Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 201930 Um síðustu mánaðamót áttu sér stað formannsskipti hjá Bændasamtökum Íslands þegar Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, varaformaður samtakanna, tók við formannsstöðunni af Sindra Sigurgeirssyni. Formannsskiptin báru brátt að þar sem Sindri var ráðinn í annað starf með skömmum fyrirvara. Guðrún er fyrsta konan sem er formaður Bændasamtaka Íslands. Guðrún segir að breytingarnar hafi verið óvæntar og borið brátt að, en þegar hún tók að sér embætti varaformanns BÍ fyrir ári hafi það verið gert af heilum hug og því ekki annað í stöðunni en að taka áskoruninni. „Ég lít þannig á að ef maður ákveður að taka að sér verkefni í lífinu þá brettir maður upp ermarnar og sinnir því sem þarf að gera þegar þörf er á og þeim verkefnum sem fram undan eru. Hún telur búsetu sína fjarri Reykjavík ekki vandamál við starfið. „Til að byrja með stefni ég að því vera í Bændahöllinni tvo daga í viku og eftir þörfum. Ég er vel tölvutengd með ljósleiðara fyrir norðan og það gerir mér og öðrum kleift að halda fjarfundi og vera þannig alltaf í góðu sambandi. Að mínu mati snýst þetta allt um að finna leiðir til að leysa svona atriði og vinna með aðstæðum og það verður ekki til vandræða að mínu mati.“ Endurskoðun búvörusamninga Fyrir skemmstu lauk endurskoðun sauðfjársamninganna og fram undan er endurskoðun á öðrum búvörusamningum og því engin ládeyða fram undan hjá nýjum formanni. „Ég kvíði því ekki, þar sem ég kem til með að vinna með mjög góðu og duglegu fólki í stjórn BÍ og fleirum við endurskoðunina. Ég hef tröllatrú á íslenskum landbúnaði, íslenskum bændum og Íslandi yfir höfuð og það er vandalaust að tala fyrir þeim sjónarmiðum við samningaborðið. Það er búið að samþykkja sauðfjársamningana og ég tel að í þeim séu stigin skref í rétta átt. Það er verið að reyna að ná utan um framleiðsluna, þrátt fyrir að við höfum ekki náð öllu fram sem við vildum. Samningar af þessu tagi eru ansi flóknir og ekki síst þar sem staða einstakra sauðfjárbænda er mjög ólík. Það er erfitt að gera svo öllum líki en ég held að niðurstaðan sé ásættanleg enda naut hún stuðnings um 70% þeirra bænda sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um hana. Hvað aðra búvörusamninga varðar sé ég ekki fram á að það verði um neinar stórar áherslubreytingar að ræða í garðyrkjusamningi og rammasamningi en gera má ráð fyrir að við munum leggja til talsverðar breytingar á nautgripasamningi í ljósi þess að kúabændur hafa lýst þeim vilja með skýrum hætti að þeir vilja áfram hafa kvótakerfi í mjólkurframleiðslu Eftir sem áður er tollvernd að mínu mati stærsta einstaka málið sem verður að skoða fyrir landbúnaðinn í heild í komandi viðræðum. Tollverndin er þýðingarmikil fyrir svína- og alifuglaeldi og eggjaframleiðslu í landinu og líka kúa- og garðyrkjubændur. Tollverndin þarf að virka þar sem henni er beitt. Það gerir hún ekki í dag því hún hefur rýrnað verulega undanfarin ár vegna stækkandi tollkvóta, aukinna opinna tollkvóta auk þess sem tollar bundnir við fasta krónutölu hafa margir verið óbreyttir í nærri aldarfjórðung. Þetta þarf að að ræða við endurskoðunina.“ Bændur þurfa að þétta raðirnar „Að mínu mati er gríðarlega mikilvægt að við bændur þéttum raðirnar og stöndum saman sem einn í þeim áskorunum sem fram undan eru þegar til stendur að stórauka innflutning. Við erum svo fá en við búum í frábæru landi sem býður upp á óteljandi möguleika. Þrátt fyrir að Íslendingar séu lítil þjóð og ekki nema þriðjungur af því sem þarf til að ná borgarmörkum víðast erlendis höfum við unnið stór afrek á mörgum sviðum. Landbúnaður á Íslandi er einstakur á heimsvísu hvað gæði og hreinleika varðar, hér er lyfjanotkun í landbúnaði í lágmarki og heilsufar búfjár einstaklega gott. Þessi staða er ekki sjálfgefin og nánast einstök í heiminum og gríðarlega mikilvægt að viðhalda og standa vörð um hana. Við erum ekki hrædd við samkeppni sé hún á þeim grundvelli að við fáum að keppa við vörur sem framleiddar eru við sambærilegar aðstæður, hvað varða til dæmis sýklalyfjanotkun, varnarefnanotkun, dýravelferð auk aðbúnaðar og réttinda starfsfólks. Við erum ekki hrædd við að keppa við landbúnaðarafurðir sem ræktaðar hafa verið með hreinu vatni og í jarðvegi sem stendur sambærilega og okkar. Við viljum leita allra leiða til að standa vörð um þá auðlind sem felst í heilbrigðum búfjárstofnum og þeim hreinleika sem íslenskar landbúnaðarafurðir búa yfir í dag. Það er að sjálfsögðu ekkert vit í að taka okkur til fyrirmyndar lönd þar sem sýklalyfjanotkun og þar af leiðandi sýklalyfjaónæmi er margfalt meiri en hér og draga sjálf okkur niður á það plan. Hvers konar hugsun er það?“ Fjárbúskapur og fræðsla Guðrún er fædd 1971 og alin upp í Svartárkoti í Bárðardal, þar sem foreldrar hennar bjuggu og hún býr í dag ásamt eiginmanni sínum, Hlina Jóni Gíslasyni. Jörðin er tvíbýli þar sem þar býr einnig Sigurlína, systir Guðrúnar, ásamt fjölskyldu sinni. Börn Guðrúnar og Hlina eru Hafrún Huld, Tryggvi Snær, Elín Heiða og Gísli Berg. „Við búum með 360 kindur auk þess sem við erum í ferðaþjónustu sem er að mestu í umsjón mágs míns LÍF&STARF Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, nýr formaður Bændasamtaka Íslands: Bændur þurfa að standa þéttar saman Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, formaður Bændasamtaka Íslands. Mynd / HKr. Svartárkot í Bárðardal. Eiginmaðurinn Hlini Jón Gíslason og Guðrún Sigríður Tryggvadóttir í stóðréttum. Mynd / úr einkasafni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.