Bændablaðið - 14.03.2019, Side 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 35
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins auglýsir:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir umsóknum
um styrki til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun, kynningar- og
markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauðfjárrækt. Sjá nánar inn á
heimasíðu sjóðsins www.fl.is, undir markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök, rann sóknar-
stofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau verkefni sem talin
eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að teljast nýsköpun,
vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu.
b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis
c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess.
d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar
eða nýttar.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www. fl.is/
markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum
sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri
311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins í síma 430 4300 og
á netfangið thorhildur@fl.is.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Fæst hjá dýralæknum og í
hesta- og búvöruverslunum
um allt land
www.primex.is
s. 460 6900
Mjög græðandi og bakteríudrepandi
Hefur reynst vel við hnjóskum á hrossum
Myndar filmu og verndar sár
Dregur úr blæðingu
Íslenskt
hugvit, hráefni
& framleiðsla
Íslenskt sárasprey
fyrir öll dýr, stór og smá
Þekkt er að almenn áhrif afkomu
í sauðfjárrækt er mismunandi
á milli landshluta. Í kjölfarið
á verðfalli sauðfjárafurða
haustin 2016–2017 ákvað stjórn
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
í samstarfi við Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, að fara af stað
með átaksverkefni til stuðnings
nýsköpunar í sveitum. Verkefnið
hófst á vormánuðum árið 2018
og í ágúst voru haldnir fjórir
hvatningarfundir; á Norðurlandi
vestra, á Ströndum og í Dölum.
Aðalfyrirlesari fundanna var
Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handbolta. Hélt
hann erindi sem ber yfirskriftina
„Leiðin til sigurs“ og er óhætt að
segja að erindið hafi mælst vel fyrir
miðað við viðbrögð gesta á öllum
fundunum, enda er það jákvætt og
mjög uppbyggilegt. Að auki voru
fengnir til leiks reynsluboltar í þróun
og sölu afurða og þjónustu beint frá
býli, sem miðluðu af reynslu sinni
varðandi þróun og markaðssetningu
vara og þjónustu. Stefanía Hjördís
Leifsdóttir frá Brúnastöðum í Fljótum
hélt erindi á fundum í Víðihlíð og
Sævangi, Þorgrímur E. Guðbjartsson
frá Erpsstöðum í Dölum hélt erindi
í Dalabúð og Matthías Lýðsson frá
Húsavík á Ströndum hélt erindi í
Höfðaborg.
Þegar unnið er með vörur ýmiss
konar og þá ekki hvað síst matvöru,
er mikilvægt að stunda stöðuga
vöruþróun til að mæta sem best
þeim þörfum sem neytendur hafa
hverju sinni. Þegar svona árar er
mikilvægara en nokkru sinni að
styðja við hvers kyns vöruþróun og
nýsköpun, sem bændur geta nýtt sér
til að auka verðmætasköpun á jörðum
sínum og þar með til að styrkja
rekstrargrundvöll og áframhaldandi
búsetu í sveitum. Jafnframt þurfa
bændur að leita allra leiða og nýta
eins vel og kostur er þann stuðning
sem er í boði til framþróunar.
Dagana 19.–21. mars verður
ráðist í annan hluta verkefnisins
og snýr hann að svipuðum
fundahöldum á Norðaustur-, Austur-
og Suðausturlandi.
Haldnir verða 6 fundir á
eftirfarandi stöðum:
• 19. mars kl. 13.00 Ýdalir
í Aðaldal
• 19. mars kl. 20.00
Svalbarðsskóli, Þistilfirði
• 20. mars kl. 13.00
Valaskjálf, Egilsstöðum
• 20. mars kl. 20.00 Hótel
Bláfell, Breiðdalsvík
• 21. mars kl. 13.00 Hótel
Smyrlabjörg, Suðursveit
• 21. mars kl. 20.00 Hótel
Kirkjubæjarklaustur
Aðalfyrirlesari er sem fyrr
Guðmundur Guðmundsson
lands liðsþjálfari og honum
til fulltingis verða gestafyrir-
lesarar sem koma til með
að miðla sinni reynslu af
nýsköpunarverkefnum.
Fundirnir verða öllum opnir
og eru sem flestir hvattir til
að mæta. Frekari upplýsingar
um fundina og verkefnið í
heild má nálgast hjá Sigríði
Ólafsdóttur, verkefnisstjóra og
ráðunauti hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Gríptu boltann!
Sigríður Ólafsdóttir
Búrekstur, hlunnindi
og nýsköpun
so@lbhi.is
Átaksverkefni Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins:
Aðalfundur og árshátíð
Landssambands kúabænda 2019
verða haldin dagana 22.–23. mars á Hótel Sögu í Reykjavík. Hefðbundin aðalfundarstörf verða á
föstudagsmorgninum en eftir hádegi hefst Fagþing nautgriparæktarinnar. Laugardagskvöldið 23. mars
verður árshátíð LK þar sem kúabændur og velunnarar munu gleðjast og skemmta sér saman.
Dagskrá Fagþings nautgriparæktarinnar
12:30 Setning Fagþings
12:35 Verðlaun fyrir bestu nautin í árgöngum 2011 og 2012
12:50 Skýrsluhald í nautakjötsframleiðslu
13:10 Nýtt erfðaefni til kjötframleiðslu
13:25 Sæðingaaðstaða fyrir holdakýr
13:50 Mælidagalíkan fyrir afurðaúthald og efnahlutföll
14:05 Áhrif mælidagalíkans á nautaval
14:20 Skyldleikarækt og áhrif hennar á afurðir í íslenska kúastofninum
14:35 Erfðamengisúrval, skyldleiki íslenska kúastofnsins við önnur kyn og niðurstöður ætternisgreininga
14:55 Kaffihlé
15:15 Hagrænt vægi eiginleika
15:40 Skýrsluhald í mjólkurframleiðslu og norræn samvinna við gagnaöflun
16:00 Fyrirspurnir og ráðstefnuslit
Árshátíð LK í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 23. mars
Forréttur: Skelfiskssúpa, saffran, íslensk hörpuskel & söl.
Aðalréttur: Íslensk nautalund, kartöflu fondant, grísasíða & rauðvínssósa.
Eftirréttur: Súkkulaðifrauð, ástríðuávöxtur & jógúrtsorbet.
√ Húsið opnar kl. 19:00
√ Veislustjórn í höndum skemmtikraftanna Jóels Sæmundssonar og Tryggva Rafnssonar
√ Óvænt skemmtiatriði
√ Hljómsveit heldur uppi fjörinu fram eftir nóttu
Miðaverð er 8.900 kr. fyrir félaga LK og 9.900 fyrir aðra. Miðapantanir í síma 563 0300. Tekin hafa
verið frá herbergi á Hótel Sögu í síma 525 9900. Taka þarf fram við pöntun að viðkomandi sé á vegum LK.
Vegna mikillar ásóknar í gistirými er árshátíðargestum bent á að hafa hraðar hendur við að panta gistingu.
Frekari upplýsingar eru á naut.is
Bændablaðið Auglýsingar 56-30-300