Bændablaðið - 14.02.2019, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201918
HROSS&HESTAMENNSKA
Hrossaræktarsamtök Suðurlands:
Púlsinn í Ölfushöllinni
23. febrúar
Laugardaginn 23. febrúar frá
klukkan 11.00 til 17.00 standa
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
fyrir viðburði í Ölfushöllinni sem
kallast Púlsinn.
Um er að ræða fræðslusýningu
fyrir fagaðila í hestamennsku þar sem
almenningi og öðrum gefst kostur á
að fá innsýn í heim þeirra sem hafa
lifibrauð sitt af hestamennsku. „Á
Púlsinum verður efnt til sýnikennslu
og umræðu er lýtur að hrossahaldi,
ræktun hrossa og þjálfun, skemmtun
og ýmsa aðra starfsemi þar sem
hesturinn spilar stórt hlutverk.
Ókeypis er á sýninguna að þessu
sinni en ráðgert er að Púlsinn verði
árviss viðburður framvegis,“ segir
m.a. í tilkynningu frá samtökunum.
/MHH
Mynd / HKr.
Söguágrip íslenska hestsins á fullveldisöld komið upp á vegg í Bændahöllinni
Hönnuðirnir frá Hnotskógi ehf.,
þau Ragnar Þór Arnljótsson og
María Margeirsdóttir, hönnuðu
sýninguna fyrir Sögusetur íslenska
hestsins á Hólum í Hjaltadal en
um eins konar refil eða lágmynd
með sögu íslenska hestsins frá því
Ísland varð fullvalda ríki árið
1918 er að ræða.
Kristinn Hugason, sem hefur veitt
safninu forstöðu undanfarin ár segir
að þetta verkefni hafi verið unnið
samhliða og á líkan hátt og sýning
um íslenska hestinn sem nefnd var
Uppruni kostanna og sett var upp í
Skagafirði 2016. Sú sýning hefur
reyndar farið víðar. Var þetta gert
í nánu samstarfi Sögusetursins og
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
(RML) og í samvinnu þeirra Kristins
og Þorvaldar Kristjánssonar
ráðunautar. Fékk Sögusetrið styrk
til þessa verkefnis frá afmælissjóði
sem stofnaður var til að minnast
100 ára fullveldis Íslands á síðasta
ári. Var þá sett í gang verkefnið
„Þjóðarhesturinn“ sem breyttist svo
í meðförum í „Íslenski hesturinn á
fullveldisöld“.
Þessi framsetning á sögu
íslenska hestsins byggist á rannsókn
Þorvaldar um erfðahlutdeild íslenska
hestsins. Þannig er sýningin sett
saman af tímalínum í hrossarækt,
dómum og keppnum á þessum
hundrað árum. Upphafið er rakið til
hestsins Sörla frá Svaðastöðum sem
yfir 90% af íslenska hrossastofninum
rekur ættir sínar til í dag. Hönnuðir
Hnotskógar settu þetta í myndrænt
form með ítarlegum en hnitmiðuðum
skýringatextum. Var búið til
risaspjald sem haft var uppi á
Landsmóti hestamanna í Víðidal
í Reykjavík sumarið 2018. Nú er
búið að gera smækkaða útgáfu af því
verki í 390 sentímetra lengd og setja
það upp í anddyrinu á skrifstofum
Bændasamtaka Íslands á þriðju
hæð Bændahallarinnar, Hótel Sögu.
Þetta verkefni, Íslenski hesturinn
á fullveldisöld, og efni með
fyrirlestrum og öðru sem því tengist
má líka berja augum á heimasíðu
Söguseturs íslenska hestsins;
sogusetur.is undir slánni Gagnabanki
og er sýningin þar hvoru tveggja í
íslenskri og enskri útgáfu.
Þorvaldur segir að á þessum
100 árum hafi íslenski hesturinn
tekið miklum breytingum og
framfarir náðst í bygginglagi
hans og ganghæfni. Þá sé íslenski
hesturinn talsvert hávaxnari í dag
en hann var að jafnaði fyrir t.d. 30
árum. Tilkoma betra fóðurs sem að
hluta má rekja til rúllubagganna
skiptir þar líka miklu máli. Þannig
hefur íslenski hesturinn hækkað
að meðaltali um 8 sentímetra frá
1990, eða úr um 134 sentímetrum
upp á herðar og í um 142 sentímetra.
Kristinn tekur undir það og segir
að það hækkun hestsins megi bæði
rekja til úrvals og bættrar fóðrunar.
Það sé líkt og með fólkið í landinu
sem er að jafnaði mun hávaxnara í
dag en á öldum áður.
Sörli, sem nú er hægt að rekja
erfðamengi flestra hesta á Íslandi
til, kom frá búi sem stundaði
mikinn útflutning á hrossum svo
þúsundum skipti og sölu til annarra
landshluta. Þar voru aðstæður
góðar til vetrarbeitar og munu
Svaðastaðabændur hafa efnast mjög
á hrossasölunni. Í gegnum tíðina
hefur verið stundaður gríðarlegur
útflutningur á hrossum en hann var
þó í algjöru lágmarki upp úr 1936
og fram yfir 1955. Var hann mestur
1923, eða um 4.000 hross.
Á reflinum eða veggspjaldinu
kemur greinilega fram hversu miklar
framfarir hafa verið í ræktun íslenska
hestsins á nýliðinni fullveldisöld.
Má þar greinilega sjá línurit yfir
sköpulag, hæfileika, aðaleinkunn,
stærð og tíðni skeiðgensins í
stofninum. /HKr.
Kynbótasýningar 2019
Nú er búið að stilla upp áætlun
fyrir kynbótasýningar árið
2019 og er hún komin inn á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins (rml.is) undir Kyn-
bótastarf/Hrossarækt/Kynbóta-
sýningar. Opnað verður á
skráningu á kynbótasýningarnar
um miðjan apríl og nánar verður
þá tilkynnt um skráningarfresti á
einstakar sýningar.
Sýningaráætlunin er með
hefðbundnu sniði og síðastliðin ár.
Sýningarnar hefjast á Sörlastöðum
20. maí og enda á Akureyri 21. júní.
Tvær sýningar eru fyrir
norðan í vor og var ákveðið
að hafa viku á milli þeirra
til að knapar gætu betur
nýtt seinni möguleikann
til sýninga.
Þá verður boðið
upp á tvær vikur fyrir
miðsumarssýningar á
Suðurlandi. Miðsumars-
sýning á Gaddstaðaflötum
hefur verið stærsta sýning
ársins á árunum á milli
landsmóta undanfarið. Sú
sýning hefur verið í viku
með tveimur dómnefndum.
Var ákveðið að bjóða upp
á tvær vikur í stað einnar
í ár með einni dómnefnd
að störfum báðar vikurnar.
Fjórðungsmót
Fjórðungsmót verður
hald ið á Austurlandi í ár; að Fornu-
stekkum í Hornafirði. Hross sem eru
í eigu aðila á Austurlandi en einnig
í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og í
Rangárvallasýslu eiga þátttökurétt
á mótinu.
Ákveðinn fjöldi efstu hrossa í
hverjum flokki eiga þátttökurétt
á mótinu og er því ekki um
einkunnalágmörk að ræða.
Heildarfjöldi kynbótahrossa á
mótinu og skipting þeirra á milli
flokka verður birt fljótlega. Til að
auðvelda bestu klárhrossum með
tölti að komast inn á mótið verður
10 stigum bætt við aðaleinkunn
klárhrossa í sætisröðun hrossa
inn á mótið. Þetta er sama leið og
var farin fyrir síðasta landsmót
hvað klárhrossin varðar. Þegar
kynbótasýningarnar byrja í vor
verður birtur stöðulisti í WorldFeng
sem sýnir hvaða hross eru inni á
mótinu hverju sinni. Ef fleiri en
eitt hross eru jöfn í síðasta sæti
inn á mótið þá er þeim öllum
heimil þátttaka á mótinu. Eins
verða eigendur hrossa sem vinna
sér þátttökurétt á mótinu en ætla
sér ekki að mæta með þau af
einhverjum ástæðum beðnir um að
láta vita fyrir ákveðna dagsetningu,
þannig að hægt sé að bjóða hrossum
sem eru neðar á listanum þátttöku
á mótinu.
Heimsleikar
Heimsleikar verða haldnir í ár
í Berlín dagana 4. til 11. ágúst.
Kynbótahross verða sýnd á mótinu
eins og verið hefur og veljum við
Íslendingar efstu hross sem
völ er á í hverjum flokki
fimm, sex og sjö vetra og
eldri hryssna og stóðhesta.
Höfum við valið eitt hross í
hverjum flokki og verður það
gert þannig í ár. Valið þarf að
liggja fyrir á fyrstu dögum
júlímánaðar og verður það
því árangur á vorsýningum
sem mun liggja valinu til
grundvallar.
Það stefnir í spennandi
ár hvað kynbótahrossin
varðar með Fjórðungsmóti
og Heimsleikum og er það
tilhlökkunarefni að sækja
Hornfirðinga heim jafnt
sem Berlínarbúa. Starfsmenn
RML hlakka til samstarfsins
við hesta menn í ár sem
endranær og minnum við á
að þar eru allir til þjónustu
reiðubúnir.
Sýningaáætlun 2019:
• 20.05 - 24.05 Sörlastaðir Hafnarfirði
• 27.05 - 31.05 Borgarnes
• 27.05 - 31.05 Brávellir Selfossi
• 03.06 - 07.06 Sprettur Kópavogi
• 03.06 – 07.06 Gaddstaðaflatir
• 03.06 – 07.06 Hólar Hjaltadal
• 03.06 – 04.06 Fljótsdalshérað
• 11.06 – 14.06 Sprettur Kópavogi
• 11.06 – 14.06 Gaddstaðaflatir
• 18.06 – 21.06 Akureyri
• 11.07 – 14.07 Fjórðungsmót Austurlands
• 15.07 - 19.07 Gaddstaðaflatir
• 22.07 - 26.07 Gaddstaðaflatir
• 22.07 - 26.07 Hólar Hjaltadal
• 19.08 - 23.08 Brávellir Selfossi
• 19.08 - 23.08 Akureyri
• 19.08 - 23.08 Borgarnes
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
adæB n