Bændablaðið - 14.02.2019, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 20194
Í júní árið 2017 voru keyptar 38 kýr
af íslenskum bændum og skömmu
síðar var fósturvísum úr norsku
Aberdeen Angust holdakúakyni
komið fyrir í kúnum. Ellefu
kýr héldu og fæddust kálfarnir
síðastliðið haust og er von á fyrsta
kjötinu af þeim á markað næsta
haust.
Að sögn Sveins Sigurmundssonar,
framkvæmdastjóra Búnaðar-
sambands Suðurlands og Nautíss,
dafna kálfarnir vel og vaxa hratt um
þessar mundir.
„Kálfarnir eru vigtaðir
hálfsmánaðarlega og þyngjast vel,
oft um og yfir 1,5 kíló á dag. Sá sem
mestan vöxt sýnir er Draumur og er
oft með þungaaukningu yfir tvö kíló
á dag sem er óvenju mikið.“
Rólegir og geðgóðir
„Fyrsti Angus-kálfurinn fæddist 30.
ágúst síðastliðinn og hlaut nafnið Vísir.
Síðan komu kálfarnir einn af öðrum
í heiminn og þegar síðasta kýrin bar
um miðjan september höfðu fæðst tólf
kálfar, sjö kvígur og fimm naut en ein
kýrin bar tveimur kvígum. Burðurinn
gekk yfirleitt vel en í tveimur tilfella
þurfti aðstoð. Í öðru tilvikinu kom
ekki sótt á kúna og í hinu var um
afturfótafæðingu að ræða.
Mikill lífsþróttur er í kálfunum og
þeir áberandi rólegir og geðgóðir.“
Einangrun lýkur í júlí
Sveinn segir að kálfarnir hafi
verið færðir í einangrun snemma í
október eftir góða dvöl í kálfagarði í
góðviðrinu í september og fylgdu sex
kýr þeim inn í einangrunina.
„Einangruninni lýkur í byrjun júlí
næsta sumar og þá má taka sýni úr
gripunum. Að lokinni greiningu er
hægt að fara að taka sæði úr þeim
haustið 2019 sem verður flutt á
Nautastöð BÍ og dreift þaðan. Þá
verða nautin seld hæstbjóðanda á
útboði eða uppboði sem á eftir að
útfæra nánar og mun sæði standa
bændum til boða næsta haust.
Kvígurnar verða sæddar með
innfluttu sæði og væntanlega teknir
fósturvísar úr þeim sem verða boðnir
bændum,“ segir Sveinn.
Sveinn segir að fyrsta kjötið af
kálfunum sé væntanlegt á markað
í fyrsta lagi um áramótin 2021 og
2022. /VH
FRÉTTIR
Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti var með afurðahæsta fjárbú landsins 2018 eins og 2017:
Hver ær skilaði að meðaltali 44,3 kílóum
– Strandamenn og Vestur- Húnvetningar voru með mestar afurðir héraða á landinu eftir hverja á
Afurðahæsta bú landsins árið
2018 var bú Eiríks Jónssonar í
Gýgjarhólskoti í Biskupstungum
að því er fram kemur í
skýrslum Rágjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins. Er þá miðað við
bú sem voru með fleiri en 100 ær
á skýrslum, en hann var með 287
ær. Skilaði hver kind hjá Eiríki
44,3 kíló eftir kind eins og segir í
skýrslu RML.
Ef litið er til landshluta
voru Strandamenn og Vestur-
Húnvetningar að jafnaði að skila
bestum árangri í afurðum eftir sínar
ær. Höfðu Strandamenn þó heldur
betur, með yfir 30 kg að meðaltali,
en Húnvetningar voru þar skammt
á eftir.
Alls náðu 3 bú 40 kílóum eða
meiru að meðaltali á hverja á og 7
bú voru með 38 kg eða meira. Í öðru
sæti á listanum á eftir Eiríki var bú
Gunnars Þorgeirssonar og Grétu
Brimrúnar Karlsdóttur á Efri-Fitjum
í Fitjárdal í Vestur-Húnavatnssýslu
með 40,3 kg að meðaltali eftir 689
ær. Hlýtur það að teljast mjög góður
árangur miðað við fjölda kinda, en
ekkert annað af 24 efstu búunum
var með yfir 600 ær. Þessi 24 bú
sem voru að skila 36 kg eða meiru
eftir hverja á voru með tæplega 314
ær að meðaltali og þar af einungis 4
bú með yfir 500 ær. Hafa ber í buga
að nokkur af þessum búum eru með
kúabúskap sem aðalatvinnugrein.
Þriðja búið sem einnig náði
meira en 40 kílóum eftir hverja á
var bú Hákons Bjarka Harðarsonar
og Þorbjargar Helgu Konráðsdóttur
á Svertingsstöðum í Eyjafirði. Þau
voru með 109 ær.
Í fjórða sæti kom svo félagsbúið
Lundur á Austur-Héraði með 39,1
kg að meðaltali eftir á. Þar voru 486
ær. Í fimmta sæti var svo Elín Heiða
Valsdóttir í Úthlíð í Skaftártungum
með 38,9 kg að meðaltali eftir 361
á. Í sjötta sæti voru þau Guðbrandur
Sverrisson og Lilja Jóhannsdóttir,
bændur á Bassastöðum í
Steingrímsfirði. Voru þau með
38,5 kg að meðaltali eftir 223 ær.
Í sjötta sæti var Inga Ragnheiður
Magnúsdóttir á Svínafelli í Öræfum
með 38,4 kg eftir 332 ær. Í sjöunda
sæti komu svo hjónin Jón Grétarsson
og Hrefna Hafsteinsdóttir á Hóli í
Skagafirði. Voru þau með slétt 38
kg að meðaltali eftir 162 ær.
Úrvalsbú á lista RML
Á heimasíðu RML má finna lista
yfir úrvalsbú en þau eiga það
sammerkt að ná góðum árangri
fyrir nokkra skýrsluhaldsþætti.
Skilyrði fyrir þeim lista eru
að bú séu með fleiri en 100
skýrslufærðar ær þar sem fædd
lömb hjá fullorðnum ám eru fleiri
en 1,90. Einnig að fædd lömb hjá
veturgömlum ám séu fleiri en 0,90.
Reiknað dilkakjöt eftir fullorðna
kind er á landsmeðaltali eða meira,
gerðarmat sláturlamba er yfir 9,2,
fitumat sláturlamba sé á bilinu 5,4-
7,6 og hlutfall gerðar og fitu yfir
1,3. /HKr.
– Sjá nánar á bls. 44 og 45
Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 2,06
Gunnar og Gréta Efri-Fitjar 2,22
Hákon og Þorbjörg Svertingsstaðir 2 1,96
Félagsbúið Lundur Lundur 1,99
Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð 2,12
Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstaðir 2,16
Guðbrandur og Lilja Bassastaðir 2,00
Inga Ragnheiður Magnúsdóttir Svínafell 3 2,01
Jón og Hrefna Hóll 1,92
Sigvaldi og Björg María Hægindi 2,00
Atli Þór og Guðrún Kot 1,91
Eyþór og Þórdís Sólheimagerði 2,10
Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá 1,97
Björn og Badda Melar 1 2,00
Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafell 2,00
Ragnar og Sigríður Heydalsá 1 og 3 2,02
Gísli Halldór Magnússon Ytri-Ásar 1,92
Gunnar og Doris Búðarnes 1,89
Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrar 2 2,06
Sveinbjörn Þór Sigurðsson Búvellir 2,01
Eiríkur S Skjaldarson Gilsá 2,09
Stella og Tómas Tjörn 2,17
Smári Valsson Torfastaðir 1,95
Þormóður Heimisson Syðri-Sauðadalsá 2,09
Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti.
Frá Gýgjarhólskoti.
Holdakálfarnir á Stóra-Ármóti dafna vel:
Draumur þyngist um tvö kíló á dag
Vísir er orðinn 283 kg. Kvígan Vísa að verða 5 mánaða.
Hér eru 9 af 12 kálfum sem fæddust á Stóra-Ármóti síðastliðið haust.
Hamingjusamar íslenskar kýr með norskættuðu holdakálfana sína á túninu
hjá einangrunarstöðinni á Stóra-Ármóti.
Kálfurinn Draumur skömmu eftir
burð. Við þyngdarmælingar sýnir
hann þyngdaraukningu upp á um
tvö kíló á dag.