Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 15

Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 15 „Við erum að skapa vettvang fyrir það fólk sem virkt var í félagsmálum bænda, afurðastöðva og stofnana landbúnaðarins á árunum 1980 til 2010, til að koma saman á góðri stundu og fá tækifæri til að viðra sín sjónarmið og koma þeim á framfæri. Við túlkum rammann vítt þannig að sem flestir geta fallið undir þessa skilgreiningu,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson á Lamb Inn á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit, en þar verður efnt til málstofu og samveru dagana 5. til 7. apríl næstkomandi með yfirskriftinni „Hin gömlu kynni gleymast ei“. „Öldungaráð landbúnaðarins“ Farið verður í heimsókn til bænda í Eyjafjarðarsveit á föstudeginum 5. apríl og um kvöldið verður lambapitsukvöld þar sem sagðar verða sögur frá fyrri tíð. Á laugardeginum verður fundur þar sem fjallað verður um málefni landbúnaðarins, framsögumenn flytja áhugaverð erindi af þeim vettvangi. Um kvöldið verður í boði hátíðarkvöldverður, skemmtiatriði og gaman að „fornum sið“. Formlegri dagskrá lýkur sunnudaginn 7. apríl með undirbúningsfundi fyrir stofnun ,,Öldungaráðs landbúnaðarins“ ef áhugi er fyrir slíku. Vettvangur til að viðra hugmyndir „Það er tvennt sem fyrst og fremst vakir fyrir okkur með þessari samkomu,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson hjá ferðaþjónustunni á Öngulsstöðum, „í fyrsta lagi að gefa fólki sem var virkt á þessum vettvangi áður tækifæri til að hittast og í öðru lagi að búa til vettvang þar sem þeim gefst kostur á að viðra hugmyndir sínar og sjónarmið hvað varðar stöðu landbúnaðarins um þessar mundir.“ Daði Már Kristófersson, prófessor við HÍ, verður fundalóðs og dregur saman niðurstöðu umræðunnar og Haukur Halldórsson, margreyndur búnaðarþingsfundarstjóri, tekur að sér fundarstjórn. Gist verður á Lamb Inn Öngulsstöðum og í heimagistingu í nágrenninu ef á þarf að halda. /MÞÞ Í söfnum landsins er að fi nna ótrúlega fjölbreytta muni, listaverk, ljósmyndir og aðrar heimildir um sögu þeirra sem hafa búið á Íslandi. Vissir þú að hægt er að skoða safnkost um 50 safna á vefsíðunni sarpur.is? Í gagnasafninu má fi nna: ljósmyndir, muni, jarðfundi, myndlist/hönnun, fornleifar, hús, myntir/seðla, skjöl, teikningar, bækur, þjóðhætti og örnefnalýsingar. Líttu við á sarpur.is. munir myndir minningarSarpur.is KISTILL 1725-1800 Leitarorð: Útskurður GUÐMUNDA ANDRÉSDÓTTIR 1971 Leitarorð: Abstrakt LJÓSMYND Leitarorð: Vinátta LJÓSMYND 1978-1987 Leitarorð: Leikari STEINN, BASALTHRAUN Leitarorð: Steinasafn SILFURNÆLA 1050 - 1100 Leitarorð: Næla NÆLONSOKKUR 1930 Leitarorð: Fatnaður ALMANAK 1938 Leitarorð: Skólabók NUDDTÆKI 1980 Leitarorð: Tæki KARL DUNGANON 1946-1960 Leitarorð: Landslag HNEFI 900 - 1000 Leitarorð: Bein NÁLHÚS FRÁ STÖNG 900 - 1100 Leitarorð: Nál ,,Hin gömlu kynni gleymast ei“ – Málstofa haldin á Öngulsstöðum í apríl Austur-Húnavatnssýsla: Kosið um sameiningu í fyrsta lagi á næsta ári Ljóst er að ekki verður kosið um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu næsta vor eins og stefnt hefur að frá upphafi viðræðna þar um. Sameiningarnefnd sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu er sammála um að kosið verði um sameiningu sveitarfélaganna á síðari hluta kjörtímabilsins, þ.e. árið 2020 eða í síðasta lagi árið 2021 að því er fram kemur í fundargerð nefndarinnar. Farið var yfir stöðu mála á fundi í byrjun febrúar og þar var lagt til að verði sameining samþykkt á næsta ári taki ný sveitarstjórn við árið 2022 eftir almennar sveitarstjórnarkosningar. Fram að því verði tíminn notaður til að vinna SVÓT greiningu fyrir alla málaflokkana og eins þurfi skýr framtíðarsýn fyrir Austur- Húnavatnssýslu að liggja fyrir. Umræður urðu um á hvern hátt hið opinbera kæmi að málum og eins hversu lengi menn skuli bíða eftir svörum þaðan. Hægt verði að fullvinna málefnaskrá þegar þau svör berist, þá þarf að kynna hana fyrir íbúum og í framhaldinu að kjósa um sameiningu. Enn liggur ekki fyrir hver aðkoma Jöfnunarsjóðs verði að sameiningunni en það ætti að liggja fyrir á næstu vikum, segir í fundargerðinni. /MÞÞ Fra Blönduósi. Mynd / HKr. Fagrabrekka vill hýsa Hafíssetur Borist hefur tilboð frá Fögrubrekku fyrir botni Hrútafjarðar um að taka við Hafíssetrinu sem verið hefur í Hillebrandtshúsi á Blönduósi. Setrið hefur verið lokað undanfarin ár og ekki enn ljóst hvort það verði opnað endurnýjað á sama stað eða það flutt annað. Í Fögrubrekku, sem er steinsnar frá Staðarskála, er að rísa ferðamiðstöð. Upphafsmaður setursins er Þór Jakobsson veðurfræðingur sem greinir frá þessum tíðindum á vefsíðu Húnvetninga, huna.is. Kveðst hann vonast til þess að Blönduósbær þiggi þetta góða boð í stað þess að láta sýninguna standa óséða bak við lás og slá enn eitt sumarið eins og hann orðar það. Hafíssetrið gekk vel fyrstu árin en halla fór undan fæti, endurnýjun varð ekki sem skyldi og aðsókn dvínaði þannig að ekki þótti fært að reka safnið áfram. Þór hefur í bréfi til sveitarstjórnar Blönduósbæjar stungið upp á því að sveitarfélagið spýti í lófana og færi aftur á dagskrá gamlar hugmyndir um sýningar á sviði náttúru og mannlífs. Hvernig færi betur á sýningu af því tagi en á Blönduósi vð Húnaflóa. Þór mun ræða málið við Valdimar O. Hermannsson sveitarstjóra á næstunni. „Söfn og setur á sviði jarðfræði, einkum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, dafna vel og eru aðdráttarafl fyrir Íslendinga og ekki síst fyrir ferðamenn. Nútímasetur og sýning um veður, veðurfar, veðurfarssveiflur, haf og hafís með áherslu á norðurslóðir og Norður-Íshaf vantar og einmitt á Blönduósi ætti setrið að rísa í sérhannaðri byggingu (t.d. á svæðinu milli Hnjúkabyggðar og Blöndubyggðar?). Áreiðanlega yrði slíkt hús vinsælt meðal Húnvetninga og sjálfsagður áningarstaður ferðamanna á leið norður eða suður,“ segir í grein Þórs. /MÞÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.