Bændablaðið - 14.02.2019, Page 2

Bændablaðið - 14.02.2019, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 20192 FRÉTTIR Matarverðskönnun ASÍ á Norðurlöndum harðlega gagnrýnd: Vörukarfan hvergi sögð dýrari en á Íslandi – Ekki öll sagan sögð, segir formaður Bændasamtaka Íslands Alþýðusamband Íslands birti niður stöður verðkönnunar 6. febrúar þar sem verð á 18 til- greind um matvörum er borið saman í höfuðborgum Norður- land anna í desember síðast liðnum. Um er að ræða algengar matar- og drykkjar vörur og kemur þar fram að vörukarfan sé hvergi dýrari en hér á Íslandi. Samanburðurinn umreiknar verðið í íslenskar krónur á þeim tíma sem könnunin var gerð. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bænda- samtaka Íslands, segir að ekki sé öll sagan sögð í könnuninni. Talsvert hefur verið fjallað um könnunina og hefur sjónum verið beint að tollvernd landbúnaðarvara sem hluta af ástæðu þessa háa verðlags. Taka verður tillit til fleiri þátta Að sögn Sindra Sigurgeirs sonar, formanns Bændasamtaka Íslands, er ekki öll sagan sögð í könnun ASÍ þó þar sé vissulega ákveðin saga sögð. „Það verður að taka tillit til fleiri þátta og ég hefði viljað sjá svona kannanir gerðar oftar en á 12 ára fresti, 2006 og 2018. Í bæði skiptin er gengi krónunnar sterkt, en staðan gjörbreyttist í millitíðinni. Það er ekki deilt um að verðlag á Íslandi er hátt á flestum vörum samanborið við önnur Evrópulönd, en það er kaupmátturinn sem skiptir mestu. Hvað færðu fyrir þínar ráðstöfunartekjur og hvað þarftu að nota stóran hluta af ráðstöfunartekjum til að kaupa í matinn? Þar stöndum við vel á Íslandi. Við þurfum aðeins að nota 10,6 prósent ráðstöfunartekna til matarkaupa og erum þar í sjötta sæti af 32 löndum í Evrópu samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat.“ Samanburður á vörum sem ekki bera tolla Það er þetta sem segir til um raun- veruleg lífskjör. Vissulega nýtur land- búnaður ákveðinnar tollverndar og verð á framleiðslu hans er ekki yfir gagnrýni hafið, en það er þá eðlilegt að bera saman líka verð á vörum sem bera enga tolla, eins og fötum, skóm, raftækjum og fleiru. Það má allt skoða í gögnum Eurostat og þar er verð oftar en ekki hæst á Íslandi. Spaghetti er heldur ekki tollað svo ekki verður tollvernd kennt um mikinn verðmun þar. Skoðum þetta bara allt. Það er hið sanngjarna í málinu. Matvælaverð er meira en tvöfalt lægra í Rúmeníu en á Íslandi samkvæmt samanburði Eurostat, en þrátt fyrir það þurfa heimili þar í landi að verja meira en tvöfalt hærri hluta af ráðstöfunartekjum sínum til matarkaupa en þau íslensku,“ segir Sindri. /smh Hlutfall útgjalda neytenda til kaupa á matvörum. Hagstofa ESB, Eurostat, sýnir hlutfall útgjalda til kaupa á matvörum á Evrópska efnahagssvæðinu auk Sviss árið 2018. Verðlagskönnun sem Kristján Finnur Sæmundsson véltækni- fræðingur gerði á eigin vegum fyrir skömmu hefur vakið mikla athygli. Samanburður á matvælatollum á Íslandi og í Noregi sýni að norsk tollvernd er í mörgum tilfellum hærri en á Íslandi en matvörur samt ódýrari. Gagnrýnir hann Bændasamtökin fyrir að hafa ekki staðið sig í umræðunni. „Ég er fæddur og uppalinn vestur í Dölunum,“ segir Kristján „og hef tamið mér gagnrýna hugsun og að vera sérstaklega gagnrýninn á fullyrðingar ef ekki eru færð fyrir þeim nægjanleg rök. Þegar ég horfði á viðtalið við Andrés Magnússon, fram kvæmda- stjóra Samtaka verslunar og þjónustu, um verðlagskönnun ASÍ og hátt verð á matvörum hér á landi, þar sem hann skellir allri sökinni á verndartolla og íslenskan landbúnað en minntist ekki einu orði á þátt verslunarinnar – þá ofbauð mér. Gegnum tíðina hef ég heyrt alls kyns áróður sem haldið er á lofti gegn landbúnaði á Íslandi og finnst ekki réttlát að mörgu leyti. Ég tel mig þekkja ágætlega til í kjarna landbúnaðarins, sem er sauðfjár- og mjólkurbúskapur, og ég veit að í sauðfjárræktinni eru bændur hreinlega að lepja dauðann úr skel. Mér finnst því leiðinlegt þegar sparkað er í liggjandi mann eins og sauðfjárbændur eru í dag.“ Bændasamtökin mættu vera duglegri við að koma sjónarmiðum bænda á framfæri Kristján segir að í sínum huga hafi Bændasamtökin og bændaforystan ekki staðið sig nógu vel í umræðunni og mættu vera mun duglegri við að koma sjónarmiðum bænda á framfæri og koma réttum upplýsingum til skila. „Á þessum erfiðu tímum í sauðfjárrækt blasir við að sveitir landsins eru að flosna upp, forsendubrestur hefur orðið í greininni og við horfum öll á þetta lestarslys raungerast fyrir framan okkur. Afleiðingarnar fyrir sveitir landsins munu vara í mörg ár eða áratugi ef ekkert er að gert. Ég skora á Bændasamtökin og þingmenn að taka þessi mál föstum tökum.“ Mantra sem margir trúa „Að mínu mati tók botninn úr þegar talsmaður Samtaka verslunar og þjónustu leggur til að landbúnaðurinn lækki verðið til þess að liðka fyrir kjarasamningum. Hann er í raun að segja að bændur sem reka meðal fjölskyldubú eigi að taka á sig launalækkun til að hækka kaupmáttinn hjá öðrum, en lítið hefur borið á tillögum um að verslunin lækki sína álagningu til að auka kaupmátt neytenda. Satt best að segja erum við búin að heyra þessa möntru svo lengi að ég held að margir séu farnir að trúa henni í blindni. Það var eitthvað í því sem hann sagði sem fór illa í mig og ég ákvað að skoða hvort þetta væri virkilega svona. Ég ákvað því að bera saman tollvernd á Íslandi og í Noregi og skoða hvort ofurtollar væru hér við lýði,“ segir Kristján. Tollalækkanir ekki að skila sér „Það sem kom mér mest á óvart í samanburðinum er að það er meiri tollvernd á mörgum þeim matvælum sem ég skoðaði í Noregi en á Íslandi. Í framhaldi af því fór ég að furða mig á því hvernig hægt væri að halda fram að hér væru sérstakir ofurtollar. Tollar á Íslandi hafa sannarlega lækkað á tímabilinu 2006 til 2019, það er á hreinu. Hvað varð um lækkunina er svo fyrir aðra að skoða. Kristján segist ekki hafa forsendur til að reikna út hver álagningin á matvörum er hér á landi. „Ég hef alveg skilning á því að það sé dýrt að reka verslun á Íslandi og að það gæti þurft að hafa álagninguna eitthvað hærri en annars staðar en þá á umræðan að snúast um það en ekki skella skuldinni á landbúnaðinn. Landbúnaðurinn þarf samt aðhald eins og önnur framleiðsla og ekkert óeðlilegt við naflaskoðun þar eins og annars staðar í þjóðfélaginu.“ /VH Talsmaður Samtaka verslunar og þjónustu telur að landbúnaðurinn geti lækkað verð til að liðka fyrir samningum: Mantra sem margir trúa í blindni – segir Kristján Finnur Sæmundsson véltæknifræðingur og segir eigin könnun sýna að tollalækkanir skili sér ekki til neytenda „Tollar á Íslandi hafa sannarlega lækkað á tímabilinu 2006 til 2019, það er á hreinu. Hvað varð um lækkunina er svo fyrir aðra að skoða.” Kristján Finnur Sæmundsson. Ársfundur Bændasamtaka Íslands verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 8. mars nk. Í kjölfar fundarins verður haldin ráðstefna þar sem meðal annars verður fjallað um mótun matvælastefnu, sýklalyfjaónæmi og nýsköpun til sveita. Um kvöldið verður haldin bændahátíð þar sem íslenskar búvörur verða í öndvegi og dansað fram á nótt. Þetta er í annað sinn sem ársfundur BÍ er haldinn með þessu sniði. Búnaðarþing er haldið á tveggja ára fresti en ársfundur þess á milli. Dagskráin er á þá leið að fyrir hádegi eru hefðbundin aðalfundarstörf en eftir hádegi er blásið til opinnar ráðstefnu milli kl. 13–16. Markhópurinn er fyrst og fremst bændur en allt áhugafólk um landbúnað er hjartanlega velkomið. Meðal þeirra sem halda erindi eru Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og Vala Pálsdóttir, formaður verkefnastjórnar um mótun matvælastefnu. Þá verður fjallað um viðhorf til landbúnaðar og upplýsingagjöf til neytenda. Tveir bændur sem eru framarlega í nýsköpun segja frá sinni starfsemi, þau Örn Karlsson á Sandhóli og Hulda Brynjólfsdóttir í Lækjartúni. Örn hefur markaðssett repjuolíu og hafra sem hafa slegið í gegn í verslunum en Hulda rekur smáspunaverkmiðjuna Uppspuna sem hefur vakið mikla athygli fyrir framleiðslu á garni. Nánari dagskrá verður birt á bondi.is og þar verður líka hægt að skrá sig fyrir miðum á bænda- hátíðina. /TB Ársfundur BÍ 8. mars Sindri Sigurgeirsson, formaður Bænda samtaka Íslands. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.