Bændablaðið - 14.02.2019, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 2019 31
• Að hindra myndun ónæmis
gegn sýklalyfjum og tryggja
þannig möguleika á notkun
þeirra í framtíðinni með því
að draga úr notkun lyfja eins
og kostur er.
• Að draga úr lyfjamengun
náttúrunnar.
• Að bæta árangur lyfja með-
höndlunar.
• Til að ná markmiðum þessum
skal leggja höfuðáherslu á
fyrirbyggjandi aðgerðir í stað
meðhöndlunar.
• Vísindaleg rök skulu ávallt
liggja til grundvallar ákvörðun
um notkun á sýklalyfjum.
• Val á sýklalyfi skal vera
markvisst. Nota skal þau lyf
sem vitað er að virka best á
viðkomandi sýkil. Penicillín
er fyrsti valkostur við
sýklalyfjagjöf.
• Forðast skal notkun breiðvirkra
lyfja og lyfja sem vitað er að
valda frekar myndun ónæmis
en önnur, þau skal eingöngu
nota gegn sýklum sem ónæmir
eru fyrir penicillíni.
Sýklastofnar sem ónæmir eru
fyrir sýklalyfjum eru alvarlegt og
óásættanlegt heilbrigðisvandamál,
jafnt í dýrum sem mönnum. Á
búum þar sem sýklalyfjaónæmi
er viðvarandi skal gert átak til
að losa hjörðina við hina ónæmu
stofna.
Hver er helsta notkun sýklalyfja í
íslenskri búfjárrækt?
Nánast öll sýklalyfjameðhöndlun
íslensks búfénaðar er einstaklings-
meðhöndlun. Þetta er lykilatriði
ásamt sameiginlegum skilningi
dýralækna og bænda á
mikilvægi réttrar notkunar á
sýklalyfjum, smitvörnum og góðri
sjúkdómastöðu.
Hvers vegna eru notuð sýklalyf
í íslensk húsdýr?
Nautgripir:
Júgurbólga er langalgengasta
bakteríusýkingin í kúm. Sem betur
fer hefur betri mjaltatækni og bættur
aðbúnaður dregið töluvert úr tíðni
sýkinga og þar með bætt velferð
kúnna. Dýralæknar og bændur
eru nú meðvitaðri um mikilvægi
markvissrar sýklalyfjanotkunar
og sennilega má þakka því og
aukinni ráðgjöf að dregið hefur
töluvert úr tíðni penicillínónæmra
júgurbólgusýkla, sbr. niðurstöður
úr árlegri tanksýnatöku MS.
Skita í smákálfum var töluvert
algeng, en bættur aðbúnaður,
fóðrun og umhirða hafa dregið
úr vandamálinu. Áður fyrr var
algengt að nota sýklalyf sem fyrsta
læknisráðið.
Svín:
Í svínabúskap á Íslandi er
nánast eingöngu verið að
einstaklingsmeðhöndla dýr,
öfugt við það sem þekkist víða
annars staðar. Oftast eru grísir
meðhöndlaðir vegna öndunarfæra-
og iðrasýkinga, meðhöndlun á
gyltum er yfirleitt vegna leg- og
júgurbólgu. Nú eru svín bólusett
við nokkrum sjúkdómum, velferðin
þannig bætt og mögulega komist hjá
notkun sýklalyfja.
Alifuglar:
Mörg ár eru síðan kjúklinga-
eða kalkúnahópar hafa verið
meðhöndlaðir með sýklalyfjum.
Á undanförnum árum er aðeins
eitt dæmi um meðhöndlun á
varphænum.
Sauðfé:
Sýklalyf eru aðeins notuð við
sýkingar í einstaka dýrum. Þó er
nokkuð um að sýklalyf séu notuð
fyrirbyggjandi við slefsýki í
lömbum þar sem hún er vandamál.
Unnið er að því að finna aðrar
lausnir, en slefsýkin er alvarlegt
velferðarmál og veldur bændum
töluverðu tjóni.
Hross:
Sýklalyfjanotkun í hross er almennt
lítil og þá aðeins í einstök dýr.
Fiskar:
Ekki hafa verið notuð sýklalyf í
hefðbundnu laxeldi í sjó síðan um
aldamót. Síðustu sjö árin hafa engin
sýklalyf verið notuð við eldi á laxi,
bleikju og regnbogasilungi.
HEILSA er vefforrit Matvæla-
stofnunar (MAST) sem heldur utan
um sjúkdóma- og lyfjaskráningu og
bólusetningar nautgripa, hrossa og
sauðfjár. Dýralæknar skrá beint
í kerfið og öll gögn eru vistuð í
miðlægum gagnagrunni sem er í
vörslu MAST. Ennþá eru agnúar
á kerfinu og því nýtist það ekki
alveg sem skyldi, en með góðri
endurskoðun og útfærslu fyrir allar
dýrategundir yrði það ómetanlegt
hjálpartæki til að fylgjast með og
meta sýklalyfjanotkun í húsdýrum.
Lyfjaónæmi er alheimsvandamál
sem þekkir engin landamæri
Alþjóðasamtök dýralækna
(WVA) hafa gefið út eftirfarandi
ráðleggingar um notkun sýklalyfja,
sömuleiðis yfirlýsingu um
mikilvægi bólusetninga dýra fyrir
heilbrigði dýra og manna:
• Ákvarðanir um takmörkun eða
stýringu á notkun sýklalyfja
skal taka á grundvelli ávinnings/
áhættu greininga.
• Sýklalyf sem eru mikilvæg í
mannalækningum skal aðeins
nota í dýr sem eru undir
dýralæknishendi og þegar
gagnkvæmt traust ríkir milli
dýralæknis og eiganda.
• Rannsóknir á næmi sýkla er
mikilvægur þáttur í ábyrgri
notkun sýklalyfja. Hér undir
næmisrannsóknir í hverju
sjúkdómstilfelli og sömuleiðis
vöktun og gagnaskil á
landsvísu.
• Mikil þörf er á skilvirkum
valkostum við sýklalyfin og
hvatt er til nýsköpunar.
WVA telur einnig mikilvægt
að stuðla að aukinni notkun
bólusetninga til að draga úr
hættu á farsóttum og súnum hjá
dýrum. Þróa þarf fræðsluefni sem
dýralæknar geta notað til að fræða
dýraeigendur um bólusetningar og
bólusetningaáætlanir og til að bæta
samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir.
Tryggja verður nægilegt fjármagn
til að auka vísindalegan skilning á
lyfja- og ónæmisfræði.
Þrjár mikilvægar alþjóða -
stofnanir, Alþjóðaheilbrigðis-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
(WHO), Matvæla- og
landbúnaðar stofnun SÞ (FAO)
og Alþjóðadýra heilbrigðis-
stofnunin (OIE), hafa tekið upp
samstarf um lyfjaónæmi, sem
hefur verið kallað "Þríeykið"
(Tripartite). WVA hefur lýst yfir
eindregnum stuðningi við þetta
samstarf og lagt sitt af mörkum
til að efla það.
OIE setur alþjóðastaðla um
dýraheilbrigði og velferð dýra.
Helstu sérfræðingar í heimi vinna
að gerð staðlanna og þeir eru
síðan bornir upp til samþykktar
aðildarríkjanna 182. Með
samþykktinni skuldbinda ríkin sig
til að fara eftir stöðlunum. Ísland
er eitt aðildarrríkja OIE.
OIE vinnur náið með WHO og
FAO, sérstaklega að því er snýr
að sjúkdómum sem berast milli
manna og dýra (súnum). Stór
hluti þess samstarfs fjallar um
lyfjaónæmi. Stofnanirnar hafa
sett sér aðgerðaáætlanir og hvetja
aðildarríki sín til að gera slíkt hið
sama.
OIE setur viðmiðunarreglur
um ábyrga notkun sýklalyfja í
búfjárrækt og dýrum og mælir
stofnunin eindregið með að lyf séu
ekki notuð í vaxtarhvetjandi skyni.
Stöðugt fækkar þeim löndum
sem leyfa notkun sýklalyfja
í vaxtaraukandi skyni þó enn
séu þau allnokkur samkvæmt
upplýsingum sem OIE safnar um
notkun sýklalyfja í búfjárrækt í
aðildarríkjum sínum.
Listi OIE yfir sýklalyf sem
nauðsynleg eru í búfjárrækt gefur
línuna um hvaða lyf má og getur
þurft að nota og hvaða lyf á að
forðast í lengstu lög að nota í
búfjárrækt.
Matvælastofnun er nú
þátttakandi í „One Health“
– Ein heilsa.
Brýnt er að auka skilninginn
á samspili heilbrigðis manna,
húsdýra og villtra dýra. Sýkingar
geta borist í menn frá dýrum og
umhverfi og öfugt.
„One Health“ er alþjóðleg stefna
sem ætlað er að auka þverfaglegt
samstarf og samskipti á öllum
sviðum heilbrigðisþjónustu fyrir
menn, dýr og fyrir umhverfið.
Lögð er áhersla á eina heildstæða
stefnu um forvarnir, vöktun og
viðbrögð við sýklalyfjaónæmi.
Samstarf þarf að vera milli
stjórnvalda, matvælaframleiðenda,
iðnaðarins, heilbrigðisstarfsmanna
manna og dýra, vísindamanna og
neytenda þar sem við öll höfum
mikilvægu hlutverki að gegna,
bæði innanlands, svæðisbundið
sem og á heimsvísu.
Katrín Andrésdóttir,
fv. héraðsdýralæknir,
lýðheilsufræðingur og
heilbrigðisfulltrúi.
Stuðst er að töluverðu leyti
við greinargerð starfshóps
velferðarráðuneytisins um
aðgerðir til að draga úr
útbreiðslu sýklalyfjaónæmra
baktería á Íslandi.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
VETRAR- OG ENDURSKINSFATNAÐUR
Láttu þér ekki
verða kalt!