Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 21
forvörnum og meðferð á sífellt
auknum fjölda sýkinga af
völdum baktería, sníkjudýra,
veira og sveppa.
• Sýklalyfjaónæmi leiðir til
lengri sjúkrahúsvistar, hærri
lækniskostnaðar og aukinnar
dánartíðni.
• Án árangursríkra sýkla
lyfja getur árangur í meiri
háttar skurðaðgerðum og
krabbameinslyfjameðferðum
verið í hættu.
• Kostnaður við heilsugæslu
hjá sjúklingum með sýkingar
af völdum sýklalyfjaónæmra
baktería er hærri en við umönnun
sjúklinga með sýkingar sem
ekki eru ónæmar fyrir lyfjum.
Veikindin verða erfiðari við að
eiga og nota þarf dýrari lyf.
• Á árinu 2016 þróuðu 490.000
manns með sér fjölþolnar
lugnabólgubakteríur á heims
vísu og lyfjaónæmi er byrjað
að flækja baráttuna gegn HIV
smiti og malaríu.
Ráðleggingar Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
til almennings
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur líka gefið út ráðleggingar
til almennings vegna notkunar
sýklalyfja. Þar segir m.a.:
• Notaðu aðeins sýklalyf þegar
læknir hefur staðfest að þess
þurfi.
• Þú skalt aldrei krefjast sýklalyfja
ef heilbrigðisstarfsmaður segir
að þú þurfir ekki á þeim að
halda.
• Fylgdu alltaf ráðleggingum
heilbrigðisstarfsmannsins
þegar sýklalyf eru notuð.
• Aldrei deila eða nota afganga
af sýklalyfjaskömmtum.
• Veldu einungis matvæli sem
eru framleidd án sýklalyfja
og vaxtarhvata og þar sem
sjúkdómavarnir heilbrigðra
dýra eru í lagi.
• Koma skal í veg fyrir sýkingar
með því að þvo hendur
reglulega og gæta hreinlætis
við matargerð. Haltu aðskildum
hráum og soðnum matvælum.
Eldaðu allan mat vandlega.
Passaðu að matur sé eldaður við
rétt hitastig. Notaðu hreint vatn
og hreint hráefni.
• Forðast skal snertingu við
sjúka einstaklinga, stunda
öruggt kynlíf og passa upp á að
bólusetningar séu uppfærðar.
Stjórnvöld móti stefnu
og takist á við vandann
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur einnig gefið út ráðleggingar
til stjórnmálamanna og annarra sem
móta stefnuna í heilbrigðismálum.
Þar segir m.a. að til að koma í
veg fyrir og stjórna útbreiðslu
sýklalyfjaþols, geta stefnumótandi
aðilar framkvæmt eftirfarandi:
• Ganga úr skugga um að sterk
innlend aðgerðaáætlun sé til að
takast á við sýklalyfjaónæmi.
• Auka eftirlit með sýkingum
af völdum sýklalyfjaónæmra
baktería.
• Styrkja stefnu, áætlanir og
framkvæmd sýkingarvarnar og
eftirlitsráðstafana.
• Stjórna og stuðla að viðeigandi
notkun sýklalyfja, koma í veg
fyrir ofnotkun.
• Halda uppi öflugri
upplýsingagjöf um áhrif
sýklalyfjaþols.
Bændur noti aldrei sýklalyf nema
undir eftirliti dýralækna
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
hefur líka gefið út ráðleggingar til
landbúnaðarins til að koma í veg
fyrir útbreiðslu sýklalyfjaónæmra
baktería. Þar segir m.a.:
• Gefið dýrum aldrei sýklalyf
nema undir eftirliti og samkvæmt
ráðleggingum dýralækninga.
• Ekki nota sýklalyf sem
vaxtarhvata eða til að koma í veg
fyrir sjúkdóma hjá heilbrigðum
dýrum.
• Bólusetjið dýr til að draga úr
þörf fyrir sýklalyf og notið aðra
valkosti en sýklalyf þegar þeir
eru til staðar.
• Beitið öruggum og vönduðum
starfsvenjum á öllum stigum
framleiðslu og vinnslu matvæla
úr dýrum og plöntum.
• Aukið aðgæslu á býlum með
bættu hreinlæti og aukinni
dýravernd til að koma í veg fyrir
sýkingar.
Stóralvarleg staða
Um 131.000 tonn af sýklalyfjum
eru notuð í landbúnaði heimsins
á hverju ári. Þá er fiskirækt
ekki meðtalin. Um 73% af
öllum sýklalyfjum sem notuð
eru í heiminum í dag eru nýtt í
landbúnaði og stór hluti af því sem
vaxtarhvetjandi efni. Það hefur
leitt til ört vaxandi stökkbreytinga
sýkla sem orðnir eru ónæmir fyrir
lyfjunum og þar með bráðdrepandi.
Í dag er talið að sýlalyfjaónæmar
bakteríur dragi um 700 þúsund
jarðarbúa til dauða árlega. Sú tala
mun að óbreyttu verða komin í um
10 milljónir árlega eftir um 30 ár,
eða ein manneskja á þriggja
sekúndna fresti. Það eru um
1,8 milljónum fleiri en deyja úr
krabbameini. Það mun kosta þjóðir
heims um 4% af heildarveltu af
allri starfsemi jarðarbúa, eða um
100 billjónir dollara. Einungis um
5% af fjárfestingum í lyfjaiðnaði
fara nú til þróunar á sýklalyfjum.
ESB með nýja löggjöf til að
draga úr sýklalyfjanotkun
Notkun á sýklalyfjum í landbúnaði
í Evrópu hefur verið 300% hærri
en ráðlögð hámarksnotkun
er af sérfræðingum svo til
alvarlegra vandræða horfir.
Hjá Evrópusambandinu var
því samþykkt þann 25. október
2018 að setja nýja löggjöf um
sýklalyfjanotkun í landbúnaði. Á
hún að koma til framkvæmda 2022.
Í Bandaríkjunum hefur notkunin
verið mun meiri, enda drepa
sýkingar af völdum ofurbaktería
um 100.000 manns þar í landi á
hverju ári.
Á sumum sviðum hefur þó
náðst árangur þó hægt miði.
Sem dæmi um þróunina, þá hóf
breska alifuglaráðið (British
Poultry Council – BPC) sérstakt
átak varðandi notkun sýklalyfja í
greininni árið 2011. Þess má geta að
breskir alifuglabændur hafa einmitt
sótt ráðleggingar í smiðju íslenskra
alifuglabænda vegna góðs árangurs
hérlendis.
Undir handarjaðri BPC starfa
um 90% allra alifuglaræktenda
í Bretlandi. Þetta átak leiddi
til þess að heildarnotkun á
sýklalyfjum í greininni dróst
saman um 82% á árunum 2012
til 2017. Þá bannaði ráðið sínum
félagsmönnum á árinu 2016 notkun
á sterkustu fúkkalyfjunum eins og
lokaúrræðalyfinu Colistin. Notkun
á slíku efni hefur aldrei verið leyfð
í alifuglarækt hérlendis. Þá hafa
sýklalyf aldrei verið leyfð sem
vaxtarhvetjandi efni í íslenskum
landbúnaði.
Stefnt er að því að notkunin
í kjúklingarækt á þessu ári og
því næsta verði komin niður í
25 milligrömm á hvert kíló við
slátrun (25mg/kg). Einnig að
sýklalyfjanotkunin í kalkúnaeldinu
verði komin niður í 50 milligrömm
á hvert kíló. Þetta takmark á samt
langt í land með að ná þeim
árangri sem íslenskir bændur
hafa náð þar sem meðalnotkunin
í landbúnaðinum í heild hefur verið
nálægt 5 mg/kg.
Bændur standa saman
Upplýsingar um
félagsaðild
Þinn ávinningur:
Sími 563-0300
Netfang bondi@bondi.is
www.bondi.is
Fylgstu með bændum á
Baendasamtok
• BÍ vinna að þínum hagsmunum og eru málsvari
stéttarinnar
• Allt að 30% afsláttur af forritum BÍ
• Réttur til að taka þátt í atkvæðagreiðslum og
könnunum á vegum samtakanna
• Aðgangur að starfsmenntasjóði og
velferðarsjóði
• Ráðgjöf um réttindi og um málefni sem snerta
bændur
• Bændaafsláttur á Hótel Sögu og orlofsíbúð á
höfuðborgarsvæðinu
Aðild að
Bændasamtökunum
borgar sig
Meginverkefni BÍ er að gæta hagsmuna
stéttarinnar. Félagsleg samstaða er
dýrmæt og öflug starfsemi samtakanna
eykur slagkraft bænda. Með aðild að BÍ
njóta félagsmenn ýmissa réttinda.
Fulltrúar í þjónustuveri BÍ svara fyrirspurnum í síma
563-0300 og í netfangið bondi@bondi.is. Á bondi.is er
hægt að skrá sig í samtökin.