Bændablaðið - 14.02.2019, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 20198
Tekin hefur verið ákvörðun
um það hjá markaðsstofunni
Icelandic Lamb að hætta með
ull a rvinnsluhluta þess. Markaðs-
stofan vinnur að framkvæmd
verkefnisins Aukið virði sauð-
fjárafurða samkvæmt ákvæðum
samnings um starfsskilyrði sauð-
fjár ræktarinnar.
Ninja Ómarsdóttir hefur verið
í 40 prósent starfshlutfalli hjá
Iclandic Lamb, með sérstaka áherslu
á hönnunar- og handverkshluta
ullarvinnslunnar. Hún hóf störf 1.
september síðastliðinn og lét af
störfum um síðustu mánaðamót.
Skerpa þarf markaðssetninguna á
kjöthlutanum
Að sögn Hafliða Halldórssonar,
framkvæmdastjóra Icelandic
Lamb, er markmiðið með þessari
ákvörðun að setja betri fókus á
kjöt- og matarhlutann – og skerpa
á áherslum markaðsstofunnar og
um leið fækka verkefnum hennar.
„Það var tekin ákvörðun um að
nýta kraftana og fjármagn í að
ná árangri þar enda er staðan í
virðiskeðjunni í kjöthlutanum
þannig að þörf er á markvissum
aðgerðum þar til að lyfta upp
virði afurða og tryggja vörunni
ásættanlegt verð og ásýnd.
Við teljum að rétt sé að halda
þessum tveimur hlutum aðskildum
í markaðssetningu, þótt þeir
eigi sameiginlegan uppruna sem
sauðfjárafurðir,“ segir Hafliði. /smh
FRÉTTIR
Heilbrigðisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Lýsa yfir átaki til að draga úr útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería á Íslandi
Síðastliðinn föstudag skrifuðu
Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegs- og landbúnaðar ráðherra
og Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra undir
yfirlýsingu um sameiginlegt
átak til að draga úr útbreiðslu
sýklalyfjaónæmra baktería á
Íslandi.
Samkvæmt upplýsingum úr
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu skilaði starfshópur
heilbrigðisráðherra tíu tillögum
árið 2017 að aðgerðum til að
hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
Nýr stýrihópur beggja ráðuneyta
mun hafa það hlutverk að
framfylgja stefnu sem byggir
á tillögum starfshópsins –
sem markar opinbera stefnu
stjórnvalda í þessum málaflokki.
Stýrihópinn skipa þau Linda
Fanney Va lge i r sdó t t i r,
sérfræðingur í atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu,
S i g u r b o rg D a ð a d ó t t i r
yfirdýralæknir og Þórólfur
Guðnason sóttvarna læknir.
Spornað við alvarlegri ógn
Í tilkynningu stjórnvalda er
eftirfarandi haft eftir Svandísi
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra:
„Sýklalyfjaónæmi er grafalvarlegt
vandamál sem verður að takast
á við af mikilli alvöru með
raunhæfum aðgerðum og víðtæku
samstarfi. Sem heilbrigðisráðherra
mun ég leggja af mörkum það sem
í mínu valdi stendur til að sporna
við þessari alvarlegu ógn.“
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra sagði af þessu tilefni:
„Með þessari undirritun liggur
fyrir opinber stefna íslenskra
stjórnvalda í baráttunni gegn
útbreiðslu sýklalyfjaónæmra
baktería. Það mikilvæga skref
markar í mínum huga kaflaskil
í þeirri baráttu og ber að þakka
fyrir það góða starf sem unnið
hefur verið á síðustu árum, m.a.
starfshóp sem skilaði tillögum
sínum árið 2017 og opinber stefna
Íslands byggir nú á.“ /smh
Stýrihóp ráðuneytanna skipa þau Linda Fanney Valgeirsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu,
Mynd / Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Hætt með hönnunar- og
handverkshluta Icelandic Lamb
Mynd / smh
Sláturfélag Suðurlands vill fleiri
sauðfjárbændur í viðskipti
Sláturfélag Suðurlands hefur
sent frá sér tilkynningu þar sem
óskað er eftir fleiri innleggjendum
sauðfjár á næstu sláturtíð. Félagið
áætlar að auka slátrun á þessu ári
sem nemur 8–10 þúsund kindum.
Í tilkynningunni segir
að í ljósi breyttra aðstæðna
á markaði og fækkunar
sauðfjársláturhúsa hafi
SS ákveðið að lengja
sláturtíð haustið 2019
um þrjá sláturdaga.
Nýjum innleggjendum
á félagssvæði SS er
boðið upp á að sækja um
innleggsviðskipti með sama
rétti og þeir sem fyrir eru. Ef sótt
verður um heildaraukningu sem er
umfram 8–10 þúsund fjár verður
magninu skipt niður en þó þannig
að ekki verða sótt færri en 100 lömb
að jafnaði til nýs innleggjanda.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
sagði við Bændablaðið að ýmsar
ástæður lægju að baki því að félagið
óskaði nú eftir fleiri innleggjendum.
Hann telur að ákveðin vatnaskil séu
að verða í sauðfjárframleiðslunni
þar sem birgðastaða sé í jafnvægi
og útflutningsmarkaðir lofi góðu.
„Breyttar aðstæður er lægri
birgðastaða í landinu en sést hefur
um langt árabil og mjög spennandi
nýr útflutningsmarkaður í Þýskalandi
sem breytir miklu við að geta flutt
út með viðunandi hætti og verið
með eðlilegt framboð innanlands.
Jafnframt skiptir máli að Noregur
vill aftur kaupa kjöt í töluverðum
mæli,“ segir Steinþór.
Norðlenska hættir slátrun á Höfn
Norðlenska mun hætta
slátrun á Höfn í Hornafirði
næsta sumar eins og fram
kemur í frétt hér til hliðar.
Aðspurður segir Steinþór
að það sé jákvætt að geta
boðið þeim sem þar voru
og eru á félagssvæði SS
möguleika á að sækja um
innlegg hjá félaginu. Hann
segist jafnframt reikna með meiri
fækkun sláturhúsa á komandi árum.
Hefja slátrun 4. september
Áætlað er að slátrun hjá SS hefjist
í 36. viku, 4. september og ljúki í
45. viku, eða 8. nóvember. Allt að
20% yfirborgun verður í boði fyrstu
vikuna sem trappast niður eftir því
sem líður á. Í tilkynningu SS segir
að það sé stefna fyrirtækisins að
greiða samkeppnishæft afurðaverð
og þegar vel gengur að miðla hluta
af rekstrarafgangi til bænda í formi
viðbótar á afurðaverð.
Sláturfélagið óskar eftir því að
bændur sem hafi áhuga á að koma í
viðskipti til þeirra sæki um fyrir 1.
mars næstkomandi. /TB
Norðlenska hættir starfsemi á Höfn:
Sláturfélagið Búi skoðar
áframhaldandi rekstur
Leigusamningur Norðlenska
við Sláturfélagið Búa á Höfn
í Hornafirði rennur út um
miðjan júlí næstkomandi. Ekki
stendur til hjá Norðlenska að
endurnýja samninginn og mun
fyrirtækið því hætta slátrun þar.
Heimamenn skoða möguleikann
á áframhaldandi rekstri.
Eiríkur Egilsson, bóndi að
Seljavöllum, Hornafirði og
stjórnarformaður Sláturfélagsins
Búa á Höfn, segir að
leigusamningur Norðlenska
við Búa renni út um miðjan júlí
næstkomandi og að ekki standi
til hjá Norðlenska að endurnýja
samninginn og mun fyrirtækið því
hætta slátrun þar.
„Framhald slátrunar á Höfn er
því óráðið eins og er en heimamenn
eru að skoða hvaða möguleikar eru
í stöðunni. Einn möguleikinn er
að Búi og heimamenn verði með
áframhaldandi rekstur og taki að
sér slátrun. Við vitum ekki enn
sjálf hvort það verður Búi sem sér
um reksturinn eða hvort um hann
verður stofnað sérstakt hlutafélag
og reksturinn. Ég á samt von á að
það skýrist á næstu vikum,“ segir
Eiríkur.
Eiríkur segir að Norðlenska hafi
dregið úr slátrun á Höfn undanfarið
ár og að á síðasta ári hafi verið
slátrað rétt um tuttugu þúsund
fjár á Höfn en talsvert af fé er
flutt á bílum norður á Húsavík til
slátrunar þar.
„Sauðfé hefur fækkað á svæðinu
undanfarin ár en hér var slátrað úr
Lóni, Djúpavogshreppi og alveg
austur á Berufjarðarströnd 2015
og 2016 og þá var slátrað hér yfir
30 þúsund fjár og getan í húsinu
er um 35 þúsund.“ /VH
Eiríkur Egilsson, bóndi að
Mynd / HKr.
Mynd / HKr.
Landssamtök sauðfjárbænda:
Oddný Steina Valsdóttir
hættir formennsku
Oddný Steina Valsdóttir, sauð-
fjárbóndi á Butru í Fljótshlíð,
gefur ekki kost á sér til áfram-
haldandi formennsku hjá
Landssamtökum sauðfjár-
bænda (LS). Þetta kemur fram
í grein sem Oddný ritar á bls.
32 í Bændablaðinu í dag.
Oddný tók við formennsku
á aðalfundi samtakanna í mars
2017.
„Einhverjum kann að þykja
það heldur stutt ending að sitja á
formannsstóli í tvö ár,“ segir hún
í greininni.
„Ég bið þá sömu að hafa
hugfast að formannsdrauminn
bar ég aldrei í maganum þótt ég
hafi fyrir tveimur árum ákveðið
að taka þessari áskorun. Þrátt fyrir
að kunna ágætlega við embættið
þá stendur hugurinn til annarra
verkefna á þessum tímapunkti. Ég
fer sátt frá borði.“
Oddný tekur einnig fram að
hún hafi aldrei staðið ein í þessu
embætti.
„Stjórn og framkvæmdastjóri
hafa unnið saman sem einn
maður og hvert eitt einasta þeirra
verið frábærir liðsmenn. Þá hafa
samtökin notið styrk og liðsinnis
Bændasamtakanna, sem skiptir
miklu máli. Ég hef sinnt þessu
embætti af alefli enda frá fyrsta
degi ljóst að það þyrfti til, en hvort
það var nóg á líklega tíminn eftir
að leiða í ljós.“ /HKr.