Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 25 • B A K A Ð A R • BAKAÐAR OSTAKÖKUR Bökuðu ostakökurnar munu slá í gegn við öll tækifæri. Sem eftirréttur eða í stjörnuhlutverki í kaffiboði eða saumaklúbb. Góðar einar sér og himneskar með berjum og þeyttum rjóma. Christin Irma Schröder. Húsavíkurstofa: Nýr forstöðumaður Christin Irma Schröder hefur verið ráðin forstöðumaður Húsa- víkurstofu. Christin er þrítug og hefur undan- farið ár starfað hjá PriceWaterhouse Coopers en var áður í starfi aðstoðarmanns framkvæmdastjóra hjá PCC Bakki Silicon. Hún er með MS-próf í fjölþjóðasamskiptum en lauk þar áður BA-prófi í Evrópufræðum. Christin er þýsk en hefur verið búsett á Húsavík í nokkur ár. Um er að ræða nýtt starf sem er fjármagnað meðal annars með rekstrarstyrk frá Norðurþingi. Húsavíkurstofa var stofnuð árið 2002, þá undir heitinu Markaðsráð Húsavíkur og nágrennis. Núverandi nafngift var tekin upp árið 2010. Húsavíkurstofa er samnefnari fyrirtækja í ferðaþjónustu í auglýsinga- og kynningarmálum. Stofan hefur í gegnum tíðina unnið ýmis verkefni og var á sínum tíma meðal annars rekstraraðili Mærudaga, upplýsingamiðstöðvarinnar á Húsavík sem og tjaldsvæðisins. /MHH Stjórn Brunavarna Austur- Húnavatnssýslu hefur ráðið Ingvar Sigurðsson á Selfossi sem slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu og mun hann hefja störf 1. maí 2019. Ingvar er löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og hefur starfað í tæp 10 ár sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá Brunavörnum Árnessýslu 2009-2019 en starfar núna sem einn af fjórum vakthafandi varðstjórum slökkviliðsins og sinnir þar bakvöktum og þjálfun. Stjórn Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu fagnar ráðningu Ingvars og hlakkar til þess að vinna með honum að frekari uppbyggingu í þessum mikilvæga málaflokki og að auknu samstarfi á svæðinu. /MHH Brunavarnir A-Hún.: Ingvar ráðinn nýr slökkviliðsstjóri Ingvar Sigurðsson, sem er nýráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur- hefur búið á Selfossi síðustu ár. Unglingalandsmót UMFÍ verður á Höfn í Hornafirði 2019 „Þetta verður flott mót, við erum full tilhlökkunar að halda það,“ segir Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir, formaður Ungmennasambandsins Úlfljótur (USÚ), hittust í þjónustumiðstöð UMFÍ síðdegis föstudaginn 7. desember og skrifuðu þar undir samstarfssamning vegna Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina 2019. Matthildur er jafnframt formaður framkvæmdanefndar Unglingalandsmóts UMFÍ. Unglingalandsmót UMFÍ hefur verið haldið frá árinu 1992 víða um land og er það orðið einn af stóru viðburðunum um verslunarmannahelgina hjá mörgum fjölskyldum. 22. Unglingalandsmót UMFÍ Á þessu ári var unglingalandsmótið haldið í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina. Þangað mættu meira en þúsund þátttakendur á aldrinum 11–18 ára og kepptu í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða þátttöku í ýmsum keppnisgreinum heldur þekkt tónlistarfólk tónleika öll kvöldin og boðið verður upp á alls konar afþreyingu af ýmsu tagi. Unglingalandsmót UMFÍ var síðast haldið á Höfn um verslunarmannahelgina árið 2013, sem tókst í alla staði frábærlega. Mótið verður númer 22 í röðinni. /MHH Eftir undirritun samningsins talið frá vinstrI: Matthildur, Haukur, Jóhanna Íris og Sigurður Óskar Jónsson, gjaldkeri USÚ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.