Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 26

Bændablaðið - 14.03.2019, Síða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201926 MATVÆLI&MARKAÐSMÁL Fróðleiksmolar um sauðfjárbeit á prenti: Beitarlandið lesið – með augum góðrar beitarstjórnunar Sigþrúður Jónsdóttir, beitar sér­ fræðingur hjá Land græðsl unni, kynnti nýja smábæklinginn Fróð leiks molar um sauðfjárbeit á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem var haldinn 1. mars á Hótel Sögu. Honum er ætlað að auðvelda bændum að meta ástand beitar landsins og aðlaga beitina að ástandi landsins. Bæklingurinn er vasaútgáfa eldri bæklings sem heitir Sauð­ fjárhagar og var gefinn út árið 2010. „Það er nokkur saga á bak við bæklinginn. Ég sinnti því verkefni hjá Landgræðslunni að þróa skala til að meta ástand sauðfjárhaga og í kjölfarið var gefið út leiðbeiningaritið Sauðfjárhagar. Þar var einnig að finna undirstöðuatriði í beitarfræðum og beitarstjórnun,“ segir Sigþrúður um tilurð bækling­ sins. Hliðstæður hrossabæklingi „Þessi rit eru hliðstæð eldri ritum um hrossabeit. Hrossahagar voru gefnir út af Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Landgræðslunni árið 1997 þar sem er að finna ástandsskala fyrir beitilönd hrossa. Árið 2014 var búinn til smábæklingur upp úr honum, Fróðleiksmolar um hrossabeit, sem hefur komið að góðum notum. Því var ákveðið að gera líka smábækling byggðan á Sauðfjárhögum. Þó margt sé svipað við mat á beitilöndum sauðfjár og hrossa þá eru það ekki alveg sömu atriði sem þarf að skoða.“ Að sögn Sigþrúðar er hægt að fá Fróðleiksmola um sauðfjárbeit á héraðssetrum Landgræðslunnar og víðar. Verður honum til að mynda dreift á fundum sem fram undan eru um verkefnið GróLind og ýmsum öðrum fundum sem tengjast sauðfjárrækt og landgræðslu. /smh Í nýja bæklingnum er farið yfir helstu atriðin við mat á ástandi lands. Sauðfjárhagar var gefinn út árið 2010 en þar er að finna undirstöðuatriði um beitarfræði og beitarstjórnun. Sigþrúður Jónsdóttir, beitarsérfræðingur hjá Landgræðslunni, kynnir bæklinginn fyrir sauðfjárbændum á fagfundi sauðfjárræktarinnar. Mynd / smh Mjólkursamlagið Tine: Með vörur fyrir grænmetisætur Sífellt fleiri gerast grænmetisætur í Noregi og því hefur mjólkur­ samlagið Tine ákveðið að fylgja bylgjunni og neytendum með því að setja á markað vörur sem henta fólki sem aðhyllist þann lífsstíl. Neysla á venjulegri hvítri mjólk minnkar á hverju ári og hefur það reynst samlaginu erfitt að fá aftur upp fyrri sölutölur svo nú koma vörur frá fyrirtækinu sem henta grænmetisætum eins og grænmetisbollur og ­hakk ásamt grænmetisborgurum. Vörurnar innihalda yfir 90 prósent af norskum hráefnum og eru grænmetismiðaðar með osti og mjólk sem aukaefnum en á þann hátt ná þeir að nota mjólk í vörurnar. Með þessu móti vonast fyrirtækið einnig til að komast á stærri markaði með vörurnar. „Við munum gera allt til að mjólkin haldi áfram sinni stöðu og að framleiðslan geti vaxið enn frekar, það er okkar aðalmarkmið. Á sama tíma getum við ekki lokað augunum fyrir því að neytendur eru að breyta venjum sínum. Ef við eigum að geta notað þau tæki sem við eigum og að kúabændur fái vel borgað fyrir mjólkina þá verðum við að hitta á nýjar neysluvenjur. Það er staðreynd að sífellt stærri hluti neytenda velur sem dæmi haframjólk. Við höfum góðar vinnslustöðvar og tækni til að framleiða hágæðavörur og þegar við byrjuðum til dæmis að framleiða djús þá kom það fram í betri niðurstöðum fyrir fyrirtækið. Þetta snýst jú allt um að skilja neytendur og að hitta á réttar vörur sem fólk óskar eftir að nota við mismunandi tækifæri. Gott samband við verslanakeðjurnar er einnig mikilvægt í þessu sambandi,“ segir Gunnar Hovland, forstjóri Tine. /Bondebladet - ehg Keppnin Kokkur ársins í Hörpu: Þrjár konur í fimm manna úrslitahópi Úrslitakeppnin Kokkur ársins 2019 verður haldin í Hörpu laugardaginn 23. mars næst­ komandi. Athygli vekur að þrjár konur voru meðal þátttakenda í forkeppninni, sem var haldin 6. mars, en það telst met í þessari keppni. Þær komust allar áfram til þátttöku í úrslitunum. Í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara, sem stendur að skipulagningu keppninnar, er þessi keppni einn af hápunktunum í viðburðardagatali matreiðslu­ manna. Nokkrir af allra bestu matreiðslumeisturum Íslands keppa um hinn eftirsótta titil. Forkeppnin fór sem fyrr segir fram miðvikudaginn 6. mars en þar kepptu tíu kokkar um fimm pláss í lokakeppninni sjálfri. Metnaðarmál að jafna hlutfall kvenna og karla Haft er eftir Birni Braga Bragasyni, forseta Klúbbs matreiðslumeistara, að það sé mikið fagnaðarefni að sjá aukningu skráðra kvenna í keppninni. „Það er okkur metnaðarmál að ná hlutfalli þeirra til jafns við karla. Ylfa Helgadóttir var meðal annars þjálfari Kokkalandsliðsins í Lúxemborg þar sem liðið vann til gullverðlauna, sem ég held að sé okkur góð hvatning. Stéttin hefur verið mjög karllæg og öll skref í átt að meira jafnvægi eru góð skref í átt að því að tryggja öfluga og fjölbreytta stétt fagfólks.“ Tveir frá Hótel Sögu Þeir sem keppa til úrslita um titilinn í ár eru: • Snædís Xyza Mae Jónsdóttir Ocampo, Hótel Saga Mímir Restaurant • Iðunn Sigurðardóttir, Íslenski Matarkjallarinn • Kolbrún Hólm Þorleifsdóttir, Deplar Farm • Rúnar Pierre Heriveaux, Grillið Hótel Sögu • Sigurjón Bragi Geirsson, Garri Á síðasta ári bar Garðar Kári Garðars son sigur úr býtum í þessari keppni og er því Kokkur ársins 2018. Sigurvegarinn fær þátttökurétt í Nordic Chef of the Year 2020 fyrir Íslands hönd. /smh Úrslitakeppnin Kokkur ársins 2019 verður haldin í Hörpu laugardaginn 23. mars næstkomandi. Mynd / Facebook-síða Kokkur ársins Mjólkurlíki frá Tine sem unnið er úr höfrum og kókossafa. Mynd / Tine Nýr viðskiptahraðall fyrir landbúnað og sjávarútveg: Framsæknar og djarfar nýjungar í landbúnaði og sjávarútvegi – Snyrtivörur úr gulrótum og kolsýrt drykkjarvatn úr sjó meðal hugmynda Nú er orðið ljóst hvaða tíu teymi hafa verið valin til þátttöku í „Til sjávar og sveita“, fyrsta viðskipta­ hraðlinum á Íslandi sem einblínir á nýjar lausnir og sjálfbæra verðmætasköpun í landbúnaði og sjávarútvegi. Markmiðið með hraðlinum er að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja í þessum grunnatvinnugreinum Íslendinga. Verkefninu er þannig ætlað að veita þátttakendum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd fæðist þar til viðskipti taka að blómstra. Til sjávar og sveita er haldinn í fyrsta skipti í ár en yfir sjötíu umsóknir bárust í hraðalinn. Af þessum hópi voru tuttugu umsækjendur teknir í viðtal og hafa tíu teymi nú verið valin til þátttöku úr þessum breiða hópi umsækjenda. Þrjú fyrirtæki vinna að tæknilausnum en hin sjö eru afurðatengd og koma bæði úr landbúnaði og sjávarútvegi. Í níu vikur fá forsvarsmenn fyrirtækjanna tækifæri til að þróa hugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila innan landbúnaðar og sjávarútvegs og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu. Icelandic Startups hefur í samstarfi við Íslenska sjávarklasann komið á fót til Sjávar og sveita með fulltingi Ikea á Íslandi, Matarauðs Íslands, Landbúnaðarklasans og HB Granda. Í gegnum þessa bakhjarla fá fyrirtækin aðgang að tengslaneti og fagþekkingu sem á engan sinn líka á Íslandi. Ætlunin er að hraðallinn varpi ljósi á þau tækifæri sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda á Íslandi. Eftirtalin tíu fyrirtæki taka þátt í Til sjávar og sveita 2019: ArcanaBio Ný háhraða tækni sem útbýr DNA­greiningarpróf, allt frá matvælaiðnaði yfir í líftækni Álfur Beer Bruggar bjór úr kartöfluhýði sem færi annars til spillis Beauty by Iceland Snyrtivörur úr gulrótum og rófum sem færu annars til spillis Feed The viking Sprotafyrirtæki sem starfar með það markmið að auka virði íslenskra matvæla með nýsköpun og öflugri markaðssetningu Ljótu kartöflurnar Framleiðsla á kartöfluflögum úr annars flokks íslensku hráefni sem annars yrði fargað Stafræn veiðibók Færa veiðibókina af pappírnum upp í skýin Pure Natura Framleiðir hágæða íslensk fæðuunnin bætiefni úr lambainnmat og íslenskum jurtum Tracio Næsta kynslóð rekjanleika og upplýsingakerfa sem á nýjan hátt eykur skilvirkni og traust í virðiskeðju matvæla. Urtasjór Framleiðsla á jurtabragðbættu og kolsýrðu, steinefnaríku drykkjarvatni unnið úr sjó Æðarkollur Fullvinnsla æðardúns á Íslandi Í desember 2018 var starfsemi Til sjávar og sveita kynnt með viðhöfn á veitingastað IKEA í Garðabæ. Mynd / TB

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.