfir 700 tonn árið 1997
og yfir 800 tonn árið 1999. Hélst
framleiðslan svo á því róli til 2004
þegar 900 tonna múrinn var rofinn.
Strax árið eftir fór framleiðslan í
1.147 tonn, í 1.343 tonn árið 2007
og í 1.516 tonn árið 2008. Síðan fór
framleiðslan yfir 1.800 tonn 2014 og
hefur verið á því róli þar til í fyrra að
hún fór í fyrsta sinn yfir 1.900 tonn.
Samdráttur í tómataframleiðslu
Gúrkuframleiðslan fer fram undir
glerþaki og veðráttan hefur því
ekki bein áhrif á framleiðsluna
þar sem beitt er raflýsingu. Sama
á við um tómataræktina. Þar hefur
framleiðslan hins vegar dregist
töluvert saman síðan 2016, eða
úr 1.436 tonnum í 1.213 tonn.
Virðist þar vera að gæta áhrifa
af opnun Costco og aukins
grænmetisinnflutnings.
Met í salatframleiðslu
Met var líka sett í framleiðslu á
salati á síðasta ári, en þar er líka um
inniræktun að ræða. Tölur Hagstofu
yfir salatframleiðsluna ná aftur til
2013 þegar framleidd voru 213 tonn.
Hefur sú framleiðsla stöðugt verið
að aukast síðan og var komin í 403
tonn á síðasta ári sem er met.
Önnur inniræktun var á svipuðu
róli á milli ára og af sveppum voru
framleidd 580 tonn 2018 sem er
nákvæmlega sama tala og 2017.
Mest var hins vegar framleitt af
sveppum 2014, eða 602 tonn.
Veðurfar hafði neikvæð áhrif
á alla útiræktun
Í útiræktun var lélegt tíðarfar
greinilega að hafa áhrif og þá
ekki bara í kartöfluræktinni. Sem
dæmi féll gulrófuframleiðslan
úr 930 tonnum árið 2017 í 540
tonn árið 2018, eða um 42%.
Gulrótarframleiðslan dróst líka
töluvert saman, eða úr 750 tonnum
árið 2017 í 520 tonn árið 2018, sem
er tæplega 31% minni framleiðsla.
Svipaða sögu er að segja af
annarri útiræktun. Þar var samdráttur
í framleiðslu á öllum tegundum á
síðasta ári.
Kornbændur urðu líka fyrir skelli
Þótt kornframleiðsla sé venjulega
ekki talin með ræktun á grænmeti
voru veðurfarsáhrifin þar einnig
veruleg. Þannig minnkaði
kornframleiðsla íslenskra bænda úr
7.400 tonnum árið 2017 í 3.900 tonn
árið 2018, eða um rúm 47%. Þar
sem rigningin var ekki til vandræða,
voru þurrkar stundum of miklir, eins
og á Austurlandi. /HKr.
Í tómataræktun hefur framleiðslan dregist töluvert saman síðan 2016, eða
úr 1.436 tonnum í 1.213 tonn. Mynd / HKr.
Orlofsvefur Bændasamtakanna
http://www.orlof.is/bondi/ var
opnaður nú um miðjan febrúar og
er hann aðgengilegur á heimasíðu
samtakanna. Markmiðið með
honum er að auka aðgengi
félagsmanna að orlofsíbúð
samtakanna og jafnframt að
stuðla að góðri nýtingu hennar.
Framvegis fara allar bókanir
og greiðslur á orlofshúsum fram í
gegnum orlofsvefinn. Þar er nú opið
fyrir bókanir á íbúð samtakanna í
Þorrasölum 13–15 í Kópavogi, til
ársloka 2019. Íbúðin er aðeins ætluð
félagsmönnum Bændasamtaka
Íslands og er lágmarks útleiga núna
tvær nætur eða heil helgi. Vakin er
athygli á því að orlofshúsin á Hólum
sem hafa verið í útleigu og voru í
eigu samtakanna hafa nú verið seld.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
kaup á öðrum í þeirra stað.
Allir félagar í Bændasamtökum
eru nú aðilar að sérstöku miðakerfi
í gegnum orlofsvefinn sem gefur
meðal annars tækifæri til að nýta
ódýra gistingu.
Til að auka framboðið var gerður
samningur við tvær hótelkeðjur,
Icelandair Hótel og Íslandshótel, á
góðum kjörum á gistingu um allt
land.
Áfram er í gildi eins og verið
hefur samningur við Hótel Sögu
um bændaafslátt á gistingu og
er félagsmönnum bent á að hafa
samband við bókunardeild hótelsins
til að bóka gistingu þar.
Á orlofsvefnum er jafnframt
í boði að tryggja sér veiðikortið á
hagstæðu verði og útilegukortið
verður í boði til félagsmanna á kr.
15.900 á árinu 2019.
Útilegukortið veitir tveim full
orðnum og fjórum börnum undir 16
ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum
samstarfsaðila Útilegukortsins í allt
að 28 gistinætur á hverju starfsári
þess. Engin takmörk eru fyrir því
hve oft má koma á hvert tjaldsvæði
innan gistináttanna 28 en einungis
má gista í fjórar nætur samfellt í
hvert skipti. Útilegukortið gildir fyrir
tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi
og húsbíla.
Félagsmenn eru hvattir til að
kynna sér vefinn og nýta það sem
þar er í boði, en unnið er að því
að afla frekari afsláttarkjara fyrir
félagsmenn, sem munu þá bætast við
það sem þegar er komið. Allar góðar
ábendingar um óskir félagsmanna í
þessum efnum eru vel þegnar. Þeim
sem vilja fá frekar upplýsingar er
bent á að hafa samband við skrifstofu
samtakanna í síma 5630300.
Orlofsvefur Bændasamtakanna:
Allar bókanir á vefnum
Met var sett í gúrkuræktinni á síðasta
ári.
Sjö nýir starfsmenn
hjá Orf Líftækni
Orf Líftækni hefur ráðið til
sín sjö nýja starfsmenn vegna
aukinna umsvifa fyrirtækisins
erlendis og hér heima en fyrir
tækið er leiðandi á heims vísu í
plöntulíftækni.
Fyrirtækið framleiðir sérvirk
prótein sem notuð eru sem
innihaldsefni í BIOEFFECT
húðvörur fyrirtækisins, seld til
læknisfræðilegra rannsókna og
nýtt í önnur þróunarverkefni
fyrirtækisins. Orf hefur þróað
tækni til að framleiða slík prótein
í byggi, en aðferðin er afrakstur
tveggja áratuga vísinda og
þróunarstarfs. BIOEFFECT
vörurnar hafa fengið fjölda
alþjóðlegra viðurkenninga fyrir
virkni og gæði og eru seldar í um
28 löndum. Hjá fyrirtækinu starfa
nú tæplega 70 manns. /MHH