Bændablaðið - 14.02.2019, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. febrúar 201936
Kastaníuhnetur sjást einstaka
sinnum á boðstólum í stór mörkuð-
um hér á landi. Ólíkt öðrum
hnetum innihalda þær talsvert
af kolvetnum. Upphafsmenn
Jesúhreyfingarinnar og frum-
kristnir litu á þyrna aldinhýðisins
og mjúka kastaníu hnetuna sem
tákn um skírlífi.
Samkvæmt Matvæla- og
landbúnaðarstofnum Sameinuðu
þjóðanna var framleiðsla á
kastaníuhnetum í heiminum árið
2016 rúmlega 2,2 milljón tonn.
Framleiðsla undanfarinna ára hefur
aukist jafnt og þétt því árið 2009
var hún tæp 1,9 milljón tonn og
tveimur árum síðar rétt rúm tvö
milljón tonn.
Kína er langstærsti fram-
leiðandinn og hefur leitt
framleiðsluna til fjölda ára. Árið
2009 framleiddu Kínverjar rúm
1,5 milljón tonn og framleiðsla
þar var kominn í tæp 1,9 milljón
tonn 2016. Tyrkland, sem er í öðru
sæti yfir stærstu framleiðendur
kastaníuhneta, er eins og baun
í bjarnarrassgati þegar kemur að
magni og framleiddi árið 2016 tæp
65 tonn. Framleiðsla í Suður-Kóreu
sama ár var rúm 56 tonn og tæp 51
tonn á Ítalíu. Grikkir framleiddu
rúm 31 tonn, Portúgalar tæp 27 og
Spánverjar um 16 tonn árið 2016.
Á vef Hagstofu Íslands segir að
innflutningur á kastaníuhnetum í
hýði árið 2018 hafi verið tæp 1,8
tonn og rúm fjögur tonn af afhýddum
kastaníuhnetum eða alls 5,8 tonn.
Mestur var innflutningurinn af
kastaníuhnetum í hýði frá Kína rúm
1,4 tonn en frá Frakklandi og Íran
af afhýddum kastaníuhnetum rúm
tvö og 1,5 tonn árið 2018.
Ættkvíslin Castanea
Tegundir innan ættkvíslarinnar
Castanea eru níu og tilheyrir
ættkvíslin beykiættinni eins og
eikur- og beykitré.
Allar eru kastaníur sumargræn
tré eða runnar sem upprunin eru 40
til 65 gráðu norðlægrar breiddar.
Útbreiðsla ólíkra tegunda innan
ættkvíslarinnar er um allt norðurhvel.
Ólíkar tegundir eru frá því að
vera lágvaxnir runnar yfir í ríflega
60 metra einstofna tré með trefjarót
og stóra krónu. Börkurinn sléttur
á ungum trjám en verður hrjúfari
viðkomu eftir því sem trén eldast.
Blöðin fagurgræn, milli tíu og
þrjátíu sentímetra löng og fjórir
til tíu á breidd, ílöng eða egglaga,
sagtennt og oddmjó. Blómin í
sætilmandi reklum sem annaðhvort
eru karl- eða kvenkyns. Aldinið,
sem er brúnt að utan en hvítt innan,
kallast hneta og er fimm til ellefu
sentímetra að þvermáli er umlukið
þyrnóttri kápu. Í hverju aldini eru ein
til sjö ætar hnetur eftir tegundum.
Breiðasti trjábolur sem mælst
hefur er á kastaníutré við rót eld-
fjallsins Etnu á Sikiley. Ummál
bolsins er 51 metri, þrátt fyrir að hann
hafi orðið fyrir miklum skemmdum
í gegnum tíðina af völdum eldinga
og annarra náttúruhamfara.
Algengasta kastaníutegundin í
ræktun er Castanea sativa.
Evrópsk kastanía
Á íslensku kallast C. sativa kastanía
eða kastaníutré. Sumargrænt tréð er
upprunnið í Mið-Asíu við Kaspíahaf
en hefur breiðst út um alla Mið- og
Suður-Evrópu. Einstaka tré geta
orðið ríflega 35 metrar að hæð
og margir metrar í ummál og yfir
700 ára gömul í náttúrunni og yfir
aldargömul í ræktun. Með trefjarót
og yfirleitt einstofna og með stóra og
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Inni í þyrnóttu aldinhýði kastaníuhnetunnar eru tvö til þrjú fræ með fræblöðum. Aldinið er brúnt að utan en með hvítum kjarna.
Kastaníutré í allri sinni dýrð.
Kastaníutré sem var gróðursett árið 1370 og er því tæplega 650 ára gamalt.