Bændablaðið - 14.03.2019, Side 56

Bændablaðið - 14.03.2019, Side 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. mars 2019 Ársfundur Bændasamtaka Íslands 2019 Föstudaginn 15. mars verður ársfundur Bændasamtakanna haldinn á Hótel Örk í Hveragerði. Hefðbundin aðalfundarstörf verða um morguninn en eftir hádegi verður haldin opin ráðstefna þar sem fjallað verður um sérstöðu íslensks landbúnaðar, sýklalyfjaónæmi, heilsufar manna og dýra auk nýsköpunar í landbúnaði. Um kvöldið verður slegið upp veislu á Hótel Örk þar sem bændur landsins skemmta sjálfum sér og öðrum fram á rauða nótt. Aðgöngumiði á bændahátíð kostar 8.900 kr. fyrir félagsmenn BÍ. Fullt verð 11.900 kr. Miðapantanir í síma 563-0300 og á vefsíðunni bondi.is. Upplýsingar um hótel- og gistirými í Hveragerði er að finna á vefnum www.hveragerdi.is. Ráðstefnudagskrá föstudaginn 15. mars kl. 13.00-16.00 Bændahátíð á Hótel Örk föstudaginn 15. mars kl. 20.00 Fundarstjóri: Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands Veislustjóri: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Setning ráðstefnu: Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, formaður BÍ Ávarp: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Einstök staða íslensks landbúnaðar er varðar smitsjúkdóma og sýklalyfjaónæmi Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði við Landspítalann Hvernig tölum við um lýðheilsu og matvælaframleiðslu? Eiríkur Már Guðleifsson, viðskiptastjóri á auglýsingastofunni Hvíta húsinu Kaffihlé Lífræn ræktun – Hvert er lífræn framleiðsla að stefna í heiminum? Eygló Björk Ólafsdóttir, formaður VOR, Verndun og ræktun – félags framleiðenda í lífrænum búskap Ný tækifæri í landbúnaði og sölu á afurðum bænda Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í Meðallandi Íslenska ullin: vannýtt auðlind Hulda Brynjólfsdóttir, bóndi og eigandi smáspunaverksmiðjunnar Uppspuna REKO á Íslandi – sala á búvörum í gegnum Facebook Oddný Anna Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Matarauði Íslands Pallborðsumræður fyrir kaffihlé og að erindum loknum Þriggja rétta máltíð á Hótel Örk Matseðill Forréttur Léttsteiktur humar á salatbeði, marineraðir tómatar og sítrónusósa Aðalréttur Hægeldaður lambahryggvöðvi, kartöfluterrine, bakað rótargrænmeti og jurtasósa Eftirréttur Skyrostakaka, bláber, hafrar og sítrónusorbet Skemmtiatriði Sólmundur Hólm Tónlistaratriði Hjörtur Benediktsson fer með gamanmál Ballhljómsveitin Allt í einu Hver er sérstaða íslensks landbúnaðar?

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.