Bændablaðið - 14.03.2019, Qupperneq 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201914
Miklar varúðarráðstafanir eru
viðhafðar í Evrópu um þessar
mundir til að hefta útbreiðslu
afrískrar svínapestar. Þrátt
fyrir að ástandið hafi verið
nokkuð stöðugt undanfarið var
tilkynnt um ný og viðvarandi
tilfelli í átta löndum í Evrópu
nýverið og tveimur löndum í
Asíu.
Á heimasíðu Matvæla stofnunar
er minnt á að enn hafi ekki tekist
að hefta útbreiðslu afrískrar
svínapestar í Evrópu, Asíu og
Afríku. Auk þess sem Alþjóða
dýraheilbrigðisstofnunin hvetur
ferðafólk, bændur, veiðimenn,
tollverði og fleiri til að gæta
árvekni og smitvarna.
Afrísk svínapest er
bráðsmitandi drepsótt í svínum,
sem getur meðal annars borist
með sýktum svínum og sæði,
hráu kjöti af sýktum dýrum,
farartækjum, búnaði og fatnaði.
Veiran sem veldur sjúkdómnum
er ekki hættuleg fyrir fólk eða
önnur dýr en veldur svínum
þjáningum og tjón svínabænda
þar sem sjúkdómurinn kemur upp
er gífurlegt.
Miklar varúðarráðstafanir eru
viðhafðar í Evrópu til að hefta
útbreiðsluna og þar hefur ástandið
verið nokkuð stöðugt. Þó var
tilkynnt um ný og viðvarandi
tilfelli í átta löndum í Evrópu,
Belgíu, Ungverjalandi, Búlgaríu,
Lettlandi, Moldavíu, Póllandi,
Rúmeníu og Úkraínu, í febrúar
á þessu ári. Á sama tíma bárust
tilkynningar um sjúkdóminn frá
tveimur stöðum í Asíu, Kína og
Mongólíu, og einum í Afríku,
Simbabve.
Alþjóða dýraheilbrigðis
stofnunin hefur hafið
auglýsingaherferð til að upplýsa
fólk um smitleiðir og áminna það
um að gæta smitvarna. Skilaboðin
eru eftirfarandi:
• Ferðafólki er bent á að
flytja ekki með sér lifandi
svín né svínaafurðir og
heimsækja ekki svínabú að
nauðsynjalausu.
• Bændur eru hvattir til að
viðhafa ítrustu smitvarnir,
sem fela í sér þrjá megin
þætti: Aðskilnað, þrif og
sótthreinsun. Þeir þurfa að
halda aðskilnaði milli þess
sem er utandyra og innanhúss,
gæta þess að smit berist ekki
í fóður og vatn, hafa stranga
stjórn á aðgangi og umgangi
gesta og starfsfólks á búinu
og halda svínum sem koma
ný inn á búið aðskildum frá
þeim sem fyrir eru. Allt sem
fer inn á búið og út af því skal
þrifið þannig að öll sjáanleg
óhreinindi séu fjarlægð
og síðan sótthreinsað.
Jafnframt eru bændur minntir
á að fóðra ekki svínin með
matarúrgangi.
• Veiðimenn sem eru reglulega
í snertingu við svín ættu ekki
að stunda veiðar á villtum
svínum. En tilmæli til þeirra
sem fara á veiðar eru m.a.
að þrífa og sótthreinsa
tæki á staðnum, fara ekki á
svínabú að nauðsynjalausu
og deila ekki matvælum
sem framleidd eru úr kjöti af
veiddum dýrum með öðrum
né fóðra dýr með þeim.
• Tollverðir eru beðnir um að
kynna sér í hvaða löndum
afríska svínapestin er til
staðar hverju sinni og að
vera sérstaklega vel á verði
fyrir því hvort fólk komi
með matvæli frá þessum
löndum. Öllum vörum sem
geta innihaldið smitefnið skal
fargað á viðeigandi hátt.
Hver sem verður var við einkenni í
dýrum sem geta bent til alvarlegra
smitandi sjúkdóma, þar á meðal
afrískrar svínapestar, skulu án
tafar hafa samband við dýralækni
eða Matvælastofnun. /VHMiðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
klefar
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
hillur
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
Kæli- & frysti-
búnaður
hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Sóttvarnir og dýravelferð:
Ekki tekist að hefta útbreiðslu
afrískrar svínapestar í Evrópu
Afrísk svínapest hefur ekki greinst á Íslandi enn sem komið er.
AFRICAN
SWINE
FEVER
African swine fever (ASF)
is a highly contagious
disease of domestic
and wild pigs. It is not a
danger to human health
but it is devastating for
farming economy.
There is no vaccine
against it.
Travelling within or
outside a country?
By car, bus, train,
airplaine, boat?
Do not spread
the disease.
For more information:
www.oie.int/asf
Travellers
Don’t be
the carrier
of a deadly
pig disease
Do not carry pigs or pork products
If you do, declare them to the
transport authorities
Do not visit farms
unless it is necessary
If you are in regular contact
with domestic pigs, do not
hunt wild pigs
YOU MUST TAKE PRECAUTIONS
Leikritið er gleðileikur með harmrænu ívafi sem gerist í litlu samfélagi úti
á landi.
Leikdeild Umf. Gnúpverja:
„Nanna systir“ sett upp í Árnesi
Leikdeild Umf.Gnúpverja æfir nú
af kappi leikritið „Nanna systir“
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson. Leikstjóri er Örn
Árnason. Þetta er gleðileikur með
harmrænu ívafi sem gerist í litlu
samfélagi úti á landi og óhætt er að
segja að þar gangi á ýmsu.
Ungmennafélag Gnúpverja
hefur í rúm 100 ár staðið fyrir
leiksýningum á góðum og gildum
verkum eftir ýmsa höfunda. Fyrstu
leiksýningarnar voru í baðstofum
í sveitinni en eftir að Ásaskóli
var byggður 1923 var æft og
leikið þar. Síðustu 50 árin hefur
félagsheimilið Árnes verið heimili
leikstarfseminnar. Leikdeild var
stofnuð innan Ungmennafélagsins
árið 2010 og er Nanna systir fimmta
sýningin sem sett hefur verið upp
síðan. Sýningar verða á eftirfarandi
dögum.
Frumsýning föstud. 8. mars kl. 20
2. sýning sunnud. 10. mars kl. 20
3. sýning laugard. 16. mars kl. 20
4. sýning sunnud. 17. mars kl. 14
5. sýning fimmtud. 21. mars kl. 20
Hægt er að panta miða í síma
8691118 eða á gylfi1sig@gmail.
com Við vonumst til að sjá ykkur
sem flest á sýningunum í mars, posi
á staðnum. /MHH
Örn Árnason, leikar er leikstjóri
verksins en hann er einn af
ástsælustu leikurum þjóðarinnar.
FRÉTTIR