Bændablaðið - 14.02.2019, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201916
Fyrir þremur áratugum eða svo
voru hátt í 500 netabátar að
veiðum á vetrarvertíðinni. Núna
eru þeir aðeins 20–30 talsins á
öllu landinu að undanskildum
smábátum.
Sú var tíðin að allar hafnir
á vertíðarsvæðinu svokallaða
frá Hornafirði vestur um til
Patreksfjarðar voru þétt setnar
netabátum og netagirðingar lágu
um allan sjó. Meðan veiðar voru
frjálsar kepptust allir við að ná sem
mestum afla á þeim tíma þegar
þorskurinn gekk upp á grunnið til
hrygningar og auðveldast var að
veiða hann. Í góðum aflaárum var
talað um landburð af fiski þannig
að stundum varð að kalla út allar
vinnandi hendur, þar á meðal
skólakrakka, til þess að „bjarga
verðmætum“ eins og það var
nefnt. Sæmdarheitið aflakóngur
fékk sá skipstjóri sem ásamt áhöfn
sinni veiddi mest á hverri vertíð.
Það var eftirsóttur titill.
Íslandsmet í netaveiðum
Einn þessara aflakónga var
Björgvin Gunnarsson í Grindavík,
Venni á Geirfugli eins og hann
var kannski betur þekkur, en
hann og áhöfn hans veiddu 1.704
tonn í netin árið 1970 sem þá var
Íslandsmet og kannski heimsmet.
Björgvin rifjaði upp þessa tíma
í samtali við Hjört Gíslason
sem birt var í Fiskifréttum fyrir
nokkrum árum.
,,Vertíðarnar voru hreinlega
ævintýri. Við vorum ekkert
einir um að fiska mikið. Þetta
voru auðvitað frjálsar veiðar
og fiskigengdin alveg ótrúleg.
Trossurnar voru gjörsamlega
haugfullar af fiski,“ segir
Björgvin. Eitt sinn fengu þeir
70 tonn í fimm trossur eftir
blánóttina, allt saman stór og
fallegur þorskur. Björgvin bendir
á í viðtalinu að nú sé flotinn
orðinn svo góður og vel búinn
tækjum að það sé enginn vandi
lengur að veiða. Vandinn felist
í því að fara skynsamlega að og
taka ekki of mikið.
Allt að hundrað skip lönduðu
daglega í Grindavík á þessum
árum, höfnin var full af skipum
og aðkomubátar voru fjölmargir.
Á vetrarvertíðinni komu bátar frá
Ólafsfirði, Dalvík, Grenivík og
Norðfirði til Grindavíkur. Aðrar
hafnir voru einnig þétt setnar.
Áfram fjöldi netabáta
Eftir því sem árin liðu fóru
stjórnvöld að setja hömlur á veiðar
en samt var fjöldi netabáta áfram
mikill. Samkvæmt tölum í Útvegi,
riti Fiskifélags Íslands, voru 440–
500 bátar skráðir á net í mánuðum
mars til maí árið 1982. Það ár var
þorsaflinn reyndar talsvert meiri en
menn eiga að venjast í seinni tíð
eða 381 þúsund tonn, þar af kom
þriðjungurinn í net eða 128 þúsund
tonn.
Tíu árum síðar, eða árið 1992,
hafði bátum á netaveiðum á
vertíðinni ekki fækkað ýkja mikið
þótt heildaraflinn hafi minnkað
verulega. Ennþá voru 460 netabátar
skráðir í aprílmánuði og um 380
bátar í mánuðunum mars og maí.
Þá var heildarþorskaflinn 267 þús.
tonn, þar af veiddust 60 þús. tonn í
net eða 22%.
Enn færum við okkur fram um
tíu ár, til ársins 2002. Þá veiddust
213 þús. tonn af þorski, þar af 44
þús. tonn í net eða 21% af heildinni.
Aðeins 8% í net
Á árinu 2012 var staðan orðin mjög
breytt. Það ár var þorskaflinn alls
205 þús. tonn þar af fengust aðeins
17 þús. tonn í net eða 8%. Þegar
hér er komið sögu eru opinberar
skýrslur hættar að tilgreina fjölda
báta á einstökum veiðarfærum eftir
mánuðum.
En hvernig er staðan nú, á árinu
2019? Gísla Reynissyni, sem heldur
úti vefnum aflafrettir.is og fylgist
grannt með bátum og aflatölum,
telst til að seinnipart janúarmánaðar
í ár hafi aðeins um 20 netabátar
verið komnir á veiðar á landinu öllu,
þar af fjórir smábátar. Á öllu árinu
2018 hafi aðeins 25 netabátar veitt
100 tonn eða meira hver.
Aukinn hlutur línu og dragnótar
Það sem í stórum dráttum hefur
gerst er að auknar línuveiðar og
dragnótaveiðar á þorski hafa komið
í stað samdráttarins í netaveiðum.
Á þessum umræddu þrjátíu árum
minnkuðu netaveiðar sem hlutfall
heildarþorskveiða úr 34% í 8% eins
og áður kom fram. Á sama tíma
jukust línuveiðarnar úr 11% í 33%.
Dragnótaveiðar á þorski jukust úr
nánast engu í 5%. Þorskveiðar
í botnvörpu minnkuðu úr 52%
í 46% af heild. (Þess má geta að
á árinu 2018 var hlutur netaafla í
þorskveiðum kominn niður í 6,7%).
Hver er orsökin?
Sú spurning vaknar hvers vegna
netaveiðarnar hafi dregist svona
mikið saman. Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Þorbjarnar
hf. í Grindavík, sagði í samtali
við Fiskifréttir fyrir nokkrum
árum að ástæðurnar væru einkum
tvær. Önnur væri sú að þegar
þorskstofninn hafi minnkað hafi
netaveiðarnar orðið óarðbærar.
Minna af fiski hafi komið í hvert net
og veiðarnar hafi orðið á tímabili of
dýrar miðað við tilkostnað.
Hin ástæðan væri sú að verð fyrir
saltfisk á Portúgalsmarkaði hefði
dalað og Íslendingar hefðu misst
stöðu sína þar, en sá markaður tæki
aðallega netafisk. „Við Íslendingar
kusum að snúa okkur í auknum
mæli að saltfiskmörkuðunum á
Spáni, Ítalíu og Grikklandi sem
borga betur. Þessir markaðir
vilja líka hvítari fisk en kemur úr
netunum og því hentar línufiskurinn
betur þar. Línufiskurinn býður líka
upp á fleiri vinnslumöguleika,
t.d. ferskflakavinnslu, á meðan
netafiskurinn hentar betur í saltfisk
og skreið,“ sagði Eiríkur. Hann bætti
því hins vegar við að með stækkun
þorskstofnsins væri verulegar líkur
á að mikilvægi netaveiða ykist á ný.
Autt þar sem áður var skógur
Eiríkur minntist þess tíma þegar
hundruð netabáta stunduðu veiðar
á vertíðarsvæðinu. „Ég skrapp til
gamans út á Krísuvíkurberg í mars
í fyrra til þess að virða fyrir mér
hafsvæðið þar fyrir utan þar sem
150 netabátar lögðu net sín fyrir 15
árum eða svo. Þá voru netabaujurnar
eins og skógur á haffletinum á
þessum slóðum. Nú var þar ekki
ein einasta bauja,“ sagði Eiríkur
Tómasson í samtali við Fiskifréttir
árið 2016.
Vetrarvertíðin ekki svipur hjá sjón
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Tíminn líður hratt og
reyndar hraðar og hraðar
og ekki síst eftir að fólk er
komið á garðyrkjualdurinn
og árstíðirnar koma og fara.
Alltaf er jafn spennandi að
bíða eftir vorinu og sumrinu
sem líður svo allt of hratt.
Núna er sem sagt kominn
tími til að huga að fyrstu
vorverkunum eins og að klippa
limgerðið. Tilgangurinn með
því að klippa limgerði er að
halda runnunum í ákveðinni
hæð og breidd. Klippingin er
líka til þess ætluð að runnarnir
þétti sig og haldi ákveðinni
lögun. Til að fá þétt og fallegt
limgerði verður að klippa það
reglulega frá gróðursetningu.
Limgerði sem trassað er að
klippa verða gisin.
Á fyrsta til þriðja ári eftir
gróðursetningu á að byrja að
móta limgerðið með því að
klippa burt um tvo þriðju af
ársvexti hraðvaxta tegunda
en minna, um fjórðung, af
tegundum sem vaxa hægar.
Taka skal bæði utan og ofan
af runnunum. Klippa þarf eftir
skipulagðri áætlun, tvisvar
til fjórum sinnum á ári. Gæta
verður að því að tré eins og
birki, reynir, hegg, lerki og
greni hafa tilhneigingu til að
mynda leiðandi stofn og þær
tegundir á ekki að klippa ofan
af fyrr en réttri hæð er náð.
Limgerði, sem eru breið
að neðan og mjókka eftir því
sem ofar dregur, eru það sem
er kallað A-laga og talið besta
formið. Lögunin tryggir að sól
skín á allar greinarnar og dregur
úr að snjór sligi þær. Mjó og nett
limgerði, sem eru ekki nema
50 til 60 sentímetrar að neðan
og mjókka upp í topp, veita
alveg jafnmikið skjól og breið
og fyrirferðarmikil limgerði.
Almennt veita limgerði skjól
fyrir vindi sem nemur tíu
sinnum hæð þeirra.
Þægilegasti tíminn til að
klippa limgerði er snemma á
vorin og fram að laufgun, eða á
meðan greinarnar eru lauflausar
og sjáanlegar. Klipping á
sumrin er meira snyrting en
stórklipping.
Hversu stíft limgerði eru
klippt fer eftir vaxtarlagi
plantnanna sem í því eru.
Limgerði með birki, reyni,
toppum, misplum, alparifsi
eða víði getur verið fallegt að
klippa mjög mikið og nánast
eftir reglustiku. Limgerði úr
fjallarifsi, kvistum og roðaberi
er aftur á móti fallegt að láta
vaxa frjálslegar og eilítið villt.
Gömul og gisin limgerði má
endurnýja með því að klippa þau
rækilega niður að vori og skilja
eftir 15 til 20 sentímetra stubba.
Víðir, fjallarifs, blátoppur
og gljámispill þola svona
klippingu vel en fara verður
gætilega með aðrar tegundir,
til dæmis birki, sem alls ekki
þolir niðurstýfingu. Það þarf að
skilja eftir nokkrar greinar svo
að plantan eigi auðveldara með
að endurnýja sig.
Áður en hafist er handa við
klippinguna er nauðsynlegt að
yfirfara öll verkfæri vel, hvort
sem um er að ræða vél- eða
handverkfæri. Ef endurnýja
þarf verkfærin margborgar sig
að eyða aðeins meira í góðar
klippur en að kaupa ódýr og
léleg verkfæri. Klippur eiga
alltaf að vera hreinar og beittar.
Sé bitið í klippunum sljótt
mer það greinarnar í sundur
í stað þess að klippa þær og
slíkt getur auðveldlega valdið
vanþrifum og sveppasýkingu í
þeim. /VH
STEKKUR
NYTJAR HAFSINS
Sú var tíðin að allar hafnir á vertíðarsvæðinu svo-kallaða frá Hornafirði vestur um til Patreksfjarðar
voru þéttsetna netabátum og netagirðingar lágu um
allan sjó. Svo er ekki lengur.
Vorið kemur